Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 12

Hlynur - 15.05.1970, Blaðsíða 12
Endurgreiddu rúmar 6 miljónir Frá aðalfundum Samvinnutrygginga og Andvöku Aðalfundir Samvinnutrygginga og Andvöku voru haldnir að Hvols- velli hinn 8. maí s. 1. Fram kom þar, að unnt reyndist að endur- greiða í tekjuafgang af iðgjöldum ársins 1939 samtals kr. 6.001.000,00, og nema þá heildarendurgreiðslur Samvinnutrygginga frá upphafi rúmum 74 milj. kr. í hófi að fund- unum loknum var verðlaunagripur Samvinnutrygginga, Silfurbíllinn, afhentur í annað skipti, og hlaut hann Lýður Jónsson fyrrv. yfir- vegavinnuverkstjóri á Vestfjörð- um. í upphafi fundar minntist stjórn- arformaður Samvinnutrygginga og Andvöku, Erlendur Einarsson for- stjóri, Þorsteins Árnasonar vél- stjóra, sem lézt hinn 23. marz s. ). og var um margra ára skeið trún- aðarmaður Samvinnutrygginga varðandi sjótjón og viðgerðir skipa. Risu fundarmenn úr sætum í virð- ingarskyni við hinn látna. í skýrslu stjórnarformanns kom það m. a. fram, að heildariðgjalda- tekjur Samvinnutrygginga árið 1969 urðu kr. 360.202.087,00 og höfðu þær aukizt um kr. 84.024,- 694,00 eða 30,42% frá árinu áður. Gat hann þess, að hér væri um að ræða mestu aukningu í krónu- tölu á einu ári frá upphafi starf- semi félagsins, en hún stafaði bó m. a. af breytingum á gengi ís- lenzku krónunnar. Um aukningu væri þó að ræða í öllum trygg- ingagreinum, sem væri tiltölulega mest í sjótryggingum og endur- tryggingum frá öðrum félögum eða í þeim greinum þar sem áhrifa gengisbreytinganna árin 1967 og 1968 gætti mest. Heildartjón Sam- vinnutrygginga, greidd og ógreidd, hefðu á árinu numið kr. 271.343.- 309,00, og hefðu þau hækkað um kr. 53.234.191,00 eða 24,41% frá fyrra ári. Tjónaaukning hefði orð- ið í öllum tryggingaflokkum nema sjótryggingum, en tjónaprósentan næmi 75,33 á móti 78,97% árið 1968 og 81,59% árið 1967, svo að hún væri heldur hagstæðari en undanfarin ár. Heildariðgjalda- tekjur Andvöku hefðu numið kr. 5.003.236,00, sem væri aukning um kr. 839.054,00, og af þessari upp- hæð væru kr. 400.220,00 iðgjöld af hóplíftryggingum. Almennur rekstrarkostnaður Samvinnutrygg- inga hefði og aukizt nokkuð á ár- inu, enda hefðu orðið verulegar hækkanir á launagreiðslum og þeirri þjónustu, sem félagið þarf að kaupa vegna reksturs síns. í prósentum hefði kostnaðaraukn- ingin orðið 33,02%, en miðað við iðgjöld væri kostnaðarprósentan á árinu 1969 12,78% á móti 12,53% árið 1968. Reksturskostnaður And- vöku hefði og aukizt um 33,2% og kostnaðarprósenta líftryggingafé- lagsins hefði miðað við iðgjöld orðið 38,5% á móti 34,7% árið 1968. Þá hefði reynzt unnt að end- urgreiða nokkurn tekjuafgang af iðgjöldum Samvinnutrygginga fyr- ir árið 1969, eða samtals kr. 6.001.000,00, en með þeirri endur- greiðslu hefði félagið samtals end- urgreitt til tryggingataka frá því að slík endurgreiðsla hófst árið 1949 kr. 74.134.236,00. í árslok 1969 hefðu tjóna- og iðgjaldasjóðir Samvinnutrygginga samtals numið 390 milj. kr., en að frádregnum hluta endurtryggjenda í ógreidd- um tjónum hefðu eigin sjóðir fé- lagsins samtals numið 304,7 milj. kr. á móti 272,2 milj. kr. í árslok 1968. Af tekjum Andvöku árið 1969 hefðu 1.610.000,00 verið lagð- ar í Tryggingarsjóð, sem í árslok hefði numið kr. 34.340.000,00, og kr. 490.000,00 hefðu verið lagðar í Bónussjóð, sem í árslokin hefði numið kr. 4.308.652,00. Margt fleira kom fram í skýrslu stjórnarfor- manns, m. a. gat hann um stofnun Brunamálastofnunar ríkisins, sem stofnsett hefði verið frá seinasta aðalfundi tryggingafélaganna, og einnig gerði hann grein fyrir fast- eignum félaganna og breytingum, Frá aðalfundinum. Erlendur Einarsson t rœðustól. 12 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.