Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 14
VÍR 6ÁRÐS JSStSTESm
1968 - 1970
32°/o inníánsaukrLLng
Sænskir gestir
Dagana 30. marz til 4. apríl dvöld-
ust hér á landi 12 Svíar frá Vár
gárd, sænska samvinnuskólanum,
til að kynna sér íslenzkt samvinnu-
starf cg efnahagslíf. Áttu þeir fundi
með Erlendi Einarssyni forstjóra
SÍS og Guðmund'i Magnússyni
prcíessor, heimsóttu aðalstöðvar
Sambandsins og Samvinnutrygg-
inga í Reykjavík, Samvinnuskól-
ann að Bifröst, Kaupfélag Borg-
firðinga í Borgarnesi, Mjólkurbú
Flóamanna á Selfossi, fiskvinnslu-
stöðvar Sambandsins í Þorlákshöfn
cg eyddu einum degi á Akureyri,
þar sem þeir skoðuðu allar verk-
smi-ðjur Sambandsins cg KEA. Þess-
ir 12 ungu Svíar eru að ljúka fram-
haldsnámskeiði í Vár gárd og taka
síðan við ábyrgðarstörfum hjá
sænsku samvinnuhreyfingunni víðs
vegar um Svíþjóð. Var heimsóknin
til íslands liður í námskeiðinu, en
áður höfðu þeir dvalizt vikutíma
í Skotlandi cg kynnt sér skozkt
samvinnustarf. í þakkarbréfi, sem
Fræðsludeild SÍS hefur borizt, láta
þeir mjög vel af dvölinni hér og
biðja fyrir kærar kveðjur til allra
sem greiddu götu þeirra og voru
á annan hátt hjálplegir, meðan
þeir stóðu hér við.
Aðalfundur Sam-vinnubankans
var haldinn laugardaginn 11. apríl
s.l. Fundarstjóri var kjörinn Ásgeir
Magnússon, framkvæmdastjóri, en
fundarritari Pétur Erlendsson,
skrifstofustjóri. var fundurinn fjöl-
sóttur.
Erlendur Einarsson, forstjóri,
fcrmaður bankaráðs, flutti skýrslu
um starfsemi bankans, hag hans og
afkomu á síðasta ári, cg kom þar
fram, að mikill vöxtur var í allri
starfsemi bankans og að aukning
innstæðna varð mjög mikil.
Kristleifur Jónsson, bankastjóri,
lagði fram endurskoðaða reikninga
bankans fyrir árið 1989 og skýrði
þá.
Heildarinnlán i Samvinnubank-
anum námu í árslok 661,2 milj. kr.
cg höfðu aukizt um 160,1 milj. kr.
eða um 32%. Mest varð aukningin í
sparisjcðsdeild bankans eða 119,5
milj. kr. Veltiinnlán hækkuðu um
40,6 milj. kr.
Heildarútlán bankans námu í
árslok 494,5 milj. kr. cg höfðu auk-
izt um 57,4 milj. kr. á árinu. Út-
lánin námu um 75% af heildarinn-
lánum.
Innstæður í Seðlabankanum
námu i árslok samtals 165 miíj. kr.
Tekjuafgangur, áður en afskrift-
ir fóru fram, nam kr. 3.021.020.00.
Til afskrifta var varið kr. 905.856.00,
en í sjóði voru lagðar kr. 2.116.164.00.
Fjöldi viðskiptareikninga við
bankann var 25.100 í árslok, og
hafði þeim fjölgað um 2500 á árinu
Nýr iþáttur í starfsemi bankans
var hafinn á árinu, en það var lán
út á birgðir landbúnaðarafurða. í
árslok námu slík lán kr. 28,4 milj.
Endurkaup Seðlabankans vegna
slíkra 'ána voru kr. 25,1 milj.
Bankinn starfrækti útibú á 9
stöðum úti á landi, á Akranesi,
Grundarfirði, Patreksfirði, Sauðár-
króki, Húsavík, Kópaskeri, Stöðv-
arfirði, Keflavík og Hafnarfirði.
Útibúið í Hafnarfirði flutti í nýtt
húsnæði -á árinu, að Strandgötu 11.
Á þessu ári hefur verið opnað útibú
í Vík í Mýrdal.
í bankaráð voru endurkjörnir
þeir Erlendur Einarsson, forstjóri,
formaður, Hjörtur Hjartar, fram-
14 HLYNUR