Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 36

Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 36
Við erum stolt af því að geta miðlað sérþekkingu okkar og höfum gert það innan og utan landstein- anna þar sem Bjöllu- kórinn hefur leikið af þeirri snilld sem honum er einum lagið. Við fögnum því að fá að leggja hönd á plóg með bjöllunum okkar. Valgerður Jónsdóttir Í Bjöllukórnum er listafólkið Ólafur Snævar Aðalsteinsson, Ástrós Yngva- dóttir, Rut Ottósdóttir, Halldóra Jóns- dóttir, Erna Sif Kristbergs- dóttir og Edda Sighvatsdóttir í neðri röð. Í efri röð standa Hildur Sigurðar- dóttir, Gauti Árnason, Ásdís Ásgeirsdóttir, Gísli Björnsson, Auðun Gunn- arsson og Íris Björk Sveins- dóttir. MYND/ OWEN FIENEBjöllukórinn var stofnaður á haustdögum 1997 af Val-gerði Jónsdóttur, skólastjóra Tónstofu Valgerðar. Í kórnum eru tólf meðlimir sem flestir sækja einkatíma í söng og hljóðfæraleik í Tónstofunni en einu sinni í viku hittast þeir á bjöllukórsæfingu og leika þá á hljómfagrar Suzuki-tón- bjöllur. „Markmið Bjöllukórsins er að meðlimir hans þjálfist í að leika Klingja bjöllum í hjartastað með öðrum, fái notið þess einstaka miðils sem tónlistin er og finni farveg fyrir tónræna hæfileika sína sjálfum sér og öðrum til ánægju,“ útskýrir Valgerður um Bjöllu- kórinn sem hefur eflst ár frá ári og tekið þátt í spennandi verkefnum sem útheimta margs konar færni. „Segja má að Bjöllukórinn sé framvarðarsveit Tónstofunnar og í þau 22 ár sem kórinn hefur starfað hefur hann leikið fyrir stofnanir, félagasamtök, skóla og fyrirtæki. Kórinn hefur líka komið fram á listahátíðum og með öðru tónlistarfólki, þar á meðal Möggu Stínu, Svavari Knúti, Gunnari Gunnarssyni, Högna Egilssyni, Karólínu Eiríksdóttur, Þórunni Grétu Sigurðardóttur, Sigur Rós og Retro Stefson,“ upplýsir Val- gerður um Bjöllukórinn en það veitir meðlimum hans mikla gleði og ekki síður þeim sem hlusta á kórinn leika á tónbjöllurnar. Njóta þess að koma fram Valgerður hefur með óeigingjörnu starfi sínu gefið fjölda nemenda með sérþarfir kost á að njóta tónlistarnáms og með því endur- speglað nútímalegar áherslur á inngildingu, jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. „Starfsemi Bjöllukórsins og Tón- stofunnar er einstök á landsvísu og þótt víðar væri leitað. Við erum því stolt af því að geta miðlað af sér- þekkingu okkar og höfum gert það innan og utan landsteinanna þar sem Bjöllukórinn hefur leikið af þeirri snilld sem honum er einum lagið,“ segir Valgerður um kórinn sem hefur tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum. Má þar nefna setningu Lista- hátíðar í Reykjavík 2014, í sam- starfi við Högna Egilsson, verk Ólafs Ólafssonar og Libia Castro „Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland“ og norrænu og baltnesku sam- starfsverkefnin „Kenndu mér norræn og baltnesk barnalög“ og „Deilum menningararfinum í listsköpun“. Í nýliðnum september tók Bjöllukórinn líka þátt í tíu ára afmælishátíð Pascal Norge. Bjöllukórinn hefur einnig hlotið fjölda viðurkenninga og var ásamt Tónstofunni handhafi kærleiks- kúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra árið 2010. „Við í Bjöllukórnum njótum þess að koma fram og að vera í sam- starfi þar sem við fáum tækifæri til að kynnast nýrri tónlist og nýjum listamönnum. Sýnileiki Bjöllu- kórsins í samfélaginu hefur vakið enn frekari áhuga listafólks á að starfa með okkur. Við fögnum því að fá að leggja hönd á plóginn með bjöllunum okkar,“ segir Valgerður. Efnisskrá Bjöllukórsins er fjöl- breytt og hljómur hans einstakur. Kórinn hefur gefið út tvo hljóm- diska; Hljómfang árið 2012 og Hljómvang árið 2017. „Á lokatónleikum Listar án landamæra í dag flytur Bjöllukór- inn meðal annars íslensk þjóðlög, lag eftir Atla Heimi Sveinsson, Þor- kel Sigurbjörnsson og Braga Valdi- mar Skúlason,“ upplýsir Valgerður full tilhlökkunar. Tónleikar Bjöllukórsins hefjast í Gerðubergi klukkan 15 í dag. Þar verður einnig hægt að njóta listviðburða og heillandi sýninga listafólksins sem tekur þátt í List án landamæra. Aðgengi er gott í Gerðubergi og lyftur á milli hæða. Aðgengilegt er á salerni og blátt bílastæði nálægt húsinu. Bjöllukórinn heldur lokatón- leika Listar án landamæra í Gerðubergi í dag. Kórinn hefur gert garðinn frægan hér heima og ytra með einstökum hljóm sem heillar alla sem á hlýða. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.