Fréttablaðið - 19.10.2019, Side 86
Lína Langsokkur, fullu nafni Sig-urlína Rúllugardína Nýlendína Krúsimunda Efraímsdóttir
Langsokkur, er ein frægasta per-
sóna sænska höfundarins Astrid
Lindgren.
Astrid Lindgren bjó Línu til árið
1941 þegar dóttir hennar, Karin, var
veik. Móðirin var að reyna að stytta
henni stundir með því að segja
henni sögur af uppátækjasamri
stúlku. Karin vildi að stúlkan héti
Pippi (Lína er bara íslenska nafnið)
og Astrid féllst á það.
Astrid Lindgren vildi gefa sög-
urnar út á bók og fyrsta sagan kom
út árið 1945. Bækurnar um Línu
urðu mjög vinsælar og hafa verið
þýddar á meira en 70 tungumál.
Lína er meira að segja á sænska 20
króna seðlinum ásamt Astrid Lind-
gren sjálfri.
Á næsta ári kemur út glæný kvik-
mynd um Línu í tilefni þess að þá
verða 75 ár frá því fyrsta bókin um
Línu kom út.
Lína Langsokkur er stelpa sem
flytur inn í stórt hús ásamt apanum
sínum Herra Níels og hestinum
sínum sem virðist ekki hafa fengið
Sigurlína Rúllugardína Nýlendína
Krúsimunda Efraímsdóttir Langsokkur
Snædís Eva Hillers spilar fótbolta
með KR. Hún vill verða hjúkrunar-
fræðingur þegar hún verður stór og
henni fannst fyndið þegar pabbi
hennar brann í sólinni þegar hún
fór í frí til Spánar.
Hvað ert þú gömul? Ég varð fimm
ára um daginn og Unnur er tveggja
ára.
Hver er Unnur? Unnur er litla systir
mín. Hún er tveggja ára en stundum
segir hún að hún sé þriggja ára. Þá
segi ég: Nei, Unnur, þú ert tveggja
ára.
Ert þú í leikskóla? Hvað heitir
leikskólinn þinn? Já, hann heitir
Mánagarður.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera þar? Að spila. Bara spila spil.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera heima? Mér finnst gaman að
lita uppi á háalofti en þegar Unnur
vill lita þá má hún tússlita.
Hver eru uppáhaldsdýrin þín?
Kisa og eitthvað ljón og sebrahestur
því þeir eru svo flottir.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Hakk og spaghettí.
Hver eru þín áhugamál? Mér finnst
gaman að spila fótbolta og lesa og
líka dansa við tónlist.
Hvar spilar þú fótbolta? Ég spila
fótbolta með KR.
Hvaða bækur eru í uppáhaldi?
Uppáhalds eru prinsessubækur og
líka bókin um krókódílinn en hann
kemur út úr bókinni.
Hvernig tónlist? Ronja og líka Lína
Langsokkur.
Átt þú þér uppáhaldsleikfang og
þá hvert? Hvolpasveitin!
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór? Hjúkrunarfræðingur
alveg eins og mamma. Mig langar
að hjálpa fólki. En ég er ekki orðin
hjúkrunarfræðingur. Núna er ég
bara að bíta smá í appelsínu.
Hvenær fórstu síðast í frí? Það er
mjög langt síðan, alveg í ágúst. Ég
fór til Spánar. Mér fannst skemmti-
legast að leika við Teodoro (litli
frændi Snædísar sem býr á Spáni) og
Unni og mér fannst skemmtilegt að
fara á ströndina. Pabbi minn brann
í sólinni og það var fyndið.
Ætlar að verða
hjúkrunarfræðingur
Langt er síðan Snædís Eva fór síðast í frí – alveg í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MIG LANGAR AÐ
HJÁLPA FÓLKI. EN ÉG
ER EKKI ORÐIN HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGUR. NÚNA ER ÉG BARA
AÐ BÍTA SMÁ Í APPELSÍNU.
„Við þurfum auðvitað
ekkert að leysa þessa
eldspýtnaþraut,“
sagði Kata. „Róbert er
örugglega löngu búinn
að því.“ Róbert varð hálf
kindarlegur á svipinn
við þessi orð. „Skrifaðir
þú ekki líka bók um
eldspýtnaþrautir þarna
um árið,“ bætti hún við
glottandi. „Svona nú,“
sagði Lísaloppa. „Hættu
að stríða Róberti, hann
getur reynt að leysa
þessa þraut eins og við.“
„Er það ekki Róbert?“
bætti hún við.
„Jú, jú,“ sagði Róbert.
„Getum við ekki bara öll
reynt að leysa hana?“
Það var langt síðan það
hafði verið svona mikill
sáttatónn í rödd Róberts.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
374
Getur þú
leyst þessa
eldspýtna-
þraut?
?
?
?
„Jæja,“ sagði Lísaloppa.
„Svona er þrautin“
„Getur þú tekið burtu
tvær eldspýtur svo
eftir verði bara tveir
ferningar?“
Á NÆSTA ÁRI KEMUR ÚT
GLÆNÝ KVIKMYND UM LÍNU Í
TILEFNI ÞESS AÐ ÞÁ VERÐA 75
ÁR FRÁ ÞVÍ FYRSTA BÓKIN UM
LÍNU KOM ÚT.
Hér er Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverki Línu árið 1995.
neitt nafn heldur er alltaf kallaður
hestur. Lína er mjög líkamlega sterk
og getur lyft hestinum sínum upp
fyrir höfuðið á sér. Lína er mjög
sjálfstæð og býr ein í húsinu sínu en
kynnist börnum í nágrenninu sem
heita Anna og Tommi og lendir í
ýmsum ævintýrum með þeim.
Móðir Línu lést stuttu eftir fæð-
ingu Línu og pabbi Línu er sjóræn-
ingi sem hefur lítil afskipti af henni.
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR