Fréttablaðið - 05.03.2019, Síða 19
Það er ekki að spyrja að raf-magnsvæðingunni í bílaflóru Audi og hefur fyrirtækið
tilkynnt að bílgerðirnar Q5, A6,
A7 og A8 verði brátt allar í boði
sem tengiltvinnbílar. Þeir fá allir
14,1 kWh rafhlöður og verða með
um 40 kílómetra drægi eingöngu
á rafmagninu. Hægt verður að fá
alla þessa bíla sem tengiltvinnbíla
seinna á þessu ári. Allar gerðirnar
fá stafina TFSI e í endann þar sem
e stendur fyrir „e-tron“. Sá eini
þeirra sem verður fjórhjóladrifinn
er Audi A8 TFSI e. Allir hinir
bílarnir fá S-line pakka sem staðal-
búnað, stífari fjöðrun, sportlega
útfærslu innréttingarinnar og
„boost performance“ frá rafmót-
ornum í þar til gerðri akstursstill-
ingu. Auk þess fá A6- og A7-bílarn-
ir rauðmálaðan bremsubúnað og
þykkari hljóðeinangrandi rúður í
afturhurðum.
Audi Q5, A6, A7 og A8
verða tengiltvinnbílar
Volkswagen kynnti nýlega enn einn vélarkostinn í hinn tiltölulega nýja
Touareg-jeppa sinn og það er
ekki vél af af lminna taginu. Þessi
vél er sú sama og finna má undir
húddinu á Audi SQ7, þ.e. V8 TDI
vélin sem skilar 416 hestöf lum til
allra hjóla bílsins. Þessi vél togar
heil ósköp, eða 900 Nm og gerir
þessum stóra bíl kleift að taka
sprettinn í hundraðið á litlum
4,9 sekúndum sem er fáheyrt á
meðaljeppa.
Hámarkshraði jeppans er raf-
rænt takmarkaður við 250 km/
klst. og því kemst hann í raun
enn hraðar. Þó svo að dísilvélin
í Touareg sé ansi öf lug skilar
hún f leiri hestöf lum í Audi SQ7
bílnum, eða 429 hestöf lum.
Enda hvernig mætti það vera
að Volkswagen jeppi fái öf lugri
vél en f laggskip frá Audi? Sala á
VW Touareg V8 TDI hefst í maí á
þessu ári.
VW Touareg fær
V8 dísilvél
Vélin togar heil ósköp, eða 900 Nm,
og gerir þessum stóra bíl kleift að
taka sprettinn upp í hundraðið.
Hjólaskófla?
Við hjá Ergo erum engir sérfræðingar í jarðvinnu
en við fjármögnum hins vegar hjólaskóflur.
Við fjármögnum flest milli himins og jarðar.
Kynntu þér möguleikana á ergo.is
Á fyrsta blaðamannadegi bílasýningarinnar í Genf, sem hófst í gær, bar helst
til tíðinda að bíll ársins í Evrópu
var kjörinn og þann titil hlaut raf-
magnsbíllinn Jaguar I-Pace. Hann
hafði nauman sigur á Renault
Alpine A110 sportbílnum og vann
Jaguar I-Pace á jöfnum stigum
en þar sem hann var af f leirum
valinn í efsta sætið hreppti hann
titilinn eftirsótta. Þriðja sætið
fékk svo Kia Ceed og Ford Focus
það fjórða. Hlaut Kia Ceed 247
stig en Fors Focus fékk 235 stig.
Jaguar I-Pace er fyrsti bíllinn
frá Jaguar sem hlýtur þennan titil
og merkilegt má telja að I-Pace er
fyrsti hreinræktaði rafmagnsbíll
Jaguar. Ekki slæm byrjun það.
Jaguar I-Pace er líka kominn í
úrslit í World Car of the Year og
því ekki loku fyrir það skotið
að hann bæti við enn merkari
verðlaunum í ár. Hann er nú
þegar búinn að sanka að sér 55
verðlaunum frá því hann kom á
markað, meðal annars sem bíll
ársins í Bretlandi. Jaguar I-Pace er
með 394 hestaf la rafmagnsdrifrás
og 694 Nm tog og hann kemst í
hundraðið á litlum 4,5 sekúndum
og er með 377 km drægi.
Jaguar I-Pace
bíll ársins
í Evrópu
Allar gerðirnar
fá stafina TFSI
e í endann þar
sem e stendur
fyrir „e-tron“.
BÍLAR
B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 5Þ R I Ð J U D A G U R 5 . M A R S 2 0 1 9