Hlynur - 15.08.1979, Blaðsíða 24
Til vinstri eru þeir, Þorsteinn Máni Árnason fararstjóri og Arleif Fiskvík bílstjóri. Til hœgri eru þau hjónin, Aðalsteinn
Björnsson og Jóhanna Árnadóttir við stýrið á því fræga fleyi, Fram.
Pegar heim á tjaldstæði kom,
fengum við (gamla húsið) mjög
rúmgott eldhús og stofur og héldum
við meiri háttar kvöldvöku í til-
efni dagsins.
í Osló.
Komum til Oslóar kl. 19.30,
mánudaginn 18. júní og tjölduðum
á Egebergs-tjaldstæðinu í ægifögru
umhverfi og besta veðri sem hugs-
ast getur. Við Egebergs-tjaldstæðið
eru sex knattspyrnuvellir, hlið við
hlið á feikistórri og eggsléttri flöt.
Var gaman að horfa á leiki á kvöld-
in. sem tjaldgestir gátu notið að
vild.
Næstu tvo daga var dvalið í
Osló í besta veðri og farið í margar
skoðunarferðir, m. a. í Bygdöy-
söfnin (farkostirnir Fram, Kontiki
og Ra), í Vigelands-garðinn, Holm-
enkollen, konungshöllina, dvragarð-
inn og að sjálfsögðu gengið um
Karl Jóhanstræti.
Fimmtudagur 21. júní.
Sama veðurblíðan. Brottför var
ákveðin kl. 11.00, — en einn
ferðafélaginn reyndist týndur og var
því gerð umfangsmikil leit að hon-
um. Kl. 14.30 var lagt af stað og
höfðu þá sendiráð og lögregla tekið
að fullu að sér mál ,,ferðalangs“.
Ekið um fagrar sveitir í átt til
Guðbrandsdals. I Gjörvik var farið
í kaupfélagið og keyptur kostur.
Síðan ekið til Lille-Hammer og þar
skoðað eitt fullkomnasta byggða- og
alhliða iðnþróunarsafn í heimi. Loks
var ekin stutt leið á tjaldstæðið við
Hundafossa og við hjónin fengum
okkur hús með öllum hugsanlegum
þægindum.
Föstudagur 22. júní.
Engar fréttir frá Osló. Lagt af
stað kl. 11.00 í mildu sólarlitlu
veðri. Ekið norður Guðbrandsdal
til Otto og þaðan til Lom. Par
keyptur kostur og skoðuð gömul,
falleg kirkja. Skammt frá Lom er
Bismo-tjaldstæðið, sem gista átti á,
ef allt hefði farið fram eftir áætlun
daginn áður.
Nú hækkar landið mjög ört, enda
komin hátt upp í Dofrafjöll. Ár
Til vinstri eru þrír upprennandi fótboltamenn þeir, Davið og Magnús Héðinssynir og Björn Aðalsteinsson. Til hægri skáldið
í hópnum, Aðalbjörn Úlfarsson frá Höfn.
24 HLYNUR