Hlynur - 15.12.1961, Page 3

Hlynur - 15.12.1961, Page 3
 an Hallgrímur Pétur Hallgrímur Sigtryggsson er fædd- ur að Gilsbakka í Hrafnagilshreppi 3. júlí 1894. Foreldrar: Sigtryggur Þorsteinsson verzlunarmaður hjá KEA og kona hans Sigríður Stefáns- dóttir. Hallgrímur stundaði nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri og starfaði hjá KEA á tímabilinu frá 1915—1918, er hann réðist til SÍS. Hefur hann unnið þar síðan og haft á hendi ýmis störf, svo sem verk- stjórn, vöruinnkaup, vörusölu og bók- haldsvinnu. Á þessu ári hefur hann starfað hjá SÍS í 42 ár, eða leng- ur en nokkur annar starfsmaður þess. Kona Hallgríms er Kristín Sigurð- ardóttir. Pétur Jónsson er fæddur að Höfða í Þverárhlíð 19. sept. 1895, sonur Jóns Guðmundssonar bónda þar og konu hans Maríu Jónsdóttur. Stund- aði sjómennsku, verkamannavinnu og fleira framan af ævi, en réðist til SÍS árið 1921. Starfaði þar fyrst sem bifreiðarstjóri og síðar sem inn- heimtumaður, en því starfi gegnir hann ennþá. Starfsaldur hans hjá SÍS nemur nú alls 40 árum. Pétur er kvæntur Jórunni Björns- dóttur. hlynur 3

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.