Hlynur - 15.12.1961, Qupperneq 26
SJÁÐU, ÉG SKAL
SÝNA ÞÉR . . .
Keppnin um Hlynsbikarinn, sem
háð er árlega, varð harla söguleg
á síðastliðnu sumri. Var hún að þessu
sinni milli knattspyrnuliðs Sf/SÍS
annarsvegar og öótturfyrirtækjanna
hinsvegar. Mættust liðin þrisvar sinn-
um með nokkru millibili á Valsvell-
inum og kepptu með sívaxandi harð-
fylgi, en allt kom fyrir ekki, því
hvorugur gat á öðrum unnið. Lauk
öllum leikjunum með jafntefli, þeim
fyrsta með 1:1, öðrum 2:2 og
hinum þriðja með 2:2. Varð þá ekki
frekar að gert, enda vetur í hönd
farandi með skammdegi og fúlviðri.
Handhafi bikarsins frá því í fyrra
er lið Sf/SÍS og Olíufélagsins, og
mun væntanlega við það sitja þang-
að til næsta sumar.
Bæði liðin, sem keppnina háðu,
hafa nú hafið innanhússæfingar og
hafa þær verið stundaðar af miklu
fjöri og áhuga, einkum af hálfu
tryggingamanna.
Þrjár meðfylgjandi myndir tók Ól-
afur Sigurjónsson, innheimtumaður
hjá Samvinnutryggingum (áður bíl-
stjóri hjá Norðra), af fyrsta bikar-
Framhald á bls. 31
. . . SVDNA ÁTTU
AÐ SPARKA
26 HLYNUR