Hlynur - 15.12.1972, Síða 13

Hlynur - 15.12.1972, Síða 13
meistari Helgi Guðmundsson, mál- arameistari Páll Wium og rafvirkja- meistari Magnús Gissurason. um hreinlæti og hollustuhætti. Þannig eru öll gólf flísalögð og sömuleiðis veggir upp í tveggja metra hæð. Öll loft eru klædd ál- plötum, fullkomin loftræsting er í stöðinni og hægt að ráða hitastigi í hverjum vinnslusal eftir því sem að- stæður krefjast. Allar teikningar af Kjötiðnaðar- stöðinni hafa verið gerðar á Teikni- stofu Sambandsins, en forstöðumað- ur hennar er Gunnar Þ. Þorsteins- son. Húsasmíðameistari hefur verið Óskar Eyjólfsson, múrarameistari Magnús Árnason, pipulagninga- Yfirsýn yfir verzlun KRON við Norðurfell. nú sem óðast að flytja í ný og stór fjölbýlishús. Verður hverfið því inn- an tíðar orðið mjög fjölmennt. Hinni nýju verzlun var strax í upp- hafi mjög vel tekið af fólki þama í hverfinu, enda bætti hún úr brýnni þörf, og þegar fyrsta dag- inn var verzlað þar fyrir 550 þús. krónur. Kjötiðnaðarstöðin tekin formlega í notkun Kjötiðnaðarstöð Búvörudeildar Sambands ísl. samvinnufélaga á Kirkjusandi í Reykjavík var form- lega tekin í notkun hinn 20. nóv. s.l. Verða þar framleiddar allar venju- legar kjötiðnaðarvörur, en hins veg- ar lögð áherzla á að auka mjög fjölbreytni þeirra. Hafa þegar ver- ið sendar á markaðinn nokkrar nýj- ar áleggs- og steikarpylsur, en allar kjötiðnaðarvörur stöðvarinnar verða seldar undir vörumerkinu „GOÐI“. Annað vörumerki, „GYÐJA“, verð- ur notaður á niðursoðið grænmeti og ýmis konar sósur frá stöðinni. Þá hefur Sambandið á undanförn- um árum gert margar tilraunir með útflutning á stykkjuðu dilkakjöti í neytendaumbúðum, þ. e. lærum, hryggjum og bógum, og með til- komu stöðvarinnar er vonazt til, að hægt verði að auka þennan útflutn- ing, miðað við að betri nýting fáist út úr öðrum hlutum skrokksins. í stöðinni er að finna ýmis konar tækninýjungar í sambandi við vinnslu kjötvara, en hún er byggð í samræmi við ströngustu kröfur Kaupfélagsstjórafundur Hinn árlegi kaupfélagsstjórafund- ur var að þessu sinni haldinn að Hótel Sögu í Reykjavík 24. og 25. nóv. s. 1. Sóttu hann velflestir kaup- félagsstjórar landsins og auk þess framkvæmdastjórn og ýmsir starfs- menn Sambandsins. Pyrri fundardaginn flutti Erlend- ur Einarsson forstjóri yfirlitserindi um hag Sambandsins og rekstur þess fyrstu níu mánuði yfirstand- andi árs. Þá flutti Halldór E. Sig- urðsson fjármálaráðherra ávarp og svaraði fyrirspurnum fundannanna, og loks flutti Sigurður Markússon frkvstj. erindi um mánaðarleg upp- gjör fyrir kaupfélögin. Síðari fundardaginn flutti Vil- hjálmur Jónsson frkvstj. erindi um olíuverzlun samvinnufélaganna, og Kristleifur Jónsson bankastjóri um Samvinnubankann. Einnig voru á dagskrá mál frá landsfjórðunga- fundum kaupfélagsstjóra, skýrsla Markaðsráðs og loks sátu forstjóri og framkvæmdastjórar Sambands- ins fyrir svörum. Um kvöldið bauð Sambandið kaupfélagsstjórunum og konum þeirra til kvöldverðar og skemmtun- ar að Hótel Sögu, en fyrr um dag- inn höfðu konur fundarmanna þegið heimboð frú Margrétar Helgadótt- ur að Selvogsgrunni 27. Úr Kfötiðnaðarstöðinni. HLYNUR 13

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.