Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 2

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 2
Veður Suðvestanátt í dag, víða 3-8 m/s. Bjart veður á A-verðu landinu, ann- ars skýjað og smáskúrir fram eftir degi. Hiti 1 til 8 stig, en næturfrost N- og A-til á landinu. SJÁ SÍÐU 42 Landsfundur VG settur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, f lutti stefnuræðu sína á landsfundi f lokksins á Grand Hóteli í gær. Katrín lagði mikla áherslu á loftslagsmálin í ræðu sinni og benti á að undir forystu Vinstri grænna hefðu fyrstu lög um loftslagsmál verið sett, árið 2012. „Vegna þess að ég var á staðnum veit ég að það var við lítinn áhuga annarra flokka,“ sagði hún. Landsfundi lýkur á morgun, sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UMHVERFISMÁL Reykjavíkurborg hefur brett upp ermar og hafist handa við endurbætur á grenndar­ stöðvum borgarinnar. Úttekt hefur verið gerð á staðsetningu og umhverfi grenndarstöðvanna sem meðal annars fólst í greiningu á staðsetningu þeirra, endurnýjunar­ þörf og stöðu skipulagsmála. Fyrstu útboð vegna verkefnisins eru að bresta á og verður þeim framhaldið á næsta ári. Það er ungu fólki á Kjalarnesi að þakka að hreyfing er komin á verk­ efnið. Tillagan um endurbæturnar er komin frá ungmennaráði svæðis­ ins og var hún lögð fram á árlegum fundi ungmennaráða og borgar­ stjórnar Reykjavíkur. Sá sem bar tillöguna fram er hinn 15 ára gamli Gabríel Smári Hermannsson. „Ég fékk það hlutverk að leggja tillöguna fram á fundinum en hún er sprottin af vinnu okkar allra í ungmennaráði Kjalarness,“ segir Gabríel af aðdáunarverðri póli­ tískri hógværð. Að sögn Gabríels varð fljúgandi rusl á víð og dreif til þess að hugmyndin að tillögunni kviknaði. „Við í ungmennaráðinu höfðum öll orðið vör við fjúkandi rusl á Kjalarnesi sem kom frá grenndar­ stöðinni. Þar var einfaldlega allt troðfullt og tæmt of sjaldan með tilheyrandi sóðaskap. Aðstæður á Kjalarnesi eru til dæmis þannig að svæðið er ekki mjög skjólsælt sem skapar ýmis vandamál. Það sama gildir um aðrar staðsetningar á höfuðborgarsvæðinu. Við vorum því öll sammála um að brýnt væri að ráðast í endurbætur, skipuleggja svæði þeirra betur og auka tíðni sorphirðu,“ segir Gabríel. Hann hafi því fyrir hönd ung­ Borgarráð hlustaði á ungt fólk á Kjalarnesi Ungmennaráð Kjalarness lagði fram tillögu um endurbætur á grenndarstöðv- um Reykjavíkurborgar í mars. Verkefnið var sett í gang og stendur fram á næsta ár. Fulltrúi ráðsins er ánægður með að Reykjavíkurborg hlusti á ungt fólk. Gabríel segir Kjalnesinga meðvitaða um umhverfi sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við í ungmennaráð- inu höfðum öll orðið vör við fjúkandi rusl á Kjalarnesi sem kom frá grenndarstöðinni. Gabríel Smári Hermannsson, 15 ára íbúi á Kjalarnesi mennaráðs Kjalarness borið upp tillöguna á þessum árlega fundi borgarstjórnar Reykjavíkur og ungmennaráða borgarinnar. „Það er mjög hvetjandi fyrir okkur að sjá að það sem við ræðum innan ungmennaráðsins sé raunverulega tekið fyrir hjá borgaryfirvöldum og sett í framkvæmd. Ungmennaráð Kjalarness hittist tvisvar í mánuði á fundum og þetta gefur okkur auk­ inn kraft. Það er hlustað á okkur,“ segir Gabríel. Hann tekur þó fram að það sé þó ekki svo að Kjalarness sé allt í rusli. „Íbúar Kjalarness eru mjög meðvit­ aðir um umhverfi sitt. Maður verð­ ur var við að íbúar, ungir sem aldnir, tína rusl upp í göngutúrum og vilja halda nærumhverfi sínu hreinu. Það er gott að Reykjavíkurborg ætli að hjálpa til í þessari baráttu,“ segir Gabríel. bjornth@frettabladid.is SKOÐUN Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, birti í morgun grein þess efnis að á morgun yrðu liðin sjö ár frá því að tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá voru samþykktar í þjóðaratkvæða­ greiðslu. „Þjóðin hefur nú verið svikin af stjórnvöldum um þessa nýju stjórn­ arskrá í sjö ár. Núverandi ríkisstjórn virðist ekki ætla að færa þjóðinni þá heilsteyptu stjórnarskrá sem fólkið bíður enn eftir,“ segir Jóhanna. – atv Sjö ár liðin frá stjórnarskránni Jóhanna Sigurðardóttir. Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Meira á frettabladid.is STJÓRNMÁL Á fundi borgarráðs í vikunni kvartaði Kolbrún Baldurs­ dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólks­ ins, yfir þeirri staðreynd að flokkur hennar hefði lagt fram, eða verið aðili að, 145 tillögum fyrir borgar­ stjórn. Aðeins sex tillögur hefðu verið samþykktar sem gera rúmlega fjögur prósent. Lét Kolbrún bóka að margir málaflokkar sem sneru að grunn­ þjónustu við borgarbúa hefðu mætt afgangi hjá meirihlutanum og að það væru þessi mál sem hún væri að reyna að vekja athygli á. Ályktaði hún að meirihlutinn hefði gert að venju sinni að kjósa eftir f lokkslínum en ekki mál­ efnum. Aðeins 4% mála Kolbrúnar í gegn Kolbrún Baldurs- dóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins. 6 af 145 tillögum Flokks fólksins hafa verið sam- þykktar. Fulltrúar meirihlutans létu bóka að fjöldi mála endurspeglaði ekki endilega gæði mála. Það væri af og frá að meirihlutinn samþykkti ein­ göngu mál eftir f lokkslínum. Þegar góð mál kæmu fram sem tónuðu við áherslur meirihlutans hefði verið tekið vel í það enda sýndi það sig að meirihlutinn hefði samþykkt ýmis mál sem komið hefðu frá minni­ hlutanum og stundum gert breyt­ ingar á hnökrum tillagna minni­ hlutans til að geta samþykkt þær. Ef hugmyndir væru ekki vel útfærðar væri þó ekki hægt að sam­ þykkja þær þó að hugurinn væri góður. – bþ 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.