Hlynur - 15.12.1961, Page 29
Hinn 22. okt. s.l. efndi Véladeild SÍS
til bifreiðasýningar í porti Sam-
bandshússins. Voru þar sýndar allar
Þær gerðir Ópelbifreiða, sem deildin
hefur umboð fyrir, af árgerðinni
1932. Sýningartíminn var frá klukk-
an tíu árdegis til fimm síðdegis, og
var aðsókn mjög mikil. Fræðslu-
kvikmyndir um Opelbifreiðar voru
sýndar með hálftíma millibili í sam-
komusal Sambandshússins, og kom-
ust færri að en vildu. — Starfsmenn
Bifreiðadeildar sáu um allan undir-
búning og framkvæmd sýningarinn-
ar.
Meðfylgjandi myndir tók Þorvald-
ur Ágústsson á sýningardaginn. Sú
efri á 28. síðu er af sýningarsvæðinu
í heild. Neðri myndin á sömu síðu
sýnir unga sem eldri hópast að
sportgerðinni Record Coupe, er vakti
sérstaka athygli og aðdáun. Á efri
myndinni á þessari síðu er Óskar
Framhald á bls. 30.
HLYNUR 29