Alþýðublaðið - 27.12.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ___ ________3
ó.s. Sulífoss
J<zr fíééan a þriéjué. 30. ées. fíí. &
q. fí. tií JSeitfí og Æaupmannafíjnar.
dfarseélar sœfíisf i siéasta lagi a
mánuéacj.
Auglýsingar.
Auglýsingum í blaðið er fyrst
um sinn veitt móttaka hjá Quð-
geir Jónssyni bókbindara, Lauga-
vegi 17 (bakhús). Sími 286 og á
afgreiðslunni á Laugavegi 18 b.
Afli var allgóður utarlega á
Eyjafirði í síðastl. mánuði, og er
það óvanalegt hin síðari árin.
Seiur og svartfugl veiðist nokkur
á innflrðinum og rjúpnaveiði er
til fjalla allmikil og eru rjúpur
nú teknar í verzlanir til útflutn-
ings, en það hefir ekki verið gert
síðan fyrir stríð.
Slæmnr grikkur. Unglings-
piltur af Langanesi brá sér suður
til Reykjavíkur í haust og ætlaði
að ganga þar á skóla í vetur.
Þegar til Reykjavíkur kom, var
erfitt að hann fengi inngöngu á
skólann, því margir keptu um
að komast að. í öðru lagi gekk í
stríði fyrir honum að fá húspláss,
en þó klauf hann fram úr þess-
um vandræðum meðan „Sterling"
stóð við í Rvík. En rétt áður en
skipið ætlaði að leggja af s’tað
norður fyrir land, fær pilturinn
símskeyti, þess efnis að hann er
kvaddur heim strax. Pilturinn hélt
að eitthvað hefði komið fyrir heima
og tók sér því far heim með
„Sterling". En þegar heim kom
fékk hann að vita, að ekkert
skeyti hefði verið sent til hans
heiman að, eða frá þeirri síma-
stöð, er til var greint á skeytinu.
Allar líkur eru því til að einhver
keppinautur hans þar syðra hafl
gert honum þenna grikk, til að
losna við hann, hvaða orsakir sem
hafa legið til þessa. En þetta alt
naun hafa kostað piltinn 300—400
kr. En skeytafalsarinn hefir víst
ekki verið að hugsa um þá smá-
ttumi. Vm.
Bót í böli. Sig. Ein. Hlíðar
sagði það í „ísl.“ daginn fyrir
Þ'ögkosningarnar, að andstæðingar
hans væru „berir að því að teija
konum trú um að þær hefðu ekkí
kosningarrótt fyr en 45 áía gaml-
ar<:- Þessi staka heíir komið á
Aot út af þeim ummælum:
Urkynjun hjá ítum hór mun engin
^yrst að Siggi sá þá bera [vera,
1 svona veðri að „agitera".
Vm.
Fyrir.spurii.
Er það ekki skylda lögreglu-
þjóna, að sjá um að bifreiðarstjór-
ar hafl ijós við númer bifreiðar-
innar og eru flutningabifreiðar-
stjórar ekki líka skyldir að hafa
númeraljós á sínum bifreiðum.
Vegfarandi.
Svar: Jú. En þetta er sem
annað trassað meira og minna.
Sitt hvað úr
sambandsríkinu.
1000 bróna sekt
fékk maður að nafni Fischer ný-
lega fyrir að misþyrma skepnu.
Það var folaldsmeri sem hann
notaði fyrir plógi, og barði svo
miskunnarlaust áfram með eikar-
staf, að hún dó af ofreynslu næsta
dag. Mörgum mun þykja 1000 kr.
sekt heldur lítil hegning og óska
að maðurinn hefði fengið ærlega
á hann í ofauálag á sektina.
Erik Pontoppidan prófessor
er látinn 72 ára gamall. Hann
var einn af hinum mörgu Pont-
oppidan-bræðrum, sem allir urðu
landsþektir menn, en af þeim eru
nú að eins tveir á lífl, presturinn
Morten Pontoppidan og skáldið
Henrik Pontoppidan.
Erik Pontoppidan prófessor var
læknir, sérfræðingur í hörunds-
og kynferðis-sjúkdómum; átti hann
mestan þátt í stofnun Welander-
heimilisins svonefnda, það er
sjúkrahús fyrir börn sem eru fædd
með syfilis.
Valílimar Poulsen dr. phil.,
verkfræðingur, sá er fann upp
nýja aðferð við þráðlausa firðritun
varð fimmtugur 23. f. mánaðar.
Koli konungur.
Eftir Upton Sinclair.
(Frh.).
Það var þar að Hallur sá í
fyrsta sinni Mike Sikoria, gamlan
og gráan slavakka, sem unnið
hafði í námunum um tuttuga ára
skeið. Gremjan yfir öllu því rang-
læti sem hann hafði orðið að
þola í öll þessi ár vall upp f
Mike gamla þegar hann kallaði
upp tölurnar sínar: „Nítján, tutt-
ugu og tvö, tuttugu og fjögur
tuttugu! Er þetta mfn vigtr1
Ætlið þið að telja mér trú um
að þetta sé mín vigt?“
„Það er yðar vigt“, sagði vog-
armaðurinn kuldalega.
„Þá er vogin líka brjáluðí
Lítið á vagnana. — Þeir eru
stórir vagnaruir þeir arnal Þér
ættuð að mæla þá. Hálft áttunda
fet að lengd og hálft fjórða að
bæð og fjögra feta breiðir, Og
þér ætlið að telja mér trú um að
þeir taki ekki nema tuttugu?"
„Þér hlaðið þá illa“, sagði
vogarmaðurinn.
„Hleð þá illa“, át gamli verka-
maðurinn upp eftir honum. Rödd
hahs varð raunaleg eins og hann
hefði hryggst en ekki reiðst við
ásökun þessa. „Þér vitið hve lengi
eg hefi unnið hér, samt segið þér
að eg kunni ekki að hlaða! Þeg-
ar eg hleð vagn, hleð eg hann
eins og námumaður, eg hleð
hann ekki eins og Japani sem
ekki veit hvað náma er. Eg
bunka þeim og raða eins og í
heystakk. Eg hleð þau upp f