Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 6
Sushi Social
Þingholtsstræti 5 • 101 Reykjavík
PERO
NI
SOCIA
L
BJÓR
990 K
R.
CARNIVAL
CARN
IVAL
RÉTTI
R Á
HÁTÍÐ
AR-
VERÐ
I
ÞÉR ER BOÐIÐ Í CARNIVAL
FIMMTUDAGINN 7. MARS
Sigga Kling, DJ Goggi, Gnúsi Yones
og Steinunn úr Amabadama, brasilíska
dansdrottningin Josy Zareen og fleiri
frábærir gestir halda uppi sjóðheitri
sambastemningu.
Þú mátt ekki missa af þessu!
Borðapantanir á sushisocial.is
og í síma 568 6600.
SMÁRÉTTIR
Spínatsalat 1.490 kr.
Nautatataki 1.490 kr.
Humarvindill 1.590 kr.
Laxa ceviche 1.590 kr.
Nauta Anticucho 1.690 kr.
Nautalund 2.290 kr.
DJÚSÍ SUSHI
Surf‘n turf – 4 bitar 1.690 kr.
Volcano – 6 bitar 1.990 kr.
Samba – 4 bitar 1.590 kr.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaði fudge 1.290 kr.
fimmtudaginn 7. mars
CARNIVALKOKTEILAR1.990 KR.
KÍNA Yfirvöld í Kína hafa ákært
Kanadamennina Michael Kovrig,
fyrrverandi erindreka, og Michael
Spavor athafnamann fyrir njósnir.
Ákærurnar eru hluti af versnandi
samskiptum ríkjanna tveggja en
Kovrig og Spavor voru handteknir
í desember eftir að Kanadamenn
handtóku Meng Wanzhou, fjár-
málastjóra kínverska tæknirisans
Huawei.
Kovrig er nánar tiltekið sakaður
um „njósnir og að stela ríkisleyndar-
málum fyrir erlenda aðila“ og Spavor
á að hafa „gefið Kovrig upplýsingar“.
Einnig dró til tíðinda á hinni hlið
málsins í gær. Greint var frá því að
Meng hefði á föstudag höfðað einka-
mál gegn kanadísku ríkisstjórninni,
landamæragæslu og lögreglu fyrir
„alvarleg brot“ á grundvallarmann-
réttindum sínum. Hún sakar yfir-
völd um að hafa leitað á sér og yfir-
heyrt undir fölsku yfirskini.
Meng var handtekin að beiðni
Bandaríkjamanna en þar sætir hún,
líkt og fyrirtækið, ákæru fyrir meðal
annars bankasvindl. Hún er enn í
Kanada, var látin laus gegn trygg-
ingu, en mætir fyrir dóm á morgun
þar sem til stendur að kveða upp
úrskurð um hvort Kanadamenn
megi framselja hana suður til Banda-
ríkjanna. Ef svo er mun dómsmála-
ráðherra Kanada taka endanlega
ákvörðun um hvort hún verður
framseld.
Kínverjar hafa lagst gegn fram-
salinu . Samk væmt BBC hafa
þeir sagt að um sé að ræða „mis-
notkun á tvíhliða framsalssamn-
ingi“ og tjáð Kanadamönnum
alvarlegar áhyggjur sínar af stöð-
unni. Einnig hafa þeir líkt ásökun-
unum gegn Huawei við norna-
veiðar. – þea
Versnandi samband Kanada og Kína
Deila Kanadamanna og Kínverja
snýst að mestu um Huawei.
NORDICPHOTOS/GETTY
NEYTENDUR „Þessar niðurstöður
sýna að við þurfum að standa okkur
betur í að koma réttum upplýsingum
á framfæri og spyrna fótum við þess-
um kerfisbundna hræðsluáróðri sem
stundaður hefur verið gegn aukinni
fjölbreytni og samkeppni á matvæla-
markaði,“ segir Hanna Katrín Frið-
riksson, þingmaður Viðreisnar, um
viðhorf landsmanna til innflutnings
á ferskum matvælum, eins og þau
birtast í nýrri könnun sem unnin var
fyrir Fréttablaðið.
Rúmur þriðjungur landsmanna,
eða 34,4 prósent er mjög andvígur
því að slakað verði á reglum um inn-
flutt matvæli og tæp 15 prósent til
viðbótar frekar andvíg, samkvæmt
könnun sem Zenter rannsóknir unnu
fyrir Fréttablaðið.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, tekur undir og segir
umræðuna verða að fara á hærra
plan og úr þeim áróðri að það sem að
utan komi sé skaðlegt og hættulegt.
„Umræðan verður að vera heiðarleg
í stað þess hræða fólk til að koma á
viðskiptahindrunum sem fela í sér
stórskerta neytendavernd.“
Sé litið til stuðnings við stjórn-
málaflokka eru stuðningsmenn Við-
reisnar og Samfylkingar líklegastir
til að vera hlynntir innflutningi, eða
tæp 60 prósent stuðningsmanna
Viðreisnar og 53 prósent stuðnings-
manna Samfylkingar. Fast á eftir
koma stuðningsmenn Pírata sem
styðja tilslökun á reglum um inn-
flutning í 52 prósentum tilvika.
Meiri andstaða er í öðrum flokk-
um.
Í Vinstri grænum eru 67 prósent
stuðningsmanna andvíg tilslökun-
um en 19 prósent fylgjandi. Hvorki
né segja 14 prósent.
Rétt rúmur helmingur stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins, 52 pró-
sent, er andvígur tilslökunum en
margir þeirra taka ekki afstöðu og
einungis 32 prósent þeirra segjast
hlynnt þeim.
Andstaða við innflutninginn er þó
mest meðal stuðningsmanna Fram-
sóknarflokksins þar sem einungis
10 prósent eru hlynnt innflutningi
á ferskum matvælum. Litlu fleiri eru
hlynntir innflutningi í Miðflokknum
eða 15 prósent. Frumvarpsdrög ráð-
herra um afnám frystiskyldu inn-
flutts kjöts og heimild til innflutn-
ings á fersku kjöti er til kynningar í
samráðsgátt stjórnvalda en drögin
hafa valdið nokkru fjarðafoki, eink-
um í grasrót Framsóknarflokksins.
„Fólk er enn að móta sér afstöðu
og koma fram með athugasemdir.
Við munum svo fara aftur yfir allar
þær athugasemdir og gera það sem
við getum til að styðja okkar mál-
stað betur ef hægt er,“ segir Kristján
Þór Júlíusson, ráðherra landbúnaðar-
mála. Hann segist finna fyrir vaxandi
skilningi á því að stjórnvöld verði að
bregðast við dómum Hæstaréttar og
EFTA-dómstólsins.
„Það sem er kannski stærsta
hagsmunamálið, og snýr beint að
neytendum, er sú staðreynd að EES-
samningurinn væri í uppnámi ef
stjórnvöld heimila ekki innflutning
á fersku kjöti. EES-samningurinn
hefur reynst neytendum gríðarlega
mikilvægur og eflaust eru fæstir sem
vilja segja honum upp,“ segir Bryn-
hildur Pétursdóttir, formaður Neyt-
endasamtakanna. Hún segir stjórn
samtakanna enn ekki hafa tekið
afstöðu til frumvarpsdraganna en
samtökin hafi gegnum tíðina verið
hlynnt auknu frelsi í innflutningi
á landbúnaðarvörum, bæði vegna
aukinnar samkeppni sem gagnast
neytendum og meira vöruúrvals.
adalheidur@frettabladid.is
Segja hræðsluáróðri
beitt gegn neytendum
Talsmenn Evrópusinnaðra flokka á Alþingi segja neikvæða afstöðu til inn-
flutnings á ferskum matvælum sýna að réttar upplýsingar þurfi að komast
betur á framfæri. Ráðherra segir þó skilning á stöðu stjórnvalda fara vaxandi.
Stuðningur eykst með menntun og tekjum
Samkvæmt könnuninni eykst stuðningur við innflutning á ferskum
matvælum með aukinni menntun en þó eru einungis 42 prósent
þeirra sem mesta menntun hafa fylgjandi tilslökunum á reglunum.
Stuðningur eykst jafnt og þétt eftir því sem tekjur hækka með þeirri
undantekningu að minni andstaða er meðal þeirra sem hafa allra
lægstu tekjurnar, undir 200 þúsundum. Í þeim hópi eru einnig flestir
þeirra sem ekki taka afstöðu.
Afstaðan er nokkuð breytileg eftir aldri en andstaðan þó langmest
meðal þeirra sem eru 65 ára og eldri en í þeim hópi eru einungis 20
prósent fylgjandi tilslökunum.
Þá er andstaða við tilslökun meiri meðal kvenna en karla en þær eru
einnig líklegri en karlarnir til að taka ekki afstöðu til álitaefnisins.
Höfuðborgarsvæðið
n 39% n 17% n 45%
Reykjanes
n 44% n 12% n 45%
Vesturland
n 24% n 13% n 63%
Vestfirðir
n 3% n 14% n 83%
Norðurland
n 13% n 15% n 72%
Austurland
n 21% n 15% n 64%
Suðurland
n 13% n 14% n 73%
✿ Afstaða eftir búsetu
✿ Spurt um innflutning
n Hlynntur n Hvorki né n Andvígur
n Mjög hlynntur 15,2%
n Frekar hlynntur 15,1%
n Hvorki né 14,7%
n Veit ekki eða vil ekki svara 5,8%
n Frekar andvígur 14,8%
n Mjög andvígur 34,4%
Hversu hlynntur eða andvígur ertu
því að slakað verði á reglum um
innflutning á ferskum matvælum í
samræmi við EES samninginn?
Tíu prósent þeirra sem
styðja Framsóknarflokkinn
eru hlynnt tilslökun reglna
um innflutning á ferslum
matvælum.
5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð