Fréttablaðið - 05.03.2019, Side 32
Una útgáfuhús er nýtt forlag, en nafnið er hugsað sem tenging við Unuhús og þann hóp sem þa r kom
saman. Stofnendur eru Einar Kári
Jóhannsson, Kristín María Krist
insdóttir, Jóhannes Helgason og
Styrmir Dýrfjörð. Þau hafa stundað
nám í íslensku, heimspeki og bók
menntafræði og starfað saman í
bókabúð.
Komu auga á gat
„Við höfum fylgst með bókaútgáfu
mjög lengi og komum auga á smá
gat, ekki endilega í markaðnum
heldur menningarlega og hug
myndafræðilega. Bækur eru yfir
leitt prentaðar einu sinni og koma
ekki aftur út og nýjar kynslóðir
hafa lítinn aðgang að þeim. Það
er líka oft erfitt fyrir ungskáld og
nýja höfunda að fá verk sín gefin út
og við viljum skapa vettvang fyrir
þessa höfunda,“ segir Einar Kári.
„Við viljum ekki síst endur útgefa
gamlar bækur sem eru ef til vill
gleymdar en skipta máli og eiga
erindi við samtímann. Við ætlum
líka að gefa út þýðingar á sígildum
samtímaverkum, kannski ekki
þau allra klassískustu, en verk sem
annars myndu varla koma út á
íslensku,“ segir Kristín María. „Við
erum að skoða bókmenntasöguna
með nýjum augum, erum til dæmis
að skoða merkileg eldri verk eftir
skáldkonur, verk sem náðu ekki
fótfestu. En við erum aðeins í start
holunum og að skoða ýmislegt.“
Áhugaverð saga
Fyrsta bók Unu útgáfuhúss er
komin út, en það er bókin Undir
fána lýðveldisins, endurminn
ingar Hallgríms Hallgrímssonar
sem barðist í spænsku borgara
styrjöldinni. Jóhannes rakst á þá
bók í Kolaportinu, keypti hana og
las. „Mér fannst hún einstaklega
áhugaverð og vel til endurútgáfu
fallin en hún kom fyrst út árið 1942
í litlum bæklingi,“ segir hann.
Saga Hallgríms hefur haft áhrif
á aðra höfunda og var til dæmis
kveikja að skáldsögu Álfrúnar
Gunnlaugsdóttur, Yfir Ebrof ljótið.
Einar Kári og Styrmir skrifa eftir
mála við þessa nýju útgáfu á Undir
fána lýðveldisins.
„Frásögn Hallgríms er eins og
spennusaga og hann er afar ein
lægur í lýsingum sínum,“ segir
Einar Kári. „Við Styrmir fórum að
skoða líf hans og það varð að helj
arinnar rannsókn. Hallgrímur átti
okkur í nokkra mánuði. Við kynnt
umst dóttur hans, Höllu Mjöll Hall
grímsdóttur, sem lét okkur í té áður
óbirt bréf eftir hann og við fórum
á skjalasöfn og fundum mikið af
upplýsingum þar.
Það er áhugavert hvernig þessi
fátæki drengur varð eins róttækur
og raun ber vitni. Ungur byrjaði
hann í k völdskóla hjá Einari
Olgeirssyni og tók þátt í verkföll
um. Hann var síðan meðal yngstu
stofnmeðlima Kommúnistaf lokks
Íslands og fékk inngöngu í skóla
Komintern í Moskvu. Íslenskir
sagnfræðingar hafa tekist á um
hvort Hallgrímur hafi lært til hern
aðar í Rússlandi og hafi jafnvel átt
að stjórna vopnaðri byltingu hér á
landi. Við stígum varlega til jarðar
í þeim efnum, enda erum við fædd
eftir lok kalda stríðsins og vildum
frekar gefa mannlega mynd af Hall
grími og um leið reyna að skilja
róttækni fjórða áratugarins. Það
finnst okkur frekar til þess fallið að
spegla samtímann. Til dæmis eru
ýmis líkindi með honum og Hauki
Hilmarssyni. Báðir hverfa þeir nær
sporlaust 32 ára og eru brennandi
hugsjónamenn sem taka þátt í
erlendu stríði án þess að tilkynna
neinum hvert þeir eru að fara.“
Skoða bókmenntasöguna
með nýjum augum
Einar Kári, Kristín María og Jóhannes ásamt Styrmi Dýrfjörð hafa stofnað nýtt bókaforlag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
5. MARS 2019
Hvað? Gammar á Kex
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex Hostel,
Skúlagötu 28
Djassbræð
ingssveitin
Gammar
spilar á
Jazzkvöldi
Kex Host
els í kvöld.
Sveitin var á
sínum tíma
atkvæðamikil
í djassrokk
tónlistinni á
Íslandi og gaf út
þrjár hljómplötur með
frumsömdu efni. Á tónleik
unum leika þeir félagar nýtt efni í
bland við eldri lög. Nánast allt efni
hljómsveitarinnar er frumsamið
og því er hér tilvalið tækifæri til
að hlýða á nýtt djassrokkefni frá
íslenskri hljómsveit.
Hvað? Bingó Kiwanisklúbbsins
Dyngju til styrktar börnum
Hvenær? 20.00-22.00
Hvar? Árskógum 4, Breiðholti
Kiwanisklúbburinn Dyngja held
ur bingó 5. mars í Árskógum 4,
í sal félagsstarfs eldri borgara í
Breiðholti. Öllum ágóða af bingó
inu verður varið til styrktar Vina
setrinu, sem er heimili sem veitir
börnum, sem á þurfa að halda,
stuðning og helgardvöl. Vinn
ingar eru glæsilegir, m.a. vönduð
gjafa og merkjavara, matar og
kryddkörfur, ferðavinningar og
gjafabréf. Nýbakaðar pönnukökur
og drykkir seldar í hléi.
Hvað? Sextíu kíló af sólskini á Bók-
menntakvöldi
Hvenær? 19.30-20.30
Hvar? Bókasafn Seltjarnarness,
Eiðistorgi 11
Hallgrímur Helgason rithöfundur
les upp úr og fjallar um bók sína
Sextíu kíló af sólskini, en hún
hlaut Íslensku bókmenntaverð
launin 2018. Sextíu kíló af sólskini
fjallar um mikla umbrotatíma
í íslenskri sögu; hér segir af því
þegar nútíminn sigldi til hafnar
á Norðurlandi og Norð
menn námu landið
öðru sinni. Saga
sem bæði grætir
og gleður og
hefur fengið
lofsamlega
dóma.Allir
velkomnir
og boðið er
upp á kaffi
og með því.
Hvað? Ljós-
myndum
safnað í 111 ár
Hvenær? 12.00-
13.00
Hvar? Þjóðminjasafn
Íslands, Suðurgötu 41
Þriðjudaginn 5. mars kl. 12 flytur
Inga Lára Baldvinsdóttir, sviðs
stjóri Ljósmyndasafns Íslands,
erindi í fyrirlestrasal safnsins.
Söfnun ljósmynda varð hluti af
starfsemi Þjóðminjasafns Íslands
árið 1908 þegar sérstakt Manna
myndasafn var sett á fót sem safn
heild innan safnsins. Ljósmyndir
urðu síðan æ stærri hluti af safn
kosti Þjóðminjasafnsins eftir því
sem leið á 20. öldina. Nú þegar
liðið er fram á 21. öldina eru ljós
myndir orðnar stærsti hluti safn
kostsins í magni talið.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
VIÐ HÖFUM FYLGST
MEÐ BÓKAÚTGÁFU
MJÖG LENGI OG KOMUM AUGA Á
SMÁ GAT, EKKI ENDILEGA Í
MARKAÐNUM HELDUR MENN-
INGARLEGA OG HUGMYNDA-
FRÆÐILEGA.
Nýtt bókaforlag
lítur dagsins ljós.
Stofnendur eru
ungt fólk sem hefur
lengi fylgst með
bókaútgáfu. Fyrsta
bókin er endur
útgáfa á Undir fána
lýðveldisins.
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
5 . M A R S 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING