Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 47
Hugbúnaðarsérfræðingur í
þróunarteymi okkar
Við leitum að drífandi og sjálfstæðum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felur í sér nýsköpun og vöruþróun í
hópi samhentra starfsmanna.
Star-Oddi er framsækið fyrirtæki á sviði mælitækni fyrir dýra- og umhverfisrannsóknir í hafi og á landi.
Okkar sýn er að vera leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu lítilla, áreiðanlegra og harðgerra mælitækja. Langflestir
viðskiptavinir fyrirtækisins eru erlendir og meðal notenda eru heimsþekktar rannsókna- og vísindastofnanir.
Starfið felur í sér vöruþróun á nýjum afurðum og viðhaldi á núverandi vörum okkar. Þú þarft að kunna forritun örstýringa
(microcontrollers) í ígreyptum kerfum (embedded systems), og hafa grunnþekkingu á almennri forritun fyrir Windows
eða Linux umhverfi. Þú munt einnig taka þátt í þróun og viðhaldi á prófunarbúnaði, koma að gæðaprófun og kóðarýni,
skjölun og rótargreiningu (Root Cause Analysis). Vinnan fer fram bæði í 2-3 manna hópi og sjálfstætt.
Hæfniskröfur
• B.Sc. eða M.Sc. gráða í tölvunarfræði eða rafmagns-, hátækni- eða hugbúnaðarverkfræði
• Menntun eða reynsla af vöruþróun og vöruþróunarferli æskileg
• Reynsla af C forritun æskileg
• Reynsla af Python, Java, C++, Delphi eða sambærilegum forritunarmálum æskileg
• Reynsla af Microchip og ARM örstýringum æskileg
• Reynsla af Bluetooth og USB ásamt I2C, SPI og RS232 samskiptastöðlum æskileg
• Góðir samskiptahæfileikar í ræðu og riti
Gildin okkar eru áreiðanleiki, metnaður og heiðarleiki og
leitumst við við að fylgja þeim í hvívetna í störfum okkar.
Umsókn með kynningarbréfi og náms- og starfsferilsyfirliti óskast sendar með tölvupósti á jobs@staroddi.com
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 4. nóvember. Nánari upplýsingar Andrés Gunnarsson,
andres@staroddi.com eða í s. 533 6060. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um Star-Odda má sjá á heimasíðu fyrirtækisins star-oddi.com.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Alvotech leitar að vísindamönnum og sérfræðingum til að
taka þátt í uppbyggingu leiðandi lyfjafyrirtækis á heims-
vísu. Fyrirtækið vinnur að þróun og framleiðslu líftæknilyfja
sem notuð eru til meðferðar á erfiðum sjúkdómum eins og
krabbameini, gigt og psoriasis. Ríflega 400 starfsmenn
Alvotech vinna að því að auka lífsgæði sjúklinga um allan
heim og margir af færustu vísindamönnum landsins starfa
hjá fyrirtækinu. Við leitum nú að nýjum liðsmönnum sem
munu móta framtíðina með okkur.
ER FRAMTÍÐ ÞÍN
Í LÍFTÆKNI?
Skoðaðu mögulegt framtíðarstarf á
storf.alvotech.is