Breiðholtsblaðið - jun. 2015, Síða 9
9BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015
SUÐURSTRÖND 10, SELTJARNARNESI
Fyrir neðan sundlaugina og World Class.
www.facebook.com/Systrasamlagid
Sími: 511 6367
Systrasamlagið 2ja ára:
20% afsláttur
af gæðum til 21. júní!
AFGREIÐSLUTÍMI:
Virkir dagar 8:30 - 18
Laugardagar 10 - 16
Sunnudagar í sumar 11 - 15
Prancing Leopard jógafatnaði
Manduka jógadýnum
Sóley Organics snyrtivörum
Dr. Bach ilmvötnum
Flothettum og fótafloti
Benecos snyrtivörum
Viridian vítamínum og bætiefnum
Alvöru MORGUNDJAMM,
engin eftirköst!
FRÍTT ENGIFERSKOT fylgir
öllum þeytingum
og söfum Systrasamlagsins,
alla morgna fram að
sumarsólstöðum.
SVEITA- SAMFLOT Á FLÚÐUM
Systrasamlagið & Float kynna
fyrsta Sveita-Samflot sumarsins
í Gömlu lauginni á Flúðum
lau. 27. júní frá. kl. 22 – 24.
Verð: 6.500 kr. / 5000 kr. fyrir
Flothettueigendur.
Innifalið: Aðgangur, flothetta,
upphitun og næring.
Skráning og greiðsla í Systrasam-
laginu til 26. júní, í síma 5113767
eða skilaboð á facebook.com/
systrasamlagid
EKTA lífræn ILMVÖTN
sem gefa!
Frönsk ilmvötn sem hafa
vakið mikla athygli. Inni-
halda m.a. blómadropa
hins þekkta læknis Dr. Bach
sem fangar það dýpsta og
fegursta í hverri jurt.
Við FÖGNUM með
20% AFMÆLISAFSLÆTTI
af eftirtöldum vörum:
Definitely worth a visit!
– Grapevine apríl 2015
Hátíðin Breiðholt Festival fór fram í fyrsta
sinn laugardaginn 13. júní. Hátíðin fór vel fram að
sögn Sigríðar Sunnu Reynisdóttur en hún er ein af
aðstandendum hennar. „Við vissum ekki alveg á
hverju við áttum von með mætingu og þátttöku en
miðað við að þetta er í fyrsta sinn sem þessi hátíð er
haldin hér í Seljahverfinu þá erum við mjög ánægð með
undirtektirnar.
Ætlunin er að efna til sambærilegrar hátíðar að ári
en markmiðið með henni er að lífga upp á mannlífið og
umhverfið þennan dag og efna til tengsla. Hátíðin var
gjaldfrjáls og öllum opin og stefnt er að því að þarna geti
orðið um árlegan menningarviðburð að ræða. Meðal þess
sem var í boði á hátíðinni á laugardaginn var danssmiðja
fyrir fólk á öllum aldri og hljómsveitarsmiðjuna
Stelpur rokka sem er fyrir allar stelpur á aldrinum 12
til 16 ára. Mikill fjöldi frábærra listamanna kom fram
á viðburðinum sem einkenndist af fjölbreytni og gleði.
Aðstandendur hátíðarinnar eru Valgeir Sigurðsson og
Sigríður Sunna Reynisdóttir sem standa meðal annars
að Bedroom Community í Vogaseli í Breiðholti. Með
þeim í samstarfshóp eru; Megan Horan, Berglind Sunna
Stefánsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Bobby Breiðholt,
Selma Reynisdóttir og Paul Evans. Breiðholt Festival er
skipulagt í nánu samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts
og Hverfisráð Breiðholts. Einnig er alþjóðlegt samstarf
við dönsku hverfishátíðina Mejlgade for Mangfoldighed
(MFM) og hið danska myndlistarteymi Artoteket Library.
Listasmiðjur voru unnar í samstarfi við Stelpur rokka og
DFM Company (Dansaðu fyrir mig).
Ljósmyndir: Magnús Elvar Jónsson.
Vel heppnað Breiðholt Festival
Hátíðargestir létu fara vel um sig í sólinni á tónleikas-
væðinu.
Björn S. Blöndal formaður borgarráðs setur Breiðholt
Festival. Boðið var upp á flot í Ölduselslaug.
Die Jodlerinnen syngur í Skúlptúrgarðinum við Vogasel.
Gamli Breiðholtsbúinn og fyrrum forstöðumaður í
Fellahelli rithöfundurinn Sjón var mættur á staðinn.