Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 14
Nesti, sem er hluti af N1 stöðvunum, hefur auð-veldað fólki á ferðinni lífið og verið mikilvægur hluti af ferða- lögum Íslendinga um þjóðvegi landsins áratugum saman. „Nesti var stofnað árið 1957 og hugsunin þá var sú sama og hún er í dag, að þjónusta alla þá sem eru á ferðinni og vilja grípa með sér hollan og góðan valkost,“ segir Steinunn Björk Eggertsdóttir, vörustjóri veitinga hjá N1. „Nestislínan í þeirri mynd sem hún er í dag var sett af stað árið 2016 en hún hefur verið í stöðugri þróun síðan þá. Við erum alltaf að auka við úrvalið af hollum valkostum og ætlum að halda því áfram.“ N1 rekur 29 þjónustustöðvar um land allt, þar af eru 20 Nestis- stöðvar. Á þjónustustöðvum N1 er boðið upp á veitingar af ýmsu tagi ásamt annarri smávöru. Mikið úrval Meðal fjölbreyttra vara sem Nesti býður upp á má nefna boozt, grauta, gríska jógúrt, ávexti, sam- lokur, vefjur, nýsmurð rúnstykki og croissant, salöt o.fl. „Á lands- byggðinni bjóðum við að auki upp á eldaðan mat, eins og hamborgara, samlokur, kjúklingarétti, súpur, fiskrétti og aðra smárétti. Nýr og endurbættur matseðill er farinn af stað hjá okkur en í byrjun hvers árs reynum við að bæta og ein- falda matseðlana okkar ásamt því að skipta út fyrir nýja og gómsæta rétti.“ Mikill metnaður Steinunn segir miklu máli skipta að fólk geti fengið eitthvað hollt og gott við sitt hæfi hjá Nesti, hvort sem það eru almennir hollustu- réttir eða t.d. vegan. „Í takt við breyttar kröfur Íslendinga um þægilega, f ljótlega en um leið holla fæðu er Nesti ávallt með það að leiðarljósi að auka úrvalið af hollum valkostum sem eru í boði á þjónustu- stöðvum um land allt. Einnig höfum við orðið vör við aukna eftirspurn eftir hollari og léttari veitingum samfara auknum ferðamanna- straumi og er mikill metnaður lagður í að þróa veitingarnar þann- ig að þær höfði til ólíkra hópa.“ Örari nýjungar Steinunn segir vöruþróunina í ár vera hraðari en fyrri ár og ætlunin sé að höfða til f leiri hópa en áður. „Allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi og við stefnum á að vera með eitthvað nýtt og skemmtilegt í hverjum mánuði. Einnig erum við að hugsa um þá sem vilja minni einingar, svo fólk geti raðað saman eftir hentisemi hvers og eins. Nýjungar hjá okkur það sem af er ári eru t.d. nýir og endurbættir grautar og skyrréttir, girnilegar samlokur, próteinbox og margt f leira gómsætt. Á lands- byggðinni erum við með nýjar súpur og fiskrétti auk þess sem við bjóðum upp á val um súrdeigs pitsubotna á móti þessum hefð- bundnu botnum. Einnig bjóðum við fólki að fá aðrar sósur en gömlu góðu kokteilsósuna og má þar nefna trufflu-majó, hvítlauks aioli og chili-majó. Eins erum við með val fyrir þá sem vilja sneiða hjá frönskum og bjóðum upp á ferskt salat sem valkost.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Nesti býður upp á frábært úrval af samlokum, vefjum, salötum, nýsmurðum rúnstykkjum og croissant. Ljúffengir boozt drykkir í öllum regnbogans litum og bragðtegundum. Í takt við breyttar kröfur Íslendinga um þægilega, f ljótlega en um leið holla fæðu er Nesti ávallt með það að leiðarljósi að auka úrval- ið af hollum valkostum sem eru í boði. Chia grautur og orkugrautur eru tilvaldir í morgunmat eða sem millimál. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.