Hlynur - 15.09.1965, Síða 11
ARI BJARNASON
Fæddur 22. ágúst 1893 Dáinn 11. marz 1965
Þann 11. marz s.l.
andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akur-
eyri Ari Bjarnason,
starfsmaður hjá Gefj-
un á Akureyri. Ari
var faeddur að Sval-
barði á Svalbarðs-
strönd 22. ágúst 1893,
sonur hjónanna
Bjarna Arasonar og
Snjólaugar Sigfúsdótt-
ur, er bá bjuggu
rausnarbúi að Sval-
barði og síðar að
Grýtubakka í Höfða-
hverfi. Hann stundaði
nám í unglingaskóla
á Húsavík og bænda-
skólanám að Hólum, en hvarf að
því loknu aftur heim til foreldra
sinna og dvaldist með þeim unz hann
hóf sjálfur búskap. Hann reisti
skömmu síðar nýbýli á hluta jarð-
arinnar, þar sem hann bjó síðan
allt til þess er hann fluttist til Ak-
ureyrar árið 1959. Ari réðst
skömmu siðar til starfa hjá verk-
smiðjum SÍS, fyrst sútunardeild Ið-
unnar og síðan hjá Gefjun, þar sem
hann starfaði til dauðadags.
Ari var fjölgáfaður
maður og óvenjulega
vel menntaður, af
ekki langskólagengn-
ari manni að vera.
Sérstaklega var hann
vel að sér í grasa-
fræði og öllu því er
að ræktun og búskap
Iaut, enda bar heim-
ili hans þess glöggt
vitni að þar gekk
maður um garða, sem
bæði unni ræktun og
kunni á henni öll skil.
Engu að síður samdi
hann sig furðu vel að
háttum verksmiðju-
fólks, eftir að leið
hans lá til þess og undi þar betur
en flestir þeir, sem á efri árum
taka að stunda slík störf.
Ari var tvíkvæntur. Var fyrri
kona hans Sigríður Árnadóttir frá
Gunnarsstöðum í Þistilfirði og eign-
uðust þau 7 börn, öll hinar ágætustu
manneskjur. Siðari kona hans var
Fjóla Snæbjörnsdóttir frá Grund í
Höfðahverfi og var það hjónaband
barnlaust.
PH.
Reykjavík, með eftirhermum og
öðru gamni.
Páll Helgason flutti brot úr ferða-
annál starfsmanna. Að lokum var
spurningaþáttur, þar sem verksmiðj-
urnar Gefjun, Iðunn og Hekla þ. e.
starfsmenn þeirra, kepptu og vann
Iðunn þá keppni glæsilega.
Að lokum var svo dansað, af lífi
og fjöri fram eftir nóttu. Tókst há-
tíðin öll mjög vel.
Stemgrímur
Framh. af bls. 3.
una Atla h.f., 1941 og starfaði þar til
ársins 1948, að hann réðst til Síld-
arverksmiðjunnar á Hjalteyri og síð-
ar 1953, til Gefjunar, en þar hefir
hann starfað óslitið síðan.
Kvæntur er Steingrímur Edith f.
Wohlert frá Þýzkalandi og eiga þau
5 börn.
HLYNUR 11