Hlynur - 15.12.1972, Page 10
Mynd 5
Efnahagsyfirlit 9 mán. 1971/1972 FjárhæSir í 1. ooo kr.
Fastafjármunir 30. sept. 1971 1. janúar 1972 30. sept. 1972 Breyting frá fyrra ári Breytinf ; frá 1. janúar
Hækkun Lækkun Visit. Hækkun Lækkun Visit.
Fasteignir 4.120 3.984 4. 521 401 - 110 537 113
BifreiÖir 1.620 1.218 1.945 325 - 120 727 160
Innréttingar 2.186 1.865 2.270 84 - 104 405 122
Samtals 14.125 14.438 15.166 1. 041 107 728 - 105
(K) (H) (K) (H) (R) (R) (R) (R) (R) (R)
Langtímalán sem
% af fastafjármunum 82. 5 83. 6 78. 8
(K) (R) (R) (R)
Lokaorð
í uppgjörskerfi því, sem hér
hefur að nokkru verið lýst, er
ekki svo mjög hirt um að tíunda
smáatriði, en þeim mun meiri
áherzla lögð á að fylgjast með
meginþáttum rekstrarins. Þessir
þættir eru óumdeilanlega salan,
launin og birgðahreyfingar. Það
er kunnara en frá þurfi að segja,
að rekstrarfjármagn er af mjög
skornum skammti; einmitt með
tilliti til þess viljum við leggja
sérstaka áherzlu á, að stjórn-
endum félaganna sé gert kleift
að fylgjast með birgðahreyfing-
um, en víða hefur mjög skort á
að til þessa væri viðunandi að-
staða.
Efnahagsyfirlitið er tiltölulega
ýtarlegt, og er það vel. Máltækið
segir „spyrjum að leikslokum“,
en með nokkrum rétti má halda
því fram, að í efnahagsreikningi
fyrirtækisins birtist endanleg
spegilmynd afkomunnar.
Við erum nú tilbúnir að hefja
þessi mánaðarlegu uppgjör fyrir
öll kaupfélög, sem láta færa bók-
hald sitt í Skýrsluvéladeild Sam-
bandsins, og er það von okkar
að hér skerist enginn úr leik. Við
erum að sjálfsögðu einnig reiðu-
búnir til samvinnu við þau félög,
sem færa bókhald sitt heima,
en hafa hug á að kanna þetta
mál nánar.
Það er að sjálfsögðu til lítils
að vinna úr þeim upplýsingum,
sem hér hefur verið fjallað um,
sé bókhaldið ekki sæmilega rétt
frá mánuði til mánaðar, og þess
vegna vonum við, að tilkoma
þessara mánaðarlegu uppgjöra
verði stjórnendum og starfs-
mönnum félaganna hvatning til
þess að halda bókhaldinu í við-
unandi lagi. Einkum er þýðing-
armikið, að skilin á milli mán-
aða séu glögg, og að ekki vanti
neinar færslur, sem verulegu
máli skipta, þegar mánuðinum
er lokað.
Mörg félaganna, og vonandi
sem flest þeirra, munu vilja gera
betur, t. d. með því að gera full-
komin reikningsskil ársfjórð-
ungslega og er ljóst, að hin mán-
aðarlegu uppgjör munu mjög
auðvelda það verk og flýta fyrir
framkvæmd þess.
Margir kaupfélagsstjóranna
munu viðhafa þann góða sið að
ÍO HLYNUR