Hlynur - 15.12.1972, Síða 4

Hlynur - 15.12.1972, Síða 4
og í framhaldi af þessum, sem sömuleiðis gefa innsýn í liðna tíð og svo hljóða: „Item skal maður þekja hús og mælir, að 26 smátorfur fari báðumegin á rishæðina, en 54 á húslengdina, hvað margar þarf þá á húsið allt? Svar: 1404, sem eg finn með þvi að leggja saman 1080 (er standa i öðrum dálki töflunnar niður frá 54, en út- undan 20) og 324 ( er standa niður undan 54, en út frá 6). Þegar svo stendur á, að reikna þarf fleiri en eitt hundrað, til dæmis hvað margt sé 18 sinnum 500, þá þarf einungis að fletta upp, hvað margt sé 18 sinnum 5 eða 5 sinnum 18, sem er 90, og bæta svo þar við endann tveim- ur óum, sem heyra hundraða tölunni, og verður þá summan 9000. Eins t. d. er það, gangi önnur talan yfir nokkur hundruð og mann girnir að vita, hvað margt sé t. d. 22 sinnum 345, þá flettir maður upp 22 ofan til og 3 í fremsta dálki og finnur það gjör- ir 66, sem verða 6600 að viðsett- um tveimur óum, þarnæst er leitað að 45 og 20 eins og fyrr, sem gjöra 900, og þá að 45 og 2, er gjöra 90, og nær þessar summ- ur eru samanlagðar: 6600 900 90- verður upphæðin 7590.“ Ef einhverjum finnst málfarið á þessum textum snúið og forn- eskjulegt, er á það að benda, að hér er um að ræða venjulegt rit- mál þeirra tíma, en í þvi sam- bandi má hafa í huga, að þetta er skrifað fyrir þá endurreisn is- lenzkrar tungu sem varð á fyrra helmingi síðustu aldar, einkum fyrir tilverknað kennaranna við Bessastaðaskóla og nemenda þeirra. Taxtaskipun Þá skal vikið að kauptaxtatil- skipun þeirri, sem einnig er í bókinni, en þar er margan skemmtilegan fróðleik að finna varðandi verðlag á þessum tima, en þó ekki síður um hitt, hvaða vörur hafa þá einkum verið fluttar til landsins og tilheyrt daglegum lífsnauðsynjum þess- ara forfeðra okkar. í taxtaskipuninni eru vörurn- ar taldar upp í stafrófsröð, og verða hér taldar nokkrar þær vörutegundir, sem forvitnileg- astar má telja. Almanök eru seld á 3 skildinga hvert, 120 tinaðir önglar á 49 skildinga og jafn- margir öngultaumar á 26 skild- inga. Blekbyttur úr horni eru á 10 skildinga hver, og borðar, „breiðir af flygjeli" á 15 skild- inga álnin, „sömu meðalmáta" eru á 13 skildinga og „sömu mjó- ir“ á 12 skildinga. „Gull- og silfurborðar, óekta“ eru hins vegar ódýrari, eða frá 5 og upp i 10 y2 skilding álnin eftir breidd. í taxtanum er og talið það sem nefnt er „bestillt góss fyrir 100 rd.“, sem verðlagt er á 128 rd., og virðist það eiga við sér- pantaðar vörur, sem þá hafi átt að selja með 28% álagningu. Einnig er þarna nefnt „brennu- vín af korni, til 4 grad.“, sem er á 13 skildinga potturinn, en — Já, en mamma, þetta eru ekki ó- hreinindi, þetta er olía! sama „franskt“ er á 21 skild- ing. „Byssupúður, pólerað“ er á 51 skilding pundið, og „sama, ópólerað" á 31 skilding. Ekki má heldur gleyma kaffinu, en „caffe-baunir“ eru á 32 skildinga pundið. „Ertur“ eru á 4 rd. 4 sk. tunn- an, fingurbjargir á iy2 sk. stykk- ið og flöskur á 3>/2 — 5 sk. eftir stærð. „Gleraugu, almennileg með leðurhulstri“ eru á 19 sk. parið, en „með tréhulstri“ á 7 sk. „Grjón, bókhveiti" eru á 6 rd. 12 sk. tunnan, bygggrjón á 6 rd. 20 sk. og hafragrjón á 6 rd. 51 sk. „Hattar, einn almennileg- ur mannshattur með fóðri og bandi“ er á 52 sk„ „sami með svitarönd" er á 45 sk. og „drengja- eða barnahattur" er á 41 sk. „Katlar af eiri, bestillt- ir“ eru á 51 sk. og miðað við að þeir taki pund, og „kistur með skrá og lömum, 9x/2 quart. lang- ar utan á lokinu, 4 quart. breið- ar og 4 quart. djúpar undir lok- ið“ eru á 4 rd. 56 sk„ en „sömu með skrá og lömum, 6 quart. langar á lokinu, 3 quart. breiðar, 15-16 þumlunga djúpar“ eru á 2 rd. 28 sk. stykkið. Þá eru nefndir margs konar hnappar og hnifar, þar á meðal „borðknifar, beinskeftir með göffulum", og er parið á 20 sk. 4 HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.