Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 70

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 70
FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR Veglegt sérblað Fréttablaðsins um vörubíla og vinnuvélar ke ur út 25. október nk. T yggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R Myndirnar sem Natural History Museum í London valdi sem bestu náttúru- lífsmyndir árins voru kynntar fyrr í vikunni. Safnið stendur fyrir ljósmyndakeppninni, sem fór fyrst fram árið 1965, og í ár voru meira en 48 þúsund myndir sendar inn frá 100 ólíkum löndum. Að vanda eru myndir ársins glæsilegar, heillandi, óhugnanleg- ar, fallegar og umhugsunarverðar. Þær fóru á sýningu í safninu í gær og verða síðar sýndar víða um heim. Hér er brot af myndunum sem voru valdar í ár. Bestu náttúrulífsmyndir ársins Sigurvegari í almennum flokki og sameiginlegur sigurvegari í flokki hegðunar spendýra: Augnablikið Bao Yongqing tók þessa mynd í Qilian-fjöllum í Kína að vori og hún sýnir múrmeldýr sem fær óvænta og óvelkomna heimsókn frá ref. Múrmeldýrið var nývaknað úr vetrardvala og hungrið rak það úr bæli sínu, beint í gin refsins. Sigurvegari í flokki svart-hvítra mynda: Ekkert skjól fyrir snjónum Þessi er tekin í Yellowstone-þjóðgarðinum í Banda- ríkjunum og sýnir stakan vísund í hríðarbyl. Myndina tók Max Waugh. Sigurvegari í flokki hegð- unar fugla: Land arnarins Það tók Audun Rikardsen þrjú ár að fá þennan glæsi- lega gullörn til að venjast myndavél sinni og byrja að venja komur sínar á þessa grein í Norður- Noregi, en það tókst. Sigurvegari í flokki andlitsmynda af dýrum: Blekkingarandlit Þessi örsmáa krabbakönguló var að veiða maura á Indlandi þegar ljós- myndarinn Ripan Biswas kom auga á hana, en fyrst hélt hann að um óvenjulegan maur væri að ræða. Köngulóin hermir eftir útliti maura og nýtir það til að komast í návígi við þá. Sigurvegari í flokki hegðunar hryggleysingja: Arki- tektúrherinn Daniel Kronauer tók þessa mynd á Kosta Ríka, en hún sýnir hóp flakkandi hermaura sem byggja bú úr eigin líkömum til að vernda drottninguna og lirfur sínar. Sameiginlegur sigurvegari í flokki hegðunar hjá spendýrum: Jöfn viðureign Þessi mynd er afrakstur sjö mánaða vinnu Ingo Arndt við að elta fjallaljón í Sílé og sýnir augnablikið þegar ljónið gerir árás á spendýr sem heitir guanaco og er náskylt lamadýrum. Í þetta skiptið slapp bráðin með skrekkinn. Sigurvegari í flokki dýralífs í borgum: Rottuhópurinn Charlie Hamilton James náði þessari mynd af rottuhópi sem bjó undir Pearl Street á Manhattan-eyju í New York. Um 30 rottur bjuggu undir þessari rist sem var við tré og þær sóttu sér mat úr ruslapokum nágranna sinna. Í vikunni tilkynnti Natural History Museum í London hvaða myndir safnið hefði valið sem bestu nátt- úrulífsmyndir ársins. Myndirnar eru fjölbreytt augnakonfekt og komu frá ýmsum heimshornum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.