Hlynur - 15.09.1965, Page 13

Hlynur - 15.09.1965, Page 13
Áletraðar, útklippfar „blöðrur" eins og hér eru sýndar geta haft mjög góð áhrif sem sápuauglýsing. Lági veggurinn, sem settur er undir, hefur líka sínu hlutverki að gegna. Takið eftir, hve vel hann fellur að „sápu- kúlunum." Sannarlega hafði mönnum létt mjög við að losna við baráttu við víðáttumikla glugga Viktoríutímans, sem kröfðust ókjara af vörum og margra mílna af ryksafnandi krép- pappír. En Adam var ekki lengi í Paradís. Brátt höfðu menn flækzt meira í útstillingum en nokkru sinni fyrr, þótt frábrugðnar væru hinum eldri. Kjörbúðum fjölgaði ört, og það, sem einu sinni hafði aðdráttarafl varð algengt og áhrifalaust. Verzl- anir líktust æ meir hver annarri og höfðu æ líkara uppá að bjóða. Mik- ilvægi þess að geta haft skjót áhrif á viðskiptavini óx hröðum skrefum. Þó svo að sérstakar uppsetningar inni i verzluninni væru mest notaðar, áttuðu menn sig fljótlega á, að glugginn var, eins og reyndar alltaf, áhrifamesti tengiliðurinn milli selj- anda og kaupanda. Ónóg pláss og möguleikar hafa mjög hindrað góðar útstillingar. Eft- irlíkingar hafa komið til sögunnar, gondólum er stillt út að rúðu, og gripið er til annarra áþekkra ráða. Verðlækkanir og tækifæriskaup hafa haft í för með sér ótölulegan grúa verðmiða, sem oft eru ótæpilega notaðir. Að undanförnu hafa þungar og miklar útstillingar færzt í vöxt, en eins og aðrar aðferðir er hægt að misnota þær, einkum, þegar þær eru flóðlýstar að ofan. Þær geta skemmt „útsýn" og auk þess verið mjög tíma- og vinnufrekar. Á ein- hvern hátt minna þær mig á ára- tuginn 1930—’40, en sé vel með farið, geta þær og haft ýmsa kosti. Séu aðstæður slæmar, verður að hafa það, sem hendi er næst, en hugsa ekki um það, sem ekki fæst. Yfirleitt er meira en nóg af glugg- um, og vel gæti skeð, að þá mætti nota betur. Ef engar gluggakistur eru, þarf að búa þær til. Sé kistan grunn, má dýpka hana. Vel má setja létta, lága slá milli útstillinga og viðskiptavina, til að hindra árekstra. Með þessu móti eykst hin sýnilega útstilling, en einnig má lífga hana á margar lundir. Harðviður og venjulegt timbur eru yfirleitt ekki mjög dýr, og við má nota á ýmsa vegu. Þessar viðbætur þurfa helzt af öllu að vera auðhreyfðar, en eru mun ódýrari og þægilegri en virðist fljótt á litið. Einnig fæst miklu betra tækifæri til skyndiáhrifa. Lauslega snarað. HLYNUR 13

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.