Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 11
FYRIR HÆSTARÉTTI (HIGH COURT OF JUSTICE) nr. CR-2018-007982 VIÐSKIPTA- OG EIGNADÓMSTÓLUM Í ENGLANDI OG WALES FYRIRTÆKJADÓMSTÓL (ChD) VARÐANDI AVIVA LIFE & PENSIONS UK LIMITED -og- VARÐANDI FRIENDS FIRST LIFE ASSURANCE COMPANY DAC -og- VARÐANDI THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000 HÉR MEÐ TILKYNNIST, í samræmi við kafla 114(2) í lögunum Financial Services and Markets Act 2000 („lögunum“), að þann 20. febrúar 2019 var gefin út tilskipun frá Hæstarétti (High Court of Justice) í Lundúnum samkvæmt 111. kafla laganna um staðfestingu áætlunar („áætlunarinnar“) um flutning frá Aviva Life & Pensions UK Limited („UKLAP“) til Friends First Life Assurance Company dac („FFLAC“) á: (i) öllum rekstri sem UKLAP stofnar til eða framfylgir í útibúum UKLAP í Belgíu, Frakklandi og Írlandi og (ii) tilteknum öðrum rekstri sem UKLAP stofnar til eða framfylgir á grundvelli frelsis þjónustu í Belgíu, Frakklandi, lýðveldinu Írlandi, Íslandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Áætlað er að áætlunin taki gildi kl. 22:59 (GMT), 29. mars 2019. Hvað varðar tryggingar sem heyra undir rekstur sem fluttur er samkvæmt áætluninni teljast EES-ríki önnur en Bretland vera ríkið þar sem samningurinn er gerður (í skilningi kafla 114(2) í lögunum) og tryggingataki hefur rétt á að segja upp tryggingunni samkvæmt áætluninni og lögum viðkomandi EES-ríkis innan 21 dags frá útgáfudegi þessarar tilkynningar í EES-ríkinu (eða, eftir atvikum, innan þess tímabils sem tiltekið er í lögum EES-ríkisins). Ef spurningar vakna um flutninginn eða uppsagnarrétt, eða ef frekari upplýsinga er þörf, má hafa samband við okkur í símanúmerið eða heimilisfangið hér að neðan: Samskiptaupplýsingar fyrir UKLAP: Heimilisfang: Aviva Transfer Mailing (BAU J) PO Box 3661 NORWICH NR1 3JF Bretlandi Símanúmer: +44 (0) 1603 606388 Vefsíða: https://transfer.aviva.com/life Samskiptaupplýsingar fyrir FFLAC: Heimilisfang: Customer Services Department, (Transfer Mailing) Friends First House Cherrywood Business Park, Loughlinstown Dublin 18, Írlandi Símanúmer: +353 (0) 1 618 6816 Vefsíða: https://transfer.aviva.com/life Atkvæðagreiðsla um VERKFALLSBOÐUN VR VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Atkvæðagreiðslan fer fram dagana 5. mars til 12. mars 2019 Allir kosningabærir félagsmenn sem starfa í ofangreindum fyrirtækjum fá send kjörgögn á næstu dögum. 5. mars 2019 Kjörstjórn VR Fosshótel Reykjavík ehf. - kt. 6912094740 Íslandshótel hf. - kt. 6301692919 Flugleiðahótel ehf. - kt. 6212976949 Cabin ehf. - kt. 7012022280 Hótel Saga ehf. - kt. 4610150340 Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf. - kt. 4509051430 Hótel Klettur ehf. - kt. 4703110450 Örkin Veitingar ehf. - kt. 7103982919 Keahótel ehf. - kt. 6012997049 Hótel Frón ehf. - kt. 4204983229 Hótel 1919 ehf. - kt. 4604050920 Hótel Óðinsvé hf. - kt. 6705140640 Hótel Leifur Eiríksson ehf. - kt. 5902993759 Hótel Smári ehf. - kt. 6312150680 Fjörukráin ehf. (Hotel Viking) - kt. 6304901119 Hótel Holt Hausti ehf. - kt. 4205025910 Hótelkeðjan ehf. - kt. 4712042340 CapitalHotels ehf. - kt. 6902080320 Kex Hostel - kt. 6210100500 101 (einn núll einn) hótel ehf. - kt. 5807972299 Ákveðið hefur verið að viðhafa rafræna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun félagsmanna VR hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og félagsmönnum VR hjá eftirfarandi fyrirtækjum: Nánari upplýsingar verða birtar á www.vr.is HANDBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í handbolta heldur til Póllands 20. mars næstkomandi þar sem það tekur þátt í fjögurra þjóða æfinga- móti í borginni Gdansk við Eystra- saltið. Axel Stefánsson og Elías Már Halldórsson hafa valið 18 leikmenn sem skipa leikmannahóp íslenska liðsins á þessu móti. Ísla nd  leik u r v ið  Pól la nd 22. mars, Angóla 23. mars og Slóvak- íu 24. mars. Þessir leikir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir umspilsleikina gegn Spánverjum um mánaðamótin maí og júní en þar er í húfi laust sæti á HM í Japan næsta vetur. Karen Knútsdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir koma aftur inn í leikmannahóp landsliðsins eftir fjarveru vegna meiðsla. Þá eru þær Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Mariam Eradze einnig valdar í hópinn en þær hafa ekki áður leikið A-lands- leik. – hó Íslenska liðið á leið á mót FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðinu í knattspyrnu var kippt niður á jörðina þegar liðið mætti Skotlandi í vináttulandsleik á Algarve-mótinu á Portúgal í gær. Lokatölur í leiknum urðu 4-1 Skotlandi í vil en skoska liðið hafði 2-0 forystu í hálfleik. Það var Sara Björk Gunnarsdóttir sem skoraði mark íslenska liðsins með góðu skoti eftir fínan undir- búning frá Svövu Rós Guðmunds- dóttur sem fékk tækifæri í framlínu íslenska liðsins í leiknum. Jón Þór Hauksson og Ian David Jeffs gerðu sex breytingar á byrj- unarliði sínu frá jafntef linu við Kanada í fyrsta leik mótsins. Þá gerðu þeir sömuleiðis sex skiptingar í leiknum, tvær í hálfleik og fjórar í seinni hálfleik. Þeir hyggjast halda áfram að skipta mínútum milli leik- mannahópsins, eins og planið var fyrir ferðina, í leiknum um sæti á mótinu á morgun. „Við vorum bara ekki að spila vel sem lið í þessum leik. Frammi- staðan var bara eins og úrslitin gefa til kynna. Við náðum ekki að kalla fram þau einkenni sem hafa ein- kennt liðið undanfarin ár. Það er grimmd í návígjum, varnarskipu- lag og þá vörðumst við illa í föstum leikatriðum,“ sagði Jón Þór í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn. „Við erum svo að freista þess að halda boltanum betur innan liðsins og vera hugrakkari í að spila bolt- anum út úr erfiðum stöðum. Það gekk ekki nógu vel í þessum leik og við vorum að missa boltann klaufa- lega trekk í trekk og senda hann til þeirra jafnvel þótt við værum ekki undir pressu. Þær refsuðu nokkrum sinnum fyrir þau mistök,“ sagði Jón Þór enn fremur um spilamennsku íslenska liðsins í leiknum. „Það er meðvituð stefna bæði hjá yngri landsliðum og A-landsliðinu að vera betri í því að spila boltanum á milli línanna og þora að fá boltann í erfiðum stöðum og leysa á annan hátt en að beita löngum sendingum. Við hvikum ekkert frá þeirri stefnu þrátt fyrir að hafa tapað illa í þessum leik og það hafi gengið brösuglega í þetta skiptið. Nú er bara að bretta upp ermar og halda áfram að vinna í því að koma leikmönnum út úr skelinni og bæta þær í því að losa pressu með þeim hætti sem við viljum innleiða. Það er gömul saga og ný hjá íslenskum landsliðum að þetta er vandamál og við hyggjumst tækla vandamálið í staðinn fyrir að fela það,“ segir hann um lærdóminn sem liðið tekur af leiknum. „Þetta var einnig þörf áminning fyrir okkur að ef að við erum ekki með grunnatriðin á hreinu þá fer illa. Það er ekki nóg að ætla að bæta sóknarleikinn og vinna leiki út frá því að spila boltanum vel á milli sín. Það þarf alltaf að berjast, spila skipu- lagðan varnarleik og vera fastar fyrir í návígi alls staðar á vellinum ef vel á að fara,“ sagði Jón Þór enn fremur um það sem hann tekur út úr leiknum. Margrét Lára Viðarsdóttir lék sinn fyrsta landsleik í tæp tvö ár og Dagný Brynjarsdóttir spilaði aftur í tíu mínútur eftir að hafa verið fjar- verandi frá haustinu 2017. Jón Þór segir að þessir leikmenn séu töluvert frá sínu besta formi en jákvætt sé að undankeppni EM 2021 hefjist ekki fyrr en næsta haust. „Við bindum vonir við það að Dagný komist á skrið á undirbún- ingstímabilinu í Bandaríkjunum og leiki stórt hlutverk hjá Portland Thorns í framhaldinu. Sömuleiðis vonum við að Margrét Lára standi sig vel með Val í sumar. Þær eru báðar mikilvægar í okkar framtíðar- plönum og það væri óskandi að þær væru komnar í sitt besta form þegar undankeppnin hefst um mánaða- mótin ágúst og september síðar á þessu ári,“ segir þjálfarinn um fram- haldið. – hó  Vantaði töluvert upp á grunngildin hjá okkur Markmenn Elín Jóna Þorsteinsd., Vendsyssel. Guðný Jenný Ásmundsdóttir, ÍBV Hafdís Renötudóttir, Boden Vinstra horn Sigríður Hauksdóttir, HK Stefanía Theodórsdóttir, Stjarnan Vinstri skytta Andrea Jacobsen, Kristianstad Helena Rut Örvarsdóttir, Dijon Lovísa Thompson, Valur Mariam Eradze, Toulon Miðja Ester Óskarsdóttir, ÍBV Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax Karen Knútsdóttir, Fram Hægri skytta Birna Berg Haraldsd., Neckarsulm Thea Imani Sturludóttir, Volda Hægra horn Díana Dögg Magnúsdóttir, Valur Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram Línumenn Arna Sif Pálsdóttir, ÍBV Steinunn Björnsdóttir, Fram Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir með boltann í leiknum. NORDICPHOTOS/GETTY S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 5 . M A R S 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.