Hlynur - 15.03.1969, Page 13
F R E T
Frá ársfundinum. Erlendur Einarsson flytur skýrslu stjórnar.
Arsfundur Osta- og smjörsölunnar
Arsfundur Osta- og smjörsölunn-
ar s/f var haldinn þriðjudaginn 25.
febrúar s.l. að Hótel Sögu.
Formaður stjórnarinnar, Erlendur
Einarsson forstjóri, stjórnaði fundi
°g kvaddi Sæmund Friðriksson
framkv.stj. til að rita fundargerð.
í upphafi fundar flutti formaður
skýrslu stjórnarinnar og gat þess
th. a. að 10 ár væru liðin frá því
að Osta- og smjörsalan hóf starf-
Agnar Tryggvason fimmtugur
Hinn lo. febr. s.l. varð Agnar
Tryggvason framkvæmdastjóri Bú-
vörudeildar SÍS fimmtugur. Hann
hefur gegnt núverandi starfi frá
1962, en áður hafði hann verið er-
lendis á vegum SÍS um árabil, á
skrifstofum þess í New York, Kaup-
hiannahöfn og Hamborg. HLYNUR
sendir Agnari beztu hamingjuóskir.
Agnar.
semi sína, en það var hinn 1. jan-
úar 1959.
Á þessu tímabili hefur fyrirtækið
selt mjólkurafurðir fyrir 2362 milj.
kr. og heildarendurgreiðsla um-
boðslauna til mjólkurbúanna nem-
ur 46.5 miljónum króna á þessu 10
ára tímabili.
Óskar H. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri, lagði fram og skýrði
endurskoðaða reksturs- og efna-
hagsreikninga fyrir 'árið 1968 og gaf
skýrslu yfir starfsemina.
Heildarf ramleiðsla. mj ólkursam-
laganna á árinu 1968 var:
Smjör 1440 tonn
Ostur 1383 —
Nýmjólkurduft 419 —
Undanrennuduft 420 —
Kasein 378 —
Pramleiðsla á smjöri og osti jókst
nokkuð á árinu, en framleiðsla á
nýmjólkur- og undanrennudufti
dróst hinsvegar saman.
Heildarsala á smjöri á árinu varð
1024 tonn en af osti seldust 582
tonn.
Útflutningur mjólkurvara varð
hér segir:
Ostur 665 tonn
Nýmjólkurduft 376 —
Kasein 414 —
Undanrennuduft 15 —
Heildarvelta fyrirtækisins á árinu
1968 varð 388.6 miljónir króna.
Dreifingar- og sölukostnaður fyrir-
Jón
Sigurðsson
Jón Sigurðsson í Yztafelii lézt í
sjúkrahúsinu á Akureyri hinn 10.
febr. s.l. nær áttræður að aldri.
Hann var um árabil einn af helztu
forgöngumönnum samvinnuhreyf-
ingarinnar hér á landi, ferðaðist m.
a. á árunum 1924—34 um flestar
sýslur landsins á vegum SÍS og hélt
fyrirlestra um samvinnumál, og
einnig eru ritstörf hans um þau mál
bæði mikil og merk. Iier þar hæst
bókina Samvinnufélögin í Norður-
álfu og þýðingu hans á bókinni
Samvinnan á íslandi eftir Thor-
sten Odhe, auk f jölmargra greina í
blöðum og tímaritum. Samvinnu-
menn um iand allt minnast hans
að leiðarlokum með virðingu og
þakklæti.
tækisins varð á árinu 11.5 miljónir
eða 2.9%.
Endurgreidd umboðslaun til
mjólkursamlaganna fyrir árið 1968
námu krónum 6.508.332.80.
í stjórn Osta- og smjörsölunnar
eru:
Erlendur Einarsson, forstjóri, for-
HLYNUR 13