Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 26

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 26
eða að deyja. En það eru kringum- stæðurnar sem geta verið skoplegar. Og hláturinn getur svona létt undir, mér fannst góð tilhugsun að ef til vill væri einhver sem stæði frammi fyrir lyfjameðferð sem hefði gagn af því. Að það væri ekki jafn ógnvæn- legt. En ómeðvitað þá notar maður þessar hugleiðingar sem kvikna í veikindum eða því að hugsa um dauðann í öllu sem maður gerir. Besta partýið Af hverju er það enn tabú haldið þið? Að ræða dauðann? Ragnar: Það ætti ekki að vera tabú að ræða þetta. Eitt sem mörgum finnst erfitt að ræða er þegar manni verður létt fyrir hönd þeirra sem eru alvarlega þjáðir og veikir, eiga enga von um lækningu og fá hvíld. Hekla Eísabet: Margir fyllast tilgangsleysistilfinningu af því að hugsa um dauðann. Hugsa með sér, til hvers er þetta þá allt? En gef ur dauðinn ekki líka tilgang? Hekla Elísabet: Jú, það er rétt. Baldvin: Það sem drepur dauð- ann í okkar samfélagi eru jarðar- farir. 90% jarðarfara sem ég hef farið í eru leiðinlegar og þvingaðar. Presturinn heldur ræðu sem er sjaldan í takti við manneskjuna sem er verið að jarða. En það eru á þessu undantekningar. Ég fór fyrir nokkrum árum í jarðarför mömmu vinar míns. Hún var haldin í sal en ekki í kirkju. Börn og barnabörn klifruðu upp á kistuna og settu teikningar handa ömmu í kistuna. Bob Dylan var á fóninum. Athöfnin varð persónuleg og við áttum góða stund. En þetta getur verið alveg glötuð athöfn. Hekla: Besta partí sem ég hef farið í var jarðarför. Við vorum að kveðja góðan vin sem hafði valið tónlistina sjálfur. Hann setti mark sitt á partíið. Jón Gunnar: Vinur minn dó úr krabbameini fyrr á þessu ári. Hann var mikill kvikmyndaunnandi, búinn að sérvelja lögin. Það var góð upplifun. Maður fagnar lífinu þegar maður minnist þeirra látnu. Að skipuleggja eigin jarðarför Já, ætti fólk kannski bara að skipu- leggja eigin jarðarför? Svo þetta verði ekki glatað allt saman? Jón Gunnar: Já, ég held að margir séu með hugmyndir um hvernig þeir vilja hafa eigin jarðarför. Kristófer: En ég held líka að margir þori ekki að festa hugmynd- ir á blað og finnist þeir þá vera að ögra dauðanum. Hekla: Ég er búin að segja vinum mínum hvaða lög ég vil hafa í minni jarðarför. En ég get ekki sett það á blað, finnst þá eins og ég sé að bjóða dauðanum heim til mín. Jón Gunnar: Það er eitthvað óþægilegt við það að skipuleggja eigin endalok. En samt. Væri það ekki góð hugmynd? Það finnst að minnsta kosti söguhetjunni. Ragnar: Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við Jón Gunnar skrifum um jarðarför. Fyrsta verkefnið sem við unnum saman var handrit að „road trip“ bíómynd sem fjallaði um hóp manna sem fara með lík vinar síns þvert yfir landið og lenda í alls konar veseni á leiðinni. Myndin endaði svo á geggjuðu partíi í kirkjunni. Þar sáum við að jarðar- farir þurfa ekki að vera leiðinlegar heldur eru þær frekar tækifæri til þess að fagna lífinu. Svo hugsuðum við hvernig það væri ef líkið sjálft fengi að taka þátt í skemmtuninni. Það væri engin jarðarför eins frábær og hjá manneskju sem væri sjálf að skipuleggja hana. Hvernig kom hugmyndin til þín Jón Gunnar? Jón Gunnar:  Hún kom ein- mitt úr þessum þankagangi. Hvort maður myndi ekki vilja hafa áhrif á sína síðustu veislu. Hvort maður myndi ekki vilja sjálfur vera við- staddur jarðarförina sína og kveðja sína nánustu. En um leið og hug- myndin fæddist þá var aðalleikar- inn ákveðinn í huga mínum. Fá ástsælasta gamanleikara þjóðar- innar sl. 50 ár til að leika hlutverkið sem mér finnst þjóðin eiga inni hjá honum. Þetta er brosmild saga um krabbamein, dauða, jarðar- farir og þessa dásamlega skrýtnu og skemmtilegu fjölskyldu sem við öll þekkjum og elskum. Allir þekkja einhvern sem er að ganga í gegnum erfið veikindi. Systir mín greindist með krabbamein í annað sinn og er nú að glíma við það. Ég finn mjög sterkt hvað það er nauðsynlegt að halda í gleðina og húmorinn í svona aðstæðum. Hvernig er að vinna svona mörg saman, eruð þið ekki alltaf að rífast? Baldvin: Við settumst niður og rifum þetta í okkur. Spóluðum okkur í gegnum framvinduna í gegnum sex þætti. Kristófer: Hugmyndin er svo sterk. Við vissum öll um hvað þetta er frá byrjun. Við erum með mann sem ætlar að deyja en hann ætlar að vera viðstaddur eigin jarðarför. Hekla: Ég hef aldrei verið í svona teymi og það kom mér á óvart hvað þetta gekk vel því við komum öll úr mismunandi áttum og erum með mismunandi sýn á lífið. Góður andi yfir verkefninu Þannig að þið hafið ekki unnið saman áður? Sóli: Nei, en bransinn finnur allt- af leið til að tengja fólk saman. Ég held að það sé að vissu leyti gott að við höfum ekki unnið saman áður. Við rökstyðjum og útskýrum hug- myndir okkar betur. Þegar maður þekkir vel þá sem maður vinnur með á maður til að gera það ekki. Við rerum öll í sömu átt og það er ótrúlega fallegur og góður andi yfir þessari seríu. Og ég veit ekki hvort ég hef endilega gert mér grein fyrir því í upphafi hvernig þetta myndi fara. Þetta er mjög gott handrit, bara spurning um hvernig þetta verður leikið! Laddi: Já! Það er nú það! Baldvin: En það er rétt sem Sóli segir, það er góður andi yfir þessu því þó að við séum að skrifa gaman- þætti þá nálgumst við öll viðfangs- efnið af mikilli virðingu. Því jú, þetta er grín en við erum ekki að gera grín að dauðanum. Þættirnir verða frumsýndir hjá Símanum á næsta ári. RÚV var að frumsýna Pabbahelgar. Er metnaður og gróska í íslenskri sjónvarpsþátta- gerð? Kristófer: Sjónvarp Símans er að koma mjög sterkt inn og svolítið að blása í lúðrana. Það mun hafa góð áhrif á alla keppinauta. Baldvin: Keppinautar eru að gera það sama. Við erum komin með aðila sem ætla að spýta í lófana. Ragnar: Það er nefnilega þannig að til þess að öflug innlend þátta- gerð þrífist þá er ekki hægt að reiða sig á styrki. Margar seríur stranda á styrkjum. En Síminn er að hjóla í þetta og það er vel. En Laddi hvað finnst þér? Myndir þú vilja gera þetta eins og sögu- hetjan sem þú leikur? Skipuleggja sjálfur eigin jarðarför? Laddi: Mín jarðarför verður stór. Það verða svo margir jarðaðir með mér. Það verður fjöldagröf og það verður sjóv í kirkjunni. Jón Gunnar: Já, það þarf nátt- úrulega að jarða þá alla. Eirík Fjalar, Martein Mosdal og restina. Legsteinninn verður þriggja metra hár! Mín jarðarför verður stór. Það verða svo margir jarðaðir með mér. Það verður fjölda- gröf og það verður sjóv í kirkjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ÉG ER BÚIN AÐ SEGJA VINUM MÍNUM HVAÐA LÖG ÉG VIL HAFA Í MINNI JARÐARFÖR. EN ÉG GET EKKI SETT ÞAÐ Á BLAÐ, FINNST ÞÁ EINS OG ÉG SÉ AÐ BJÓÐA DAUÐANUM HEIM TIL MÍN. Hekla Elísabet 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.