Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 12

Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 12
12 Breiðholtsblaðið JÚNÍ 2015 Míla hefur nú lokið við að uppfæra Ljósveitubúnað sinn í götuskápum í Breiðholti og þar með hafa heimili möguleika á allt að 100 Mb/s tengingu með Ljósveitu Mílu. Þau svæði sem nú hafa verið uppfært er allt Höfuðborgarsvæðið, Akranes, Hveragerði og Þorlákshöfn. Þar með hafa alls um 89 þúsund heimili nú möguleika á 100 Mb/s tengingu með Ljósveitu. Til viðbótar hafa um 30 þúsund heimili aðgang að Ljósveitu með allt að 70Mb/s tengingu. Þetta eru um 120 þúsund heimili í heildina og gerir þetta stöðu Íslands gríðarlega sterka í samanburði við önnur lönd. Í nýrri skýrslu starfshóps innanríkisráðherra „ Ís land ljóstengt“ kemur fram það markmið að allir landsmenn skuli hafa aðgang að 100Mb/s tengingu árið 2020. Þingsályktunartillaga um f jarsk iptaáæt lun sem samþykkt var á Alþingi setur 100Mb/s markið fyrir árið 2022. S a m k v æ m t J ó n i R . Kristjánssyni framkvæmdastjóra Mílu þá er þetta stór áfangi. Breytingin er veruleg þó að fæstir muni taka eftir henni þar sem notkunarþörf heimila almennt er mun minni en 100 Mb/s. Það endurspeglast í markmiði starfshóps innanríkisráðherra um að þessum áfanga skuli náð 2020. “Engar framkvæmdir fylgja þessari uppfærslu, hvorki í götu, á húsnæði notenda eða lóð. Þessi aukning hefur sömuleiðis ekki áhrif á verð þjónustunnar frá Mílu” segir Jón. Aðeins þarf að skipta um búnað í götuskápum Mílu og er þeirri aðgerð lokið á ofangreindum svæðum. Langflestir notendur þ jónustunnar verða l í t ið varir við þessa útskiptingu og núverandi þjónusta mun virka áfram. Þjónustuveitendur sjá um að uppfæra eða skipta um endabúnað(router) viðskiptavina til að virkja þjónustuna. Míla þjónustar alla Hingað til hefur umræða um 100Mb/s verið tengd ljósleiðara. Er þá Ljósveita það sama og ljósleiðari? „Ljósveita er bæði ljósleiðari alla leið inn á heimili og ljósleiðari með koparenda þar sem búnaður er notaður til að ná 100Mb/s flutningsgetu. Nýjasta tækni gerir það að verkum að kapalgerð skiptir hér ekki máli.” segir Jón. Míla hefur lagt áherslu á að tryggja öllum notendum á ofangreindum svæðum góðan hraða en velur sér ekki ákveðnar götur eða hverfi. Sömuleiðis er vert að benda á að Ljósveita Mílu er opið aðgangsnet fyrir öll fyrirtæki með fjarskiptaleyfi. Mikilvægur áfangi og trygg framtíð Nú er mikilvægum áfanga náð en verkefninu er ekki lokið. Þetta hefur verið umfangsmikið verkefni sem hófst árið 2009 með Ljósveituvæðingu sem stendur enn yfir víða um land. Nú þegar búið er að tryggja allt að 100Mb/s til allra notenda Ljósveitu á ofangreindu svæði, er næsta skref Mílu að tengja ljósleiðara og blása ljósleiðara í fyrirliggjandi rör samhliða þeirri tengingu sem þegar er til staðar. Þetta verkefni er þegar hafið og mun því fylgja lítið jarðrask sem lágmarkar bæði tilkostnað og óþægindi fyrir notendur. Þannig mun Míla tryggja til framtíðar að þegar á þarf að halda verða allir notendur á ofangreindu svæði með tengingu sem uppfyllir þeirra þarfir á hagstæðu verði. Míla kynnir 100Mb/s tengingar Jón R. Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu. 100 Mb/s um Ljósveitu aðgengileg í Breiðholti Bókaútgáfan Hólar í Breiðholti hefur gefið út bókina Kveikjur eftir séra Bolla Pétur Bollason, fyrrum prest í Seljakirkju og nú sóknarprest í Laufási. Innihald bókarinnar eru 40 smásögur og í þeim er tæpt á þjóðfé- lagsmálum á borð við fátækt, einelti, ofbeldi í ýmsum myndum, einsemd og siðferðisbrestum, siðferðilegum álita- málum, tilvistar- og tilgangsspurning- um, sorginni, gleðinni, kærleikanum, samskiptum fólks og endalokunum. Það er öllum hollt að lesa þessa bók og velta fyrir sér efni hennar. Hún hentar jafnt unglingum sem hinum eldri og sögurnar mega vel nýtast sem ísbrjótar fyrir samtal og sameiginlegar vangaveltur. Ljósmyndir prýða bókina og eru þær eftir Völund Jónsson. Bolli Pétur með smásögubók Kápa hinnar nýju bókar Bolla Péturs Péturssonar. www.breidholt.is

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.