Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 68

Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 68
Neyðarvarnakerrur eru fjöldahjálparmiðstöðvar á hjólum. Í þeim er að finna allan þann búnað sem þarf til að opna fjöldahjálparmiðstöð fyrir 30 manns fyrstu dagana þegar þess gerist þörf, t.d. af völdum náttúruhamfara. Kerrurnar auð­ velda Rauða krossinum að opna og starfrækja fjöldahjálparstöðvar, þar sem slíkt hefði annars verið erfitt, eins og á stöðum utan þétt­ býlis þar sem heppilegt húsnæði er ekki alltaf fyrir hendi,“ segir Atli Örn Gunnarsson, sem er einn þeirra sjálf boðaliða sem hafa umsjón með neyðarvarnakerr­ unum fyrir Rauða krossinn. „Í hverri neyðarvarnakerru eru 30 svefnbeddar, 50 teppi, gulur borði sem merktur er Rauða kross­ inum en hann er til að afmarka svæði, hreinlætisvörur, rafstöð og ljós. Auk þess eru í þeim merki­ spjöld fyrir vistarverur, kaffi­ aðstöðu og slíkt, endurskinsvesti fyrir sjálf boðaliða, skrif blokkir, gátlistar, útvarp með langbylgju, orkustangir og fleira,“ upplýsir Atli. Alls eru 24 neyðarvarnakerrur í notkun hringinn í kringum landið en upphaflega stóð til að hafa eina kerru í hverju lögregluumdæmi. „Fyrstu kerrurnar voru teknar í notkun fyrir fjórum árum. Þegar við sáum að þörfin var meiri, var ákveðið að fjölga þeim jafnt og þétt. Innan skamms verða nokkr­ ar neyðarvarnakerrur í viðbót teknar í notkun. Þær eru smíðaðar sérstaklega fyrir okkur og síðan sjáum við hjá Rauða krossinum um að kaupa allan útbúnað fyrir þær,“ segir Atli. Kerrurnar eru staðsettar á höf­ uðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ, Grindavík, á Selfossi, Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum, Vík, á Klaustri, í Sveitarfélaginu Hornafirði, á Eskifirði, Egilsstöðum, í Þing­ eyjarsýslu, á Akureyri, í Skaga­ firði, á Hvammstanga, Hólmavík, Ísafirði, Patreksfirði, í Búðardal, Stykkishólmi, Snæfellsbæ, Borgar­ nesi og á Akranesi. Sjálfur hefur Atli verið sjálf­ boðaliði síðan 2005 og líkar mjög vel. „Mig vantaði eitthvað að gera og byrjaði á að skrá mig og taka þátt í skyndihjálparhópi hjá Reykjavíkurdeildinni. Síðar fór sú deild undir neyðarvarnir og ég hef starfað innan hennar í 14 ár á einn eða annan hátt. Ég fer í þau verkefni sem þarf, en aðalverk­ efnið mitt er að hafa umsjón með neyðarvarnakerrunum.“ Af hverju eru neyðarvarnir mikilvægar? „Ef upp kemur hættuástand vegna náttúruhamfara eða stórslysa hefur Rauði krossinn það hlutverk í almannavörnum að veita fjöldahjálp, svo sem að útvega fæði, klæði og húsaskjól, auk þess að koma upplýsingum til fólks. Einn liður í því er að setja upp fjöldahjálparstöðvar og þar koma neyðarvarnakerrurnar að góðum notum.“ Mælir þú með því að vera sjálf- boðaliði hjá Rauða krossinum? „Já, sannarlega. Þetta er skemmti­ legur félagsskapur og maður lærir heilmikið í gegnum starfið.“ Neyðarvarnakerrur Rauða krossins – fjöldahjálparstöðvar á hjólum Atli Örn Gunnarsson hefur verið sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í 14 ár. Hann hefur umsjón með neyðarvarnakerrum en þær innihalda búnað sem kemur að góðum notum þegar vá ber að dyrum. Atli Örn Gunn- arsson sjálf- boðaliði situr hér á neyðar- varnakerru Rauða krossins. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Neyðarvarnir eru eitt mikilvægasta verkefni Rauða krossins. Sjálf- boðaliðar bregðast við fjölda alvarlegra atburða s.s. náttúruhamför- um, samgönguslysum og húsbrunum á hverju ári. Allan sólarhringinn eru hundruð sjálfboðaliða til taks ef hamfarir eða önnur áföll dynja yfir. Sjálfboðaliðar og starfsfólk eru með mismunandi sérþekkingu, m.a. í stjórnun aðgerða, uppsetningu fjöldahjálparstöðva og að veita sálrænan stuðning og skyndihjálp þegar mikið liggur við. Isavia hefur tryggt að neyðarvarnarkerrur eru til staðar hringinn í kringum landið. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur við Hagstofu Íslands, gaf út skýrslu um lífs­ kjör og fátækt barna á Íslandi fyrr á þessu ári fyrir Velferðarvaktina. Hann segir að fátækt sé hugtak sem geti verið erfitt að skilgreina en maður þekki hana þegar maður sér hana. „Fátæktarhugtakið er miklu eldra en félagsvísindin, hugmyndir um fátækt hafa verið til frá örófi alda. En málið er að svo þurfum við einhvern veginn að mæla hana og þá vandast málið, því við höfum enga beina leið til að mæla fátækt,“ segir Kolbeinn. „Almennt séð horfum við á fátækt sem skort sem leiðir af því að hafa ekki nægi­ lega miklar bjargir, fyrst og fremst peninga.“ Þrjár mælingar á fátækt „Ég nota þrjár mælingar á fátækt í skýrslunni. Sú fyrsta er svokölluð lágtekjumörk, sem áður voru kölluð fátæktarmörk. Hún virkar þannig að við tökum miðgildið í tekjudreifingunni og reiknum hlut­ fall af því. Almennt er miðað við 60% af miðgildinu og allir sem eru undir því teljast í hættu á fátækt,“ segir Kolbeinn. „Það búa samt ekki allir í þessum hópi við fátækt, hún getur verið tímabundin og fólk getur oft verið fljótt að vinna sig upp. Önnur mæling er skortur á efnis­ legum gæðum. Þá er litið til þess hvaða tilteknu efnislegu lífsgæði fólk hefur og ef einhvern vantar þau gæði, hvort það sé vegna þess að það hefur ekki efni á þeim,“ segir Kolbeinn. „Við getum svo sem alltaf neitað okkur um tiltekin gæði af ýmsum ástæðum, en ef þú vilt þau en hefur ekki efni á þeim telst það skortur. Svo nota ég flókna tölfræðilega aðferð sem tekur upplýsingar úr alls konar mismunandi mælingum sem snerta á fátækt til að fá út nýja mælingu, sem við köllum fjárhags­ þrengingar,“ segir Kolbeinn. „Þetta eru þær þrjár ólíku mælingar sem eru notaðar og þær henta til að svara dálítið ólíkum spurningum.“ Ekki hægt að telja fátæka „Það hversu margir teljast fátækir á Íslandi veltur á skilgreiningunni sem er notuð, en almennt séð er fátækt tiltölulega fágæt á Íslandi í samanburði við önnur Evrópu­ lönd,“ segir Kolbeinn. „Hins vegar jókst fátækt áberandi mikið í kjöl­ far Hrunsins en svo dró úr henni hjá flestum hópum eftir 2011, nema hjá öryrkjum. En það er ekki hægt að nefna neina tiltekna tölu um hve margir eru fátækir á Íslandi, því við getum ekki mælt það beint,“ segir Kol­ beinn. Börn einstæðra og öryrkja viðkvæm „Rannsóknir benda til þess að börn einstæðra foreldra og öryrkja séu líklegust til að búa við fátækt,“ segir Kolbeinn. „Í tilfelli einstæðra foreldra er það einfaldlega þannig að það er erfitt að reka heimili á Íslandi með bara eina fyrirvinnu, við þurfum tvær til að komast sæmilega af í þessu samfélagi. Hjá öryrkjum snýst málið frekar um að annar eða báðir foreldrar eru með langvarandi lágar tekjur. Þá gengur á sparifé og eignir og lánstraust verður hægt og rólega fullnýtt, þannig að svigrúm fólks til að bregðast við verður sífellt minna,“ segir Kolbeinn. „Örorkulíf­ eyrir á Íslandi er heldur ekki sérlega rausnarlegur til að byrja með.“ Meiri vinna, meiri tekjur „Það veltur mjög mikið á aðstæðun­ um sem leiða fólk í fátækt hvernig hægt er að vinna sig upp úr henni,“ segir Kolbeinn. „Það getur verið býsna erfitt fyrir örorkulífeyris­ þega, því þeir hafa skerta starfsgetu og það getur verið mjög erfitt fyrir þá að afla sér aukatekna. Það er kannski auðvelt að segja að fyrir einstæða foreldra sé best að finna sér maka, en það er alls konar mannlegur raunveruleiki sem flækir myndina og margir sem geta ekki eða vilja ekki gera það,“ segir Kolbeinn. Almennt séð er leiðin til að vinna sig úr fátækt á Íslandi sú að vinna meira til að skapa meiri tekjur,“ segir Kolbeinn. „En maður getur líka reynt að skipuleggja líf sitt þannig að maður dragi úr áhættu, til dæmis með því að mennta sig.“ Mætti efla barnabætur „Þetta verður snúnara þegar við tölum um verst settu hópana,“ segir Kolbeinn. „En það er ýmislegt sem samfélagið getur gert. Til dæmis að auka stuðning við barnafjölskyld­ ur, sem er takmarkaður á Íslandi. Við erum með tekjutengdar barnabætur en skerðingarmörkin liggja svo lágt að það er mjög auð­ velt að fara undir þau ef maður er í fullri vinnu og svo eru skerðing­ arnar brattar,“ segir Kolbeinn. „Fólk sem er í hjúskap með tvö börn og í fullri vinnu, dæmigerð vísitölufjöl­ skylda, fær til dæmis engar barna­ bætur ef annað barnið er komið yfir 6 ára aldur.“ Kolbeinn telur því að það sé ástæða til að efla barnabótakerfið, sérstaklega með tilliti til fólks sem hefur lægri tekjur. Mætti styðja barnafjölskyldur betur Sérfræðingur Hagstofu segir flókið að mæla fátækt en að börn einstæðra foreldra og öryrkja séu í mestri hættu á henni. Hann telur að aukinn stuðningur við barnafjölskyldur gæti minnkað fátækt. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur við Hagstofu Íslands, segir að það sé erfitt að vinna sig upp úr fátækt á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sárafátæktarsjóður Rauða krossins veitir neyðarstyrki til þeirra sem búa við sárafátækt. Nokkur skilyrði þarf að uppfylla, m.a. að mánaðarlegar tekjur séu 200.000 kr. eða lægri fyrir skatt hjá einstaklingum eða saman- lagt 300.000 kr. eða minna fyrir skatt hjá hjónum/sambúðar- fólki. Barnabætur, meðlag og húsaleigubætur eru ekki taldar með í tekjuviðmiðum. Hægt er að sækja um í sjóðinn tvisvar á almanaksári. Lesa má nánar um sjóðinn á raudikrossinn.is/ sarafataekt. 8 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.