Hlynur - 15.09.1965, Qupperneq 7
umkomnir að segja nokkur orð. Vér
gerum ráð fyrir, að herra Isaacson
taki fyrr til máls.
Herra Isaacson: Já, herra forseti,
víst kysi ég, að ég gæti borið meira
traust til verktaka og kjörinna ráðu-
nauta. Ef í upphafi hefði verið leit-
að til prófessors Leví og síðan sam-
ið um framkvæmd verks við firmað
Davíd & Goliath, hefði ég verið ör-
uggur um allar áætlanir. Herra Lyon-
Daniels hefði ekki haldið fjármála-
ráði uppi á snakki um hugsanlega
töf verksins, og dr. Móse Bullrush
hefði komið orðum að því vífilengju-
laust, hvort frekari könnunar lóðar-
innar væri þörf.
Forseti: Ég er þess fullviss, að
ráðsmenn, allir sem einn, kunna að
meta áhuga herra Isaacsons á því, að
fyrirhuguð framkvæmd megi fara
sem allra bezt úr hendi. En mér þyk-
ir orðið nokkuð úrhættis að kalla nú
til nýja tækniráðunauta. Víst er mér
ljóst, að aðalsamningur hefur ekki
enn verið undirritaður, en hins vegar
hefur þegar verið reitt út mikið fé.
Ef nú verða höfð að engu þau ráð,
sem greitt hefur verið fyrir, verður
ekki komizt hjá að kosta öðru eins
til að nýju.
(Aðrir ráðsmenn muldra undir til
samþykkis.)
Herra Isaacson: Ég óska, að at-
hugasemdir mínar verði bókaðar.
Forseti: Sjálfsagt. Ef til vill kýs
herra Brickworth að leggja eitthvað
til mála?
Nú vill svo til, að herra Brick-
worth má heita hinn eini ráðs-
manna, sem ber skyn á það, sem
hann talar um. Hann gæti margt
sagt. Hann tortryggir hina sléttu
tölu, 10.000.000 sterlingspund. Af
hverju ætti útkoma að vera einmitt
slík? Af hverju ætti að rífa til
grunna hið gamla stöðvarhús til að
rýma fyrir nýju? Af hverju er svo
gríðarhá fjárhæð áætluð fyrir óviss-
um útgjöldum? Og hver er hann
annars þessi herra McHeap? Það
er þó ekki sami náungi, sem saksótt-
ur var af olíufirma Trickle & Drie-
drup? En herra Brickworth er ekki
ljóst, á hverju hann ætti að byrja.
Aðrir ráðsmenn eru ekki læsir á
uppdrætti, ef hann vísaði til þeirra.
Hann yrði að byrja á því að útlista,
hvað hlaði væri, en enginn við-
staddra mundi fást til að viðurkenna,
að þeir vissu það ekki fyrir. Mætast
að steinþegja.
Herra Brickworth: Ég sé ekki á-
stæðu til athugasemda.
Forseti: Óskar nokkur annar að
taka til máls? Gott og vel. Mér má
þá skiljast, að fallizt sé á uppdrætti
og kostnaðaráætlanir. Þakk’ yður fyr-
ir. Má ég þá undirrita aðalsamning í
umboði ráðsins? Þakk’ yður fyrir.
Þá er hægt að taka fyrir tíunda mál
á dagskrá.
Ef gert er ráð fyrir nokkrum sek-
úndum til að láta skrjáfa í skjölum
Framh. á bls. 14.
Næst heimtar það bílskúra.
HLYNUR 7