Hlynur - 15.12.1972, Síða 6

Hlynur - 15.12.1972, Síða 6
Sigurður Markússon frkvstj.: Mánaðar- leg uppgjör hjá kaupfélög- unum Grein þessi er að stofni til samhljóða erindi, sem höfundurinn flutti á kaup- félagsstjórafundinum nóv. s. I. Sú tíð er sem betur fer liðin, þegar litið var á bókhald fyrir- tækja sem illa nauðsyn, er gegndi því hlutverki einu að full- nægja tilteknum kröfum, sem skattayfirvöld lögðu mönnum á herðar. Meðan þessi skilningur var ríkjandi, voru reikningsskil gerð einu sinni á ári, og voru þá að jafnaði liðnir nokkrir mánuðir af næsta ári, þegar endanlegur ársreikningur fyrra árs lá fyrir. Þetta þýddi m. ö. o., að liðnir voru hvorki meira né minna en 14 til 17 mánuðir frá upphafi reikningstímabilsins, þegar fyrir lágu endanlegar nið- urstöður um rekstrarafkomu og hag fyrirtækjanna. Þegar hér var komið sögu, var liðinn fjórð- ungur, þriðjungur eða jafnvel meira af næsta reikningsári, en upplýsinga um árangur þess ekki að vænta fyrr en eftir um það bil 12 mánuði. Þannig gekk þetta frá ári til árs, og afleiðingin var að sjálfsögðu sú, að upplýsingar þær, sem bókhaldið lagði stjórn- endum fyrirtækj anna í hendur, höfðu lítið annað en sögulegt gildi; ráðstafanir þær, sem þeir hlutu að gera sem stjórnendur, urðu þeir að bvggja á einhverju öðru en bókhaldslegum upplýs- ingum um reksturinn. Eins og begar var fram tekið, er betta liðin tíð. Svo tekið sé dæmi af kaunfélögunum, þá má fullyrða, að hjá mörgum þeirra er gert unp brisvar á ári, t. d. eftir 6, 9 og 12 mánuði. Og dæmi eru bess, að kaupfélög geri mán- aðarlegt rekstrar- og efnahags- yfirlit, a. m. k. frá miðju ári og til ársloka. Hiá Sambandinu sjálfu hafa um nokkurra ára skeið verið gerð mánaðarleg rekstrar- og efnahagsyfirlit, og hjá ýmsum dótturfyrirtækium Sambandsins hefur lengi verið lögð áherzia á ýtarleg bráða- birgðauppgjör, a. m. k. á þriggja mánaða fresti. Þrátt fyrir verulegar framfarir í þessu efni, er því ekki að levna, að hjá mörgum kaupfélögum skortir mikið á, að bókhald fé- laganna sjái stjórnendum þeirra fyrir þeim upplýsingum, sem þeim eru nauðsynlegar og þeir eiga heimtingu á. Ég vil fullyrða, að þar sem þessum málum er ábótavant, þá er á- stæðan að jafnaði ekki sú, að stjórnendur félaganna skorti skilning á málinu. Við, sem á einhvern hátt störfum með kaupfélagsstjórunum að bók- haldsmálefnum félaganna, verð- um áþreifanlega varir við, að þessi skilningur er fyrir hendi. Hitt er svo annað mál, að víða eru kaupfélagsstjórarnir það fá- liðaðir, að hvorki þeir né sam- starfsmenn þeirra eiga þess nokkurn kost að sinna þessum málum sem skyldi. Okkur hefur því þótt ómaksins vert að gera á því sérstaka könnun, hvort ekki væri hægt að leysa þennan vanda með auk- inni vélanotkun, og mér þykir vænt um að geta nú skýrt frá því, að niðurstöður þessarar könnunar eru jákvæðar. Það er skoðun okkar, að með tiltölu- lega lítilli viðbótarvinnu sé hægt að láta kaupfélögunum mánað- arlega í té upplýsingar um meg- inbætti rekstrarins, svo og mán- aðarlegt efnahagsyfirlit. Rann- sóknir okkar hafa leitt í ijós, að mini-tölvur Birgðastöðvar eru sérlega vel til þess fallnar að vinna þessi mánaðarlegu upp- gjör. Segja má, að það efni, sem tölvurnar vinna úr, eigi sér þrí- þættan uppruna: (1) Tölur úr saldolistum yfir- standandi árs fyrir það tímabil, sem uppgjörið tekur til. (2) Samanburðartölur frá sama tímabili fyrra árs; þær eru fengnar úr saldo- listum þess árs fyrir þann mánuð, er um ræðir. (3) Samanburðartölur úr end- anlegum ársreikningi fyrra árs. Þess ber að geta, að uppgjörs- kerfi þetta er sniðið eftir kring- umstæðum þeirra kaupfélaga, sem fá bókhald sitt unnið hjá 6 HtTNU*

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.