Hlynur - 15.12.1961, Side 30
Sandur og ....
Framhald af bls. 13.
vinnustarfsmanna. En eins og flestum
sem til Sigurjóns þekkja, mun
kunnugt, starfaði hann á þriðja
lug ára hjá Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga, Hornafirði, en hefur
nú um nokkurra ára skeið unnið
hjá Sjávarafurðadeild SÍS.
Dagur Þorleifsson.
Fimmtán ár ....
Framhald af bls. 7.
— Ég hef víst komið þar í höfn
um 10—15 sinnum, en aldrei farið í
land. Mér hefur verið sagt, að stað-
urinn væri hreint ræningjabæii,
varningur óhemju dýr og annað eftir
því.
— En Batúm?
— Landslag er fallegt þar um slóð-
ir, en bærinn er ómerkilegur. Fólkið
bætir það þó upp, því það er með
afbrigðum þægilegt og alúðlegt. All-
ir Rússar, sem ég hef kynnst, eru
prýðisfólk. — Já, maður hefur farið
víða og haft það skemmtilegt. Ég
hef verið mjög heppinn með félaga,
til dæmis hafa allir skipstjórarnir,
sem ég hef siglt með, reynst mér hið
bezta.
— Er ekki töluvert félagslíf hjá
ykkur um borð?
— Jú, allmikið, til dæmis hjá okk-
ur á Hamrafellinu, enda er það nauð-
synlegt, þar sem við erum svo lengi
í ferðum. Við spilum bingó og félags-
vist og erum með bíó. Þá erum við
með ljósmyndaklefa með öllum til—
heyrandi græum, enda er mikið tekið
af myndum. Sverrir Þór er sjálfur
góður ljósmyndari og ævinlega reiðu-
búinn okkur hinum til leiðsagnar.
— Þú hefur sjálfur gaman af
myndatökum?
— Já, og þótt gaman sé að
taka myndirnar, er það þó ekkert
hjá því að vinna þær, sjá þær koma
fram á hvítum pappírnum . . .
— Nokkuð sérstakt að lokum?
— Ekki nema það, sem ég hef eitt-
hvað minnst á áður, að allan þann
tíma, sem ég hef verið á samvinnu-
skipunum, hefur mér líkað þar sér-
staklega vel, bæði við skipsfélaga
mína og forráðamenn útgerðarinnar.
dþ.
Bifreiðasýning ....
Framhald af bls. 29.
Gunnarsson, skrifstofustjóri hjá
Osta- og smjörsölunni, ásamt konu
sinni, Unni Magnúsdóttur og dóttur
þeirra Gunnhildi að skoða tveggja
dyra Record, sem virðist vera áber-
andi vinsæll fjölskyldubíll. Urðu
véladeildarmenn þess varir, að all-
margir heimilisfeður, sem skoðuðu
vagn þennan fyrrihluta dags, komu
aftur seinna og höfðu þá konur sín-
ar með sér. — Á neðri myndinni á
sömu síðu ræðir Stefán Thorarensen
lyfsali (t.v.), sem sjálfur hafði ný-
lega pantað fjögurra dyra Record,
við tvo forustumenn Véladeildar, þá
Hjalta Pálsson, framkvæmdastjóra
og Gísla Theódórsson, forstöðumann
bifreiðadeildar, og Jón Arnþórsson,
fulltrúa forstjóra SÍS.
Deildarstjóri i . . . .
Framhald af bls. 13.
í Skorradal. Stundaði nám í Reyk-
holti og tók þaðan landspróf 1954.
Var síðan einn vetur í Menntaskól-
anum að Laugarv. en varð að hætta
þar námi sökum veikinda. Hóf störf
hjá Iðnaðardeild SÍS snemma árs
1956 og vann þar til ársbyrjunar 1960,
er hann réðist til Samvinnutrygginga.
Bjarni er kvæntur Magneu K. Sigurð-
ardóttur, skrifstofustúlku hjá Starfs-
mannahaldi SÍS.
30 HLYNUR