Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 26
eða að deyja. En það eru kringum-
stæðurnar sem geta verið skoplegar.
Og hláturinn getur svona létt undir,
mér fannst góð tilhugsun að ef til
vill væri einhver sem stæði frammi
fyrir lyfjameðferð sem hefði gagn af
því. Að það væri ekki jafn ógnvæn-
legt. En ómeðvitað þá notar maður
þessar hugleiðingar sem kvikna
í veikindum eða því að hugsa um
dauðann í öllu sem maður gerir.
Besta partýið
Af hverju er það enn tabú haldið
þið? Að ræða dauðann?
Ragnar: Það ætti ekki að vera tabú
að ræða þetta. Eitt sem mörgum
finnst erfitt að ræða er þegar manni
verður létt fyrir hönd þeirra sem eru
alvarlega þjáðir og veikir, eiga enga
von um lækningu og fá hvíld.
Hekla Eísabet: Margir fyllast
tilgangsleysistilfinningu af því að
hugsa um dauðann. Hugsa með sér,
til hvers er þetta þá allt?
En gef ur dauðinn ekki líka
tilgang?
Hekla Elísabet: Jú, það er rétt.
Baldvin: Það sem drepur dauð-
ann í okkar samfélagi eru jarðar-
farir. 90% jarðarfara sem ég hef
farið í eru leiðinlegar og þvingaðar.
Presturinn heldur ræðu sem er
sjaldan í takti við manneskjuna
sem er verið að jarða. En það eru á
þessu undantekningar. Ég fór fyrir
nokkrum árum í jarðarför mömmu
vinar míns. Hún var haldin í sal en
ekki í kirkju. Börn og barnabörn
klifruðu upp á kistuna og settu
teikningar handa ömmu í kistuna.
Bob Dylan var á fóninum. Athöfnin
varð persónuleg og við áttum góða
stund. En þetta getur verið alveg
glötuð athöfn.
Hekla: Besta partí sem ég hef
farið í var jarðarför. Við vorum að
kveðja góðan vin sem hafði valið
tónlistina sjálfur. Hann setti mark
sitt á partíið.
Jón Gunnar: Vinur minn dó úr
krabbameini fyrr á þessu ári. Hann
var mikill kvikmyndaunnandi,
búinn að sérvelja lögin. Það var góð
upplifun. Maður fagnar lífinu þegar
maður minnist þeirra látnu.
Að skipuleggja eigin jarðarför
Já, ætti fólk kannski bara að skipu-
leggja eigin jarðarför? Svo þetta
verði ekki glatað allt saman?
Jón Gunnar: Já, ég held að margir
séu með hugmyndir um hvernig
þeir vilja hafa eigin jarðarför.
Kristófer: En ég held líka að
margir þori ekki að festa hugmynd-
ir á blað og finnist þeir þá vera að
ögra dauðanum.
Hekla: Ég er búin að segja vinum
mínum hvaða lög ég vil hafa í minni
jarðarför. En ég get ekki sett það á
blað, finnst þá eins og ég sé að bjóða
dauðanum heim til mín.
Jón Gunnar: Það er eitthvað
óþægilegt við það að skipuleggja
eigin endalok. En samt. Væri það
ekki góð hugmynd? Það finnst að
minnsta kosti söguhetjunni.
Ragnar: Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem við Jón Gunnar skrifum
um jarðarför. Fyrsta verkefnið sem
við unnum saman var handrit að
„road trip“ bíómynd sem fjallaði um
hóp manna sem fara með lík vinar
síns þvert yfir landið og lenda í alls
konar veseni á leiðinni. Myndin
endaði svo á geggjuðu partíi í
kirkjunni. Þar sáum við að jarðar-
farir þurfa ekki að vera leiðinlegar
heldur eru þær frekar tækifæri til
þess að fagna lífinu. Svo hugsuðum
við hvernig það væri ef líkið sjálft
fengi að taka þátt í skemmtuninni.
Það væri engin jarðarför eins frábær
og hjá manneskju sem væri sjálf að
skipuleggja hana.
Hvernig kom hugmyndin til þín
Jón Gunnar?
Jón Gunnar: Hún kom ein-
mitt úr þessum þankagangi. Hvort
maður myndi ekki vilja hafa áhrif
á sína síðustu veislu. Hvort maður
myndi ekki vilja sjálfur vera við-
staddur jarðarförina sína og kveðja
sína nánustu. En um leið og hug-
myndin fæddist þá var aðalleikar-
inn ákveðinn í huga mínum. Fá
ástsælasta gamanleikara þjóðar-
innar sl. 50 ár til að leika hlutverkið
sem mér finnst þjóðin eiga inni
hjá honum. Þetta er brosmild saga
um krabbamein, dauða, jarðar-
farir og þessa dásamlega skrýtnu
og skemmtilegu fjölskyldu sem við
öll þekkjum og elskum. Allir þekkja
einhvern sem er að ganga í gegnum
erfið veikindi. Systir mín greindist
með krabbamein í annað sinn og er
nú að glíma við það. Ég finn mjög
sterkt hvað það er nauðsynlegt að
halda í gleðina og húmorinn í svona
aðstæðum.
Hvernig er að vinna svona mörg
saman, eruð þið ekki alltaf að rífast?
Baldvin: Við settumst niður og
rifum þetta í okkur. Spóluðum
okkur í gegnum framvinduna í
gegnum sex þætti.
Kristófer: Hugmyndin er svo
sterk. Við vissum öll um hvað þetta
er frá byrjun. Við erum með mann
sem ætlar að deyja en hann ætlar að
vera viðstaddur eigin jarðarför.
Hekla: Ég hef aldrei verið í svona
teymi og það kom mér á óvart hvað
þetta gekk vel því við komum öll úr
mismunandi áttum og erum með
mismunandi sýn á lífið.
Góður andi yfir verkefninu
Þannig að þið hafið ekki unnið
saman áður?
Sóli: Nei, en bransinn finnur allt-
af leið til að tengja fólk saman. Ég
held að það sé að vissu leyti gott að
við höfum ekki unnið saman áður.
Við rökstyðjum og útskýrum hug-
myndir okkar betur. Þegar maður
þekkir vel þá sem maður vinnur
með á maður til að gera það ekki.
Við rerum öll í sömu átt og það er
ótrúlega fallegur og góður andi yfir
þessari seríu. Og ég veit ekki hvort
ég hef endilega gert mér grein fyrir
því í upphafi hvernig þetta myndi
fara. Þetta er mjög gott handrit,
bara spurning um hvernig þetta
verður leikið!
Laddi: Já! Það er nú það!
Baldvin: En það er rétt sem Sóli
segir, það er góður andi yfir þessu
því þó að við séum að skrifa gaman-
þætti þá nálgumst við öll viðfangs-
efnið af mikilli virðingu. Því jú,
þetta er grín en við erum ekki að
gera grín að dauðanum.
Þættirnir verða frumsýndir hjá
Símanum á næsta ári. RÚV var að
frumsýna Pabbahelgar. Er metnaður
og gróska í íslenskri sjónvarpsþátta-
gerð?
Kristófer: Sjónvarp Símans er að
koma mjög sterkt inn og svolítið að
blása í lúðrana. Það mun hafa góð
áhrif á alla keppinauta.
Baldvin: Keppinautar eru að gera
það sama. Við erum komin með
aðila sem ætla að spýta í lófana.
Ragnar: Það er nefnilega þannig
að til þess að öflug innlend þátta-
gerð þrífist þá er ekki hægt að reiða
sig á styrki. Margar seríur stranda
á styrkjum. En Síminn er að hjóla í
þetta og það er vel.
En Laddi hvað finnst þér? Myndir
þú vilja gera þetta eins og sögu-
hetjan sem þú leikur? Skipuleggja
sjálfur eigin jarðarför?
Laddi: Mín jarðarför verður stór.
Það verða svo margir jarðaðir með
mér. Það verður fjöldagröf og það
verður sjóv í kirkjunni.
Jón Gunnar: Já, það þarf nátt-
úrulega að jarða þá alla. Eirík
Fjalar, Martein Mosdal og restina.
Legsteinninn verður þriggja metra
hár!
Mín jarðarför
verður stór.
Það verða svo
margir jarðaðir
með mér. Það
verður fjölda-
gröf og það
verður sjóv
í kirkjunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
ÉG ER BÚIN AÐ SEGJA
VINUM MÍNUM HVAÐA
LÖG ÉG VIL HAFA Í MINNI
JARÐARFÖR. EN ÉG GET
EKKI SETT ÞAÐ Á BLAÐ,
FINNST ÞÁ EINS OG ÉG SÉ
AÐ BJÓÐA DAUÐANUM
HEIM TIL MÍN.
Hekla Elísabet
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð