Alþýðublaðið - 27.12.1919, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.12.1919, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið Geíið út aí Alþýðuílokknnm. Laugardaginn 27. desember 50. tölubl. 1919 J Eins og kunnugt er flýði Alex- ander Kerenskij norður til Arkan- gelsk og þaðan til Parísar, er Bolsivíkar höfðu steypt honum frá völdum. Síðan hefir hann ýmist dválist í París eða Englandi. Frétta- i'itari „Politiken" hefir náð tali af honum nýlega og skulu hér rakin í fám orðum orð Kerenskij: Hann kveður hafnbann Banda- rnanna valda sér og öllum Rúss- Um mikillar gremju. Segir hann, að Rússar hafi átt mikinn þátt í að hjálpa Bandamönnum til sig- Urs, þar sem þeir drógu stríðið á langinn þar til Ameríka sagði Ljóðverjum stríð á hendur. Samt hafi Bandamenn verið bráðabirgða- ■stjórn sinni eins óþarfir sem mest þeir máttu, en styrkt á allar lundir afturhaldsmennina, og aðra féndur hennar. Bandamenn hafi fordæmt friðinn í Brest-Litovsk, fyrir það, hve Rússland var part- að í sundur, en nú fari þeir sjálfir eins að. Bandanjenn hafi í sinni stjórnartíð stutt afturhaldsmenn- ma undir því yfirskini að þeir «inir væru færir um að koma öllu 1 lag í Rússlandi, en í raun og veru hafi það verið þeir frjáls- Jyndu einir, sem voru færir um það. Hann segir að Koltschak og Denikin hafi ekkert orðið ágengt að gagni. Herferðir þeirra hafi horið mjög óheppilegan árangur. í*eir hafi stjórnað með enn þá hieiri harðýðgi en f Bolsivíkar í þeim héruðum, sem þeim hafi tekizt að ná á vald'Jsitt. Menn sjái líka hvernig farið hafi fyrir þeim öllum, Koltschak, Denikin og Judenitch. Segir hann^að hann °g skoðanabræður sínir hafijvarað Bandamenn við að blanda sér í hiál Rússlands, og bent þeim á hve óheppilegar afleiðingar slíkt hiundi hafa. Og það hafi líka ^omið á daginn. Hannf'segir að Bandamenn fari nú eins að og Þjóðverjar í Brest-Litovsk. Nátt- úrugæði Rússlands hafi lokkað* Bandamenn, og það svo mjög, að þeir hafi unnið það til að biegð- ast trausti þjóðar, sem ér yfir hundrað miljónir að tölu. Þeim sé mikið í mun að ná valdi yfir ströndum og höfnum Rússlands, þessu vegna styddu þeir að því að öðru leitinu að Rússland leystist upp í smáríki, þó þeir styðji að hinu leitinu herforingjana þrjá, sem vilja endurreisa rússneska keisarastórveldið. Hann segir að Rússum ríði 4 því fyrst og fremst að fá frið. Eigi heimsfriður að verða, verði að komast röð og regla á í Rússlandi. Pvi verði Bandamenn að hœtta að blanda sér í mál Rússa og lceisarasinnar og aðrir afturhaldsmenn að verða brotnir á balc aftur. Bandamenn verði að afnema hafnbannið. Pað sé að drepa púsuudir barna og kvenna. Pað verði að afnemast þegar i stað. Rússar muni koma skipulagi á hjá sér sjálfir, séu þeir látnir í friði. Hvað viðvíki Finnlandi og Aust- ursjóarlöndunum, hafi hann alt af verið því fylgjandi, að þau fengju fult sjálfstæði. En Rúss- landi sé lífsnauðsyn að geta haft þar eftirlit, þar sem helztu hafn- arborgir Rússlands séu í þessum ríkjum. X Úr eigin herbúðum. Verfeamannafélag Akureyrar hélt fyrir skömmu hlutaveltu til þess, að auðga með því sjúkrasjóð sinn, sem aukist hefir mjög lítið á stríðsárunum vegna þess, að honum hefir lítið áskotnast annað en tillög félaga, en styrkur hefir allmikill verið veittur úr sjóðnum. Hlutaveltan gekk mætavel og á- skotnaðist sjóðnum á sjötta hund- rað krónur. Annars er leitt. til þess að vita, að ekki skuli hærri gjöld, en eru, til sjúkrasjóðs og annara sjóða verkamanna. Von- andi fer mönnum samt með reynzl- unni að skiljast, hve nauðsynlegt það er, að hafa gjöldin til þess félagsskapar, sem þeir styðja og starfa í, ekki of lág. Árshátíð Hásetafélagsins verð- ur haldin í Bárubúð í kvöld og og annað kvöld. Verður þar margt til skemtunar að vanda og má búast við fjölmenni. lítlenðar fréttlr. Sjálfstæði Finnlands. Frá Helsingfors kemur sú fregn, að andstæðingar Bolsivika, sem kallaðir eru hvítu-Rússar, séu ó- fúsir á, að viðurkenna sjálfstæði Finnlands. Meðal „hvítu-Rússa* eru helztu forkólfar keisarasinna, svo vel mátti búast við þessu. Olía sem eldsneyti. Bandaríkjamenn eru að byggja olíugeyma á St. Thomas (einni eyjunni sem þeir keyptu af Dön- um 1916) og eiga geymar þeir að geta tekið við 15 þús. smálestum i einu. Bandaríkjamenn eru að breyta verzlunarflota sínum þannig að hann geti notað olíu sem elds- neyti í stað kola. Ellen Iíey varð sjötug 11. þ. m. Menn ættu að lesa bækling eftir þessa heims- frægu konu sem heitir Socialism og Individualism, sem sænska stúdentafélagið „Verðandi" hefir gefið út. Nýr „ódanðlegurc<. Jules Cambon varð meðlimur franska „akademisins" í síðastl.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.