Hlynur - 15.03.1969, Síða 3

Hlynur - 15.03.1969, Síða 3
4 forsíðunni er að þessu sinni mynd af höggmyndinni LÍFSORKU eftir Ás- mund Sveinsson myndhóggvara, en eins °9 hunnugt er prýðir hún skólasetur Samvinnumanna að Bifróst. Má e. t. v. lítd á hana sem tákn um þá endur- nýjun og þann kraft sem samvinnu- hreyfingin hefur sótt til þessarar menntastofnunar sinnar. Hér til hliðar er svo mynd af byggingum Samvinnu- skólans að Bifróst. hjá samvinmifélögunum hér á iandi. Skóli, eins og Samvinnu- skólinn, veitir fyrst og fremst undirstöðumenntun. Hann full- uasgir ekki lengu-r að mennta fólk í trúnaðarstörf hjá S-am- bandinu og kaupfélögunum. Kröfurnar í dag í þessum efn- um eru miklu meiri en þær voru áð-ur fyrr. Viðskiptalífið er orð- ið lan-gtum flóknara og marg- breyttara nú en áður v-ar. Þá fer verfcaskipting vaxandi °g all-t byggist nú meira -á því, að hver einasti starfsmaður kunni sitt starf til hlítar. Hin alm-enna þekking, eem er þó eigi að síður undirstaða menn- ingarinnar, nægir ekki lengur, Þegar í störfin kemur. Þa-r verð- ur að koma til sérþekkin-gin. Þessi sérþekking fæst að-eins með þjálfun og sérnámi. Nokkrar tilraunir hafa v-erið g'erðar með sérstök námskeið í Samvinnus-kólanum að vorinu til. Þessar tilraunir hafa ekki gefið n-ógu góða raun. Ástandið a vinnumarkaðinum, sem hér uíkti, hefur ef til vill átt sinn þátt í því. Starfsfólk þurfti ekki að leggja eins mikið á sig við sérmenntun. Eftirspurnin eftir sjarfsfólki var meiri en fra-m- boðið. Það var og víð-a mikið los í a-tvinnumálum, og rnargir V1ldu fá stóra vinninginn strax °g þá án þess að eyða tíma í sérmen-ntun. Bandarikjamenn hafa gert verzlun og viðskipti að sérstakri vísindagrein. Þessi visindagrein -er m-argþætt og margbrotin. Hún byggist þó eins og aðrar vís- indagreinar á þekkingu og s-vo sérþekkingu. Ég hef hér að framan vakið athygli á því, að ekki megi leng- ur dragast að taka verzl-unar- m-enntunina í landin-u til gagn- gerðrar endurskoðunar. Það verður að fella þess-a menntun inn í hið almenna skólakerfi. Þegar slík a-thugun fer fram, h-lýtur hlutverk Samvinnuskól- ans að koma til athugunar. Jafn-framt hlýtur að koma til athugunar, hverjum beri að standa straum af kostnaðinu-m við verzlunarmenntunina. Rík- isváldið getur vart skorið verzl- unarréksturinn niður við trog með óraunsæjum verðlags- ákvæðum o-g jafnframt ætlazt til þess, að verzlunin standi straum af menntun verzlunar- og skrifstofufólks, s-em nú fer að m-eiri hlu-ta til í störf hjá ríki, bæjarfélögum og annarri þjón- ustustarfsemi, s-em er utan verzlunar. Kostnaður Sambandsin-s af refcstri Samvinnuskólans á sl. ári var um 3y2 miljón krónur. Á sa-ma tí-ma greiddi Sa-mbandið í opinber gjöld kr. 17,1 milj. og er þá söluskattur ekki meðtal- inn. Þegar samvinnuverzlunin er pínd til tapreksturs er ea-ki óeðlile-gt, að spurningin um framtíð Sam-vinnuskólans sé of- arl-ega á baugi. Eitt er þó ljóst í þessum mál- um. Menntastofnun -eins o-g Samvinnuskólinn er þjóðinnl í heild dýrmæt. Ég hef hér aðallega rætt um verzlunarmenntunina. Hvað er þá að segja um hina féla-gslegu m-enntun, menntun, s-em -glæðir félagsáhuga og þroskar fólk til féla-gshyggju og samvinnu? Slí-k me-nntun er nauðsynleg fyrir hverja þjóð og -ekki sízt fámenn-a þjóð sem Íslendinga, er búa í harðbýlu landi n-orðu-r við yztu höf. Ég álít, að samvinnuhreyf- ingin og verfcalýðssamtökin ættu að taka höndum saman og vinn-a að slíkri menntun fyrir a-lþýðu þe-ssa lands. Þar er -göfugt verk að vinna. Að lokum vil ég árétta það, að samvinnufélögin verða að eiga þ-ess kost að sérmennta og þjálfa starfsfólk sitt. Au-kin sér- þekking er grundvöllur v-el rek- inna fyrirtækja í dag. Slík sér- menn-tun verður ekki rekin í skóla, sem staðsettur er upp í sveit. Það verða menn að gera sér ljóst. Sveitaróm-antíkin má ekki villa mönn-um sýn. Þessi sérm-enntun getur aðein-s farið fram í þéttbýlinu, Reykjavík eða Akureyri. Samvinnuskóli fram- tíðarinnar á að eiga þar heima. HLYNUR 3

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.