Hlynur - 15.08.1981, Qupperneq 34
Froð-
leiks-
homið
• Pað hrukku ýmsir við á dögunum (var það ekki 17. júní?),. þegar
nokkrum vegfarendum var gerður sá ógreiði að svara því, hver Jón
Sigurðsson hefði verið og urðu svör á ýmsa lund. Söguþjóðin reyndist
sem sé ekki sterk á svellinu. En hvernig skyidi ástandið vera í sam-
vinnufræðunum? Ekki vill Hlynur taka þátt í því að láta menn gata
fyrir alþjóð, en hver getur fengið að reyna sig.
Veistu eða veistu ekki?
1. Hvar var fyrsta kaupfélagið stofnað hér á landi?
2. Hvar og hvenær var fyrsta félag samvinnustarfsmanna stofnað?
3. Hvð þýðir skammstöfunin FDB?
4. Hvað var Sambandið kallað við stofnun þess árið 1902?
5. Hver var fyrsti framkvæmdastjóri Véladeildar SÍS?
6. Hvað hét fyrsta Sambandsskipið og hvenær kom það til landsins?
7. Hvað þýðir skammstöfunin OTK?
8. Hver var fyrsti formaður Starfsmannafélags SÍS?
9. Hvar starfaði Kaupfélagið Ingólfur?
10. Hvaða kaupfélag rekur verslunarútibú við Goðafoss?
11. Hvaða aðili gaf fyrstur út Hlyn og hvaða ár?
12. Hvað eru mörg starfandi kaupfélög nefnd eftir firði?
13. Og hvað eru mörg kaupfélög kennd við nes?
14„ í eigu hvaða kaupfélags er skuttogarinn Ljósafell?
15. Hvaða ár fluttist Samvinnuskólinn að Bifröst?
Svör á bls. 38.
Úr samvinnusögunni
Petta bar við árið 1951:
t. Benedikt Gröndal tók við ritstjórn Samvinnunnar af Hauki Snorra-
syni og útgáfan fluttist frá Akureyri til Reykjavíkur.
2. Friðja Sambandsskipið, Jökulfell, kom til landsins í heimahöfn á
Reyðarfirði, 22. apríl.
3. Samvinnan efndi til smásagnakeppni og 196 sögur bárust, eftir
170 höfunda. I. verðlaun hlaut sagan „Blástör", eftir Indriða G.
Þorsteinsson og verðlaunin voru ferð með Sambandsskipi til Mið-
jarðarhafsins.
í tilefni af þessari verðlaunaveitingu varð til þessi vísa:
Blá er Blástararsagan
blár er höfundurinn.
Blátt verður blaðið af henni,
en bláust er dómnefndin.
4. í fyrsta sinn haldinn aðalfundur SÍS að Bifröst, sem þá var að taka
til starfa sem veitingastaður í eigu Sambandsins. Efnt var til sam-
keppni um nafnið og er höfundur þess Hallgrímur Sigtryggsson,
starfsmaður Sambandsins um margra áratuga skeið.
5. Um haustið, 10.—11. september stóð Fræðslu- og félagsmáladeild
SÍS fyrir landsþingi fræðslufulltrúa kaupfélaga að Bifröst og mættu
þar 27 fræðslufulltrúar af 30 undir forystu fræðslufulltrúa SÍS,
Baldvins Þ. Kristjánssonar.
6. Sambandið stofnaði fisksölufyrirtæki í Bandaríkjunum, lceland
Products.
7. Petta ár var einnig stofnað Vinnumálasambandsamvinnufélaganna.
34 HLYNUR