Hlynur - 15.08.1979, Blaðsíða 17
Til vinstri er Matthías Pétursson að slíta þessu fjórða þingi LÍS og óska mönnum góðrar heimferðar og til hægri eru
Akureyringar og fleiri á heimleið. Margir þingfulltrúa frá Akureyrarfélögunum hafa tekið maka sína með á LÍS-þing og
svo var einnig að þessu sinni.
skoðanakannana, þó þannig, að hvert starfsmannafélag
geti bætt við könnunarformið spurningum, er varða
einstök starfsmannafélög.
Upplýsingarit um starfsmannafélagið, LÍS og
samvinnuhreyfinguna.
Pað er álit þingsins, að stjórnendur LÍS ættu að vera
í nokkuð reglulegum tengslum við starfsmannafélögin
og aðstoði félögin við félagsleg málefni, s. s. að efna
til verkefna, sem bæði efldu félagsandann og gæfu
starfsmannafélögunum jafnframt tekjur í aðra hönd.
Auka mætti kynni með því að útbúa upplýsingabréf
eða bækling með helstu upplýsingum um starfsmanna-
félagið, LlS og samvinnuhreyfinguna ásamt nauðsynleg-
um upplýsingum um réttindi og skyldur starfsmanns-
ins. Pessum upplýsingum yrði dreift til núverandi
starfsmanna og til nýrra starfsmanna við ráðningu.
f> Stjórnarmenn samvinnufélaga sitja of lengi.
Stjómarmenn kaupfélaga sitja yfirleitt of lengi, jafft-
vel ævilangt. Pingið telur nauðsyn á örari endurnýjun
og mætti setja ákvæði um setutíma.
Einnig á þetta við um þau fyrirtæki, sem rekin erft
með hlutafélagsformi í eigu kaupfélaganna og Sam-
bandsins, þar sem sami maður situr í stjórn margra
fyrirtækja ámm og áratugum saman og engin eða lítil
endurnýjun á sér stað.
Félagsmenn kaupfélaga óvirkir.
Þingið telur, að hinn almenni félagsmaður kaupfélag-
anna sé ákaflega óvirkur og gera þurfi átak í því að
V fera félagsmenn og stjórnendur nær hverjum öðrum.
Framleiðslusamvinnufélög gœtu gert fólk virkara.
Benda má á, að framleiðslusamvinnufélög gætu breytt
þessari mynd framtíðarinnar, einkum í sambandi við
framleiðslu og fullvinnslu verðmæta úr íslenskum hrá-
efnum s. s. landbúnaðarafurðum t. d. í skinnaiðnaði.
Stórauka þarf fræðslu starfsfólks í Iðnaði.
Pingið telur þörf á menntun eins og þeirri, sem
Samvinnuskólinn veitir og telur hann vera á réttri
braut í sambandi við samvinnufræðslu.
Aftur á móti telur þingið að gera þurfi stórátak í
fræðslu og menntun á því fólki, sem beina á út í iðn-
aðinn. Einkum er þörf á námsbrautum við fjölbrauta-
skólana, sem stefna að þessu marki.
Samvinnuhreyfingin aðlaðandi fyrlr börn.
Pingið telur æskilegt, að samvinnuhreyfingin reyni að
Iaða til sín börnin, bæði með samvinnufræðslu á rétt-
um stöðum og búa þeim þau skilyrði í starfi, menntun
°g leik, að þau þurfi ekki að tileinka sér skoðanir sem
leiða til ádeilna á samvinnustefnuna í framkvæmd.
Betri þjónusta — betri samvinnufélög.
Gagnrýni, sem beint er gegn samvinnuhreyfingunni
telur þingið best svarað með hvatningu til sérhvers
samvinnustarfsmanns um að auka kröfugerð til sjálfs
stn um enn betri störf, þannig að öll þjónusta innt af
höndum fyrir samvinnuhreyfinguna, verði sjálfvirkt svar
til þeirra, sem telja sér skylt að reka hornin í sam-
vinnusamtökin. Menn skyldu vera minnugir þess, að
ekkert fyrirtæki er betra en þeir, sem stjórna því og
vinna við það.
HLYNUR 17