Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 9
. . . birtist sendimaður með dularfullan flatan pakka
undir hendinni.
eru hvort sem er í minnihluta, svo
að það skiptir ekki máli. Eins og
áður getur hefur Abrahamsen ver-
ið skipaður í stjórnina til bráða-
birgða, og tillaga hans um að reyna
að losa þá út með logsuðutækjum
var einróma samþykkt. Eftir að
tvö hálsbindi, einn jakki, sjö bux-
ur og fjórir vasaklútar höfðu
brennzt alvarlega, var hins vegar
hætt við tilraunina. Næsta tillaga
Abrahamsens, um að stjórnin kæmi
framvegis saman í eldvarnarklæð-
um úr asbesti, var sömuleiðis ein-
róma samþykkt.
Kristiansen verzlunarráðunaut-
ur, sem er starfandi kaupfélags-
stjóri meðan hættan stendur yfir,
hefur og fengið fyrirmæli um að
tvöfalda innkaupin af svitalyktar-
meðulum.
Síðustu fréttir
Tillaga frá Kristiansen um að
nota dínamit var einróma felld, en
aftur á móti var næstu tillögu hans,
um að nota hamar og meitil, ekki
óvingjarnlega tekið. Eftir stuttar
umræður var samþykkt að reyna
þá aðferð, þ. e. a. s. með því skil-
yrði, að byrjað yrði í því horninu,
þar sem Abrahamsen var. Þegar
málin tóku þessa stefnu, brá hins
vegar svo við, að Abrahamsen
gerði eitthvað, svo að „kassinn"
opnaðist skyndilega eins og slegið
hefði verið á hann með töfrasprota.
Þetta leiddi til þess, að vaknað hef-
ur ákveðinn grunur um, að Abra-
hamsen hafi sett þetta allt saman
á svið til þess eins að fá sæti í
stjórninni. Eins og stendur er mál-
ið í rannsókn.
NOKKUR SÖLURÁÐ
1. tillaga: Hvernig væri að reyna
að ná samstarfi við skattayfirvöld-
in í sambandi við söluherferðir
okkar? Við gætum þá fengið að
leggja auglýsingamiða um sérstök
verðlækkunartilboð verzlunarinnar
með í umslögin, sem skattseðlarnir
eru sendir út í.
2. tillaga: Yfir veturinn verðum
við að vera vakandi fyrir þeim
möguleikum, sem felast í því að
sprauta vatni á gólfið í verzluninni
og láta það frjósa þar. Með því
móti næst það, að viðskiptavinirnir
verða valtir á fótunum. Þar að auki
getum við sett upp skilti á áber-
andi stöðum í búðinni, sem á
stendur „ísinn er veikur.“ Það
gerir viðskiptavinina ekki aðeins
valta á fótunum, heldur einnig
órólega og jafnvel hrædda. Með
slíkt getum við verið ánægðir, því
að hræddum viðskiptavinum er
auðvelt að selja. Líka er gott að
láta sannleika leynast að baki
áletrananna „ísinn er veikur." Það
gerum við þannig, að við höfum
aðeins þunnt íslag yfir kjallaralúg-
unni, sem höfð er opin. í kjallaran-
um er svo komið fyrir þeim vörum,
sem hafa hægastan veltuhraða, því
að þeir sem detta niður eru vafa-
laust langbeztu viðskiptavinir okk-
ar.
3. tillaga: Segulmögnun er fyrir-
bæri, sem við verðum að læra að
hagnýta okkur. Ef sterkum segul-
stálum er komið fyrir á mikilvæg-
ustu stöðunum í búðinni, er hægt
að ná ótrúlegustu áhrifum. Bezt er
einnig að segulmagna innkaupa-
vagnana líka, svo að það smelli
rækilega í, þegar viðskiptavinirnir
hendast inn á mikilvægustu sölu-
svæðin.
4. tillaga: Þegar ávaxtasöluher-
ferðir standa yfir, er það áhrifarík
söluaðferð að strá bananahýði á
gólfin. Áberandi skiltum með sölu-
slagorðum skal komið fyrir í neðstu
hillunum, og hugsanlegt er að
skipuleggja sérstakt kerfi tilboða,
þannig að viðskiptavinirnir fái því
hagstæðari kjör, því oftar sem
þeir detta kylliflatir á gólfið.
HLYNUR 9