Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 11

Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 11
11BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015 Breiðholtsmótið í skák 2015 - Birnubikarinn fór fram á sal Hólabrekkuskóla. Sex skák- sveitir frá fjórum grunnskólum voru mættar til leiks. Skák er kennd í öllum þessum skólum, á stundatöflu, sem valfag í unglingadeild eða í skákklúbbi eftir skólatíma. Það er því mikil skákvirkni í grunnskólum Breiðholts um þessar mundir og ekki skemmir fyrir að hafa höfuðstöðvar Íslandsmeistar - anna í Mjódd en skákfélagið Huginn heldur þar úti öflugri skáks tar f semi , m .a . e r u barna- og unglingaæfingar alla mánudaga. Birnubikarinn er haldinn til heiðurs Birnu Halldórsdóttur fyrrum skólaliða við Hólabrekku- skóla. Þegar Birna starfaði í Hólabrekkuskóla stýrði hún skák- starfinu af miklum myndarbrag. Hún hvatti nemendur til að mæta í skáktíma, útvegaði skólanum skákkennara og sá um kennslu byrjenda. Minnisstætt er þegar Birna stóð fyrir kökubasar og nýtti allan ágóðann til að fjárfesta í skákklukkum fyrir skólann en Hólabrekkuskóli er afar vel búinn af skákbúnaði. Hólabrekka og Öldusel Baráttan um Birnubikarinn stóð milli heimamanna í Hólabrekku og sterkrar skáksveitar Öldu- selsskóla. Að lokum hafði sveit Ölduselsskóla sigur sem kemur ekki á óvart enda ein sterkasta skólasveitin í skák á landsvísu. Fellaskóli hafði þriðja sætið en sveit skólans samanstendur af krökkum úr áttunda bekk sem mæta í skákval einu sinni í viku. Auk þessara sveita mætti sveit frá Breiðholtsskóla og ungir nemendur Hólabrekkuskóla skipuðu svo b og c sveit skólans. Heildarúrslit: 1. Ölduselsskóli 18.5v af 20 mögulegum 2. Hólabrekkuskóli a-sveit 16.v 3. Fellaskóli 10.5v 4. Breiðholtsskóli 9.v 5. Hólabrekkuskóli b-sveit 3.5v 6. Hólabrekkuskóli c-sveit 2.5v Veitt voru verðlaun fyrir bestan árangur á hverju borði. Þau hlutu Heimir Páll Ragnarsson Hóla- brekkuskóla, Mykael Kravchuk Ölduselsskóla, Alex Sigurðarson Ölduselsskóla og Stefán Orri Davíðsson Ölduselsskóla. Skákakademían og Hólabrek- kuskóli sáu um framkvæmd m ó t s i n s o g n u t u e i n n i g góðrar aðstoðar foreldra og annarra velunnara skákstarfs í grunnskólum Breiðholts. Stefnt er að áframhaldandi samstarfi og keppnum milli grunnskólanna í hverfinu enda þótti mótið heppnast afar vel. Breiðholtsmótið í skák 2015 – Birnubikarinn Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Þangbakka 10 (MJÓDD) • Sími: 557-2053 Hólmfríður Guðjónsdóttir skólastjóri Hólabrekkuskóla og Birna Halldórsdóttir fyrrum skólaliði sem stýrði skákstarfinu í skólanum af myndarbrag á meðan hún starfaði þar. Í apríl og maí útskrifuðust síðustu nemendahópar nir sem tengjast Menntun núna verkefn inu . Nemendur í Grunnmenntaskóla Mímis í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti útskrifuðust í apríl og nemendur á námsbrautinni Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum útskrifuðust í maí. Síðustu íslenskunámskeiðin kláruðust í apríl en Dagur B. Eggertsson mætti á útskrift tælenskra íslenskunema sem haldin var í Gerðubergi og afhenti þeim skírteinin sín. Góður árangur hefur náðst af verkefninu en ætla má að yfir 3000 Breiðhyltingar og borgar- búar hafa notið góðs af ráðgjöf, f ræðs lu og námsbrautum tengdum verkefninu. Verkefnið hófst haustið 2013 með grein- ingarvinnu og undirbúningi, Jón Gnarr og Illugi Gunnarsson skrifuðu síðan undir samstarfs- samn ing 14. mars 2014. Í kjölfarið fóru af stað fyrstu námshóparnir í Gerðubergi og FB, f lest námskeiðin voru þó haldin á haustönn 2014 og nú á vorönn. Auk íslenskunámskeiða og náms- brauta frá Mími og Námsflokkum Reykjavíkur hefur verið boðið upp á margskonar fræðslu t.d. Fimmtudagsfræðslu annan hvern fimmtudag, leiðtoganámskeið fyrir konur af erlendum uppruna, Fab Lab námskeið og námskeiðið „Í Grasrótinni – um stofnun og rekstur félaga“. Rúmlega 1100 manns hafa sótt sér ýmsa fræðslu í tengslum við verkefnið. Yfir 320 stundað íslenskunám Lykilþáttur í verkefninu hefur verið náms- og starfsráðgjöf til handa brotthvarfsnemum en yfir 100 manns hafa hafið nám að nýju í kjölfar slíkrar ráðgjafar. Samtals hafa yfir 1200 ráðgjafaviðtöl verið veitt á tímabilinu. Samtals hafa yfir 260 manns stundað nám í FB og framhaldsfræðslunni og yfir 320 íslenskunemar hafa stundað nám í Gerðubergi. Íslenskuþorpið hefur risið í Breiðholti þar sem fyrirtæki og stofnanir hafa tekið þátt í íslenskunáminu með því að tala íslensku við nemendur og aðstoða þá þannig í náminu. Á heimasíðu verkefnisins www.menntun-nuna.is má finna upplýsingar um raunfærnimat á 9 tungumálum og um almennt mat á námi erlendis frá á ensku og íslensku með krækjum á þær stofnanir og staði sem veita slíka viðurkenningu. Verkefnið hefur átt í góðu samstarfi við Breiðholtsblaðið sem hefur verið duglegt að fjalla um verkefnið og árangur af því. Verkefnisstjórn og samstarf- steymi hafa ákveðið að halda áfram að vinna saman í fram- tíðinni en þar sitja fulltrúar stét- tarfélaga, framhaldsfræðslu, háskóla og Reykjavíkurborgar. Samstarfið mun nú tengjast u p p b y g g i n g u F j ö l s k y l d u - miðstöðvar í Breiðholti og snúa að áframhaldandi íslenskuken- nslu í Gerðubergi, samstarfi framhaldsskóla og framhalds- fræðslu um þróun á þjónustu við brotthvarfs nema og verkefnum tengdum samfélagsfræðslu og móttöku innflytjenda. Gott samstarf við NV kjördæmið Menntun núna verkefnið í Breiðholti er annað tveggja verkefna undir sömu yfirskrift. Hitt verkefnið er í Norðves- tur kjördæmi en mikið og gott samstarf hefur verið á milli verkefnanna t.d. í ráðstefnum sem haldnar voru á Ísafirði og Breiðholti um íslenskunám og fjölmenningarsamfélagið, sameiginlega heimasíðu en þann 18. maí höfðu verkefnin í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnul í fs ins staðið fyrir sameiginlegu málþingi í Gerðu- bergi um lærdóm af verkefnunum. SGK Menntun núna verkefninu að ljúka Útskriftarhópur úr Mímí nú í apríl. ÍR- og Leiknisvörur í úrvali Enskar fótboltavörur Leikföng í úrvali

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.