Hlynur - 15.09.1965, Blaðsíða 2
SEXTUGUR
varð þann 26. febrúar s.l. Eggert Ólafsson, starfsmaður
í sútunardeild Iðunnar á Akureyri. Eggert er fæddur
í Tungu í iFnjóskadal, sonur hjónanna Ólafs Sigurðs-
sonar og Guðrúnar Jónsdóttur, er þar bjuggu um langt skeið. Hann fluttist
með foreldrum sínum á barnsaldri til Eyjafjarðar og dvaldist þar á ýmsum
stöðum þar til hann fluttist til Akureyrar árið 1939. Hann hóf störf hjá
Iðunni árið 1945 og vann þá þar yfirleitt aðeins á vetrum, en frá 1958
hefir hann starfað þar óslitið.
Kvæntur er Eggert Jónínu Soffíu Benediktsdóttur frá Akureyri og eiga
þau eina dóttur uppkomna.
FIMMTUG
varð þann 20. maí s.l. Lilja Jóhanns-
dóttir starfsstúlka hjá Ullarverk-
smiðjunni Gefjun á Akureyri. Lilja
er fædd á Akureyri, dóttir hjónanna
Jóhanns Hallgrímssonar og Tómasínu
Þorsteinsdóttur. Hún ólst upp hjá
foreldrum sínum á Akureyri og tók,
er aldur leyfði, að stunda ýms störf,
þ. á. m. fisk- og síldarvinnu. Hún
réðst til starfa hjá Gefjun árið 1936
og starfaði þar þá til ársins 1943.
Aftur hóf hún störf hjá Gefjun árið
1955 og hefir starfað þar óslitið síð-
an.
Lilja er gift Gunnari Guðmunds-
syni, er einnig hefir starfað hjá
Gefjun um árabil og eiga þau 3
börn.
SJÖTUGUR
veiðum
varð nýlega Axel Ásgeirsson, starfsmaður hjá sútun-
ardeild Iðunnar á Akureyri. Hann er fæddur að Dag-
verðartungu í Hörgárdal 16. maí 1895 og voru foreldr-
ar hans hjónin Ásgeir Björnsson og Kristjana Halldórs-
dóttir, þá til heimilis í Dagverðartungu. Axel ólst upp
með foreldrum sínum til 8 ára aldurs, að faðir hans
andaðist, en fór þá til móðurbróður síns, Leós Hall-
dórssonar bónda á Rútsstöðum í Eyjafirði og dvaldist
hjá honum næstu 8 árin. Axel hóf sjómennsku á slld-
en fór síðan í siglingar og var m. a. einn þeirra er sóttu fyrsta skip
Framh. á bls. 15.
2 HLYNUR