Hlynur - 15.12.1961, Side 14
Mötuneytið fimm ára
Hinn 15. ágúst s. 1. átti Mötuneyti
starfsmanna SÍS fimm ára afmæli. í
tilefni dagsins voru margs kyns há-
tíðaréttir á borðum, sem starfslið
eldhússins, undir stjórn hinnar dug-
miklu ráðskonu, Helgu Þóroddsdótt-
ur, hafði matreitt.
Það er að vísu engin nýlunda, að
á borðum í Sambandshúsinu sé góð-
meti. Mötuneytið hefir borið þá gæfu,
frá upphafi, að hafa löngum sama
starfsliðið, og þá sérstaklega sömu
ráðskonuna, en Helga hefir gegnt
þeim störfum allan tímann. Allir
þeir, sem hafa snætt í Sambands-
húsinu á liðnum fimm árum, jafnt
innanbæjarmenn sem utan, ljúka all-
ir upp einum munni um ágæti mötu-
neytisins undir stjórn Helgu. Myndi
ég telja það mesta happ mötuneytis-
ins, að það fengi sem lengst að
njóta starfskrafta hennar.
Núverandi starfslið mötuneytisins, talið
frá vinstri: Áslaug Gunnsteinsdóttir, Stelia
Kristjánsdóttir, Helga Þóroddsdóttir, mat-
ráðskona, Gytta Richter og Ragnheiður
Guðjónsdóttir.
Mötuneytið er þörf stofnun, sem
gefur þeim tækifæri til að kaupa
ódýran mat, er ekki komast heim
til sín í hádeginu. Víða hefur sams
konar stofnunum verið komið upp
í fyrirtækjum hér í bæ. Þykir rekst-
ur þeirra sjálfsagður og myndu fæst-
ir vilja að horfið yrði frá rekstri
þeirra.
En þótt þeim er notfæra sér mötu
neytið finnist það sjálfsagt, þá er
engin ástæða til þess að gleyma því,
að fyrirtækið sem við störfum hjá,
lætur margs kyns aðstöðu í té end-
urgjaldslaust til þess að reksturinn
sé mögulegur. Finnst mér full ástæða
til að þakka forráðamönnum Sam
bandsins fyrir skilning á málefnum
starfsmanna um leið og mötuneytinu
er árnað áframhaldandi heilla í starfi.
Ö.H.
14 HLYNUR