Breiðholtsblaðið - jun 2015, Qupperneq 14
14 Breiðholtsblaðið JÚNÍ 2015
Fyrsta námskeið Knatt-
spyr nuskóla Leiknis og
Dominos hófst á miðvikudag-
inn, 10. júní. Knattspyrnuskó-
linn er fyrir stelpur og stráka
á aldrinum 5-12 ára og verður
boðið upp á fimm námskeið í
sumar sem standa í tvær vikur
hvert.
Hlynur Helgi Arngrímsson er
skólastjóri knattspyrnuskólans.
Hlynur er uppalinn Leiknis-
maður og hefur þjálfað 5. flokk
undanfarin misseri en hefur
einnig þjálfað þau allra yngstu.
Hann hefur góða reynslu og
er vel liðinn af iðkendum og
foreldrum. Um áherslur knatt-
spyrnuskólans segir Hlynur:
"Við förum í helstu grunnþætti
knattspyrnunnar í bland við
leiki, skemmtun og fjör. Við
reynum að hafa æfingarnar fjöl-
breyttar og umfram allt skem-
mtilegar. Auk þess að fara í sund
erum við með pizzuveislu og
svo er verðlaunaafhending í lok
hvers námskeiðs. Við fáum líka
leynigesti í heimsókn."
Þ e s s m á g e t a a ð
v e r ð f y r i r n á m s k e i ð í
knat tspyrnuskó lanum er
stillt verulega í hóf til þess
að sem flestir geti tekið þátt.
Námskeiðin eru virka morgna
frá kl. 9-12 en boðið er upp á
gæslu án endurgjalds frá kl. 8-9.
Einnig er boðið upp á dagskrá
frá kl. 12-16 fyrir iðkendur
félagsins. Ekki þarf að skrá sig
fyrir fram heldur þarf bara að
mæta tímanlega fyrsta daginn.
Námskeiðin í sumar verða sem
hér segir:
10. júní - 19. júní
22. júní - 3. júlí
6. júlí - 17. júlí
20. júlí - 30. júlí
10. ágúst - 21. ágúst.
"Ég hvet alla káta krakka til
þess að koma í Knattspyrnuskó-
la Leiknis í sumar hvort sem er
til að kynnast knattspyrnunni
frá grunni eða reyna að bæta
sig sem knattspyrnumenn- og
konur, og hafa gaman af um
leið", segir Hlynur að lokum.
GS
Knattspyrnuskóli
Leiknis og Dominos
farinn af stað
Leiknir fagnar fjölbreytileikanum
Nýjum iðkendum hjá Leikni fjölgar með ári hverju og eru aðstan-
dendur félagsins einkar ánægðir með það. Eitt af því sem hefur
einkennt iðkendahópinn er hversu bakgrunnur barnanna er fjölbreyt-
tur. Krakkar frá ríflega 20 þjóðlöndum eru að æfa hjá Leikni. Lönd
eins og Nepal, Kósóvó, Nígería, Sri-Lanka og Spánn, til að nefna örfá.
Fyrir fyrsta heimaleik Leiknis í Pepsí deildinni var ákveðið að sýna
hverfinu og almenningi hve félagið er stolt af þessum fjölbreytileika. Það
er staðreynd í íslensku samfélagi að fólki er mismunað eftir uppruna.
Með þessu uppátæki okkar vildum við, sem stöndum að félaginu,
sýna hversu ánægð við erum með okkar iðkendur óháð uppruna og
undirstrika og félagið leggur sitt af mörkum til að útrýma fordómum. Á
fyrsta heimaleik Leiknis þann 11. maí sl. mættu því yfir 20 eldsprækir
strákar tilbúnir að ganga inn á völlinn með leikmönnum og með fána
frá sínu upprunalandi í hönd. KSÍ studdi vel við bakið á Leikni til að
þessi uppákoma gæti orðið að veruleika og viljum við koma á framfæri
þakklæti til sambandsins.
Sigríður Jónasdóttir formaður Meistaraflokksráðs Leiknis.
Leiknir hefur byrjað af
krafti í Pepsi deild karla þetta
sumarið. Liðið leikur í fyrsta
skipti í deildinni eftir að hafa
unnið 1. deild karla á síðasta
tímabili. Davíð Snorri Jónasson
þjálfar Leiknisliðið ásamt Frey
Alexanderssyni. Davíð var í
stuttu spjalli um byrjun Leiknis í
Pepsi deildinni.
Nú þegar Íslandsmótið er farið
á fulla ferð, myndirðu segja að
gengið væri framar vonum?
„Gengið hefur verið við þau
markmið sem liðið setti sér. Við
höfum fulla trú á okkur enda
með fullt lið af metnaðarfullum
og góðum leikmönnum. Liðið
hefur æft vel og undirbúið sig til
að vera í sem bestri stöðu og við
þurfum að halda áfram að virða
gildin okkar, þá stöndum við
okkur vel.“
Oft er talað um að nýliðar
fari langt í að byrja mót vel á
stemningunni, er það tilfelli
Leiknis eða mun stigasöfnunin
halda áfram með þessum hætti?
„Stemmingin hefur verið
góð bæði innan sem utan
vallar, Leiknisljónin utan vallar
hafa verið frábær. Liðsheild og
samheldni er mikil í Leikni og
er hún stór hluti af gengi okkar
undanfarin ár. Með þessari
liðsheild eru mikil gæði inn á
fótboltavellinum og saman skilar
þetta allt árangri. Við horfum
fram veginn og höldum áfram að
sækja fleiri stig.“
Hvað ertu ánægðastur með
í spilamennsku liðsins í upphafi
móts?
„Við erum mjög skipulagðir og
varnarleikur liðsins hefur verið
góður. Við höfum þorað að fara
ofarlega og sækja boltann af
hinum liðinum sem krefst mikils
aga og vinnu. Menn vilja hlaupa,
eru taktískt klókir og vinna fyrir
hvorn annan. Þessi vinna skilar
okkur góðum sóknarstöðum í
kjölfarið sem skapa færi og mörk.
Leikmenn hafa tekið framförum
með hverjum leiknum og nýtt
tækifærin sín. Að sjá leikmenn
njóta þessa að vera á stóra
sviðinu og sýna að þeir eru
tilbúnir hefur glatt okkur Frey og
starfsliðið mikið.“
Hversu mikil breyting er að
félagið er komið í deild þeirra
bestu?
„Umfjöllunin er mun meiri og
athyglin er á okkur fyrir góða
frammistöðu innan sem utan
vallar. Við erum að læra með
hverjum deginum ekki bara inn
á vellinum heldur líka utan hans.
Þetta er frábært stökk fyrir félagið
að vera komið í efstu-deild og það
er okkar að nýta tækifærið og
gera félagið enn stærra og betra.“
S t u ð n i n g s m a n n a s v e i t i n ,
Leiknisljónin, styðja liðið og
skemmta sér á jákvæðan hátt í
90 mínútur í hverjum leik. Hversu
mikilvægt er að hafa svona
stuðningsmenn?
„Leiknisl jónin eru bestu
stuðningsmenn á Íslandi og
eru að brjóta blað í íslenskri
knattspyrnu með ótrúlegum
stuðningi. Það er ómetanlegt að
hafa slíkan stuðning við bakið
á okkur í hverjum leik. Það
hefur sýnt sig í hverjum leik
hvað það fylgir mikil ástríða
Leiknisljónunum og þessi jákvæði
stuðningur gefur okkur ótrúlegan
kraft inn á völlinn. Það eru ekki
bara fyrirmyndir sem eru að
skapast inn á fótboltavellinum
f y r i r u n g a B re i ð h y l t i n g a
heldur einnig í stúkunni. Börn
í Breiðholtinu kunna lögin og
má sjá enn fleiri ganga um
hverfið sem stolta Leiknismenn.
Leiknisljónin eiga mikinn þátt í
þessari stemmingu og jákvæðu
vakningu sem er að verða
gagnvart Leikni og Breiðholtinu.“
EGM
Mikil liðsheild og gæði í Leikni
Davíð Snorri Jónsson að hvetja
sína menn.
Fyrir fyrsta heimaleik Leiknis í Pepsí deildinni var ákveðið að sýna
hverfinu og almenningi hve félagið er stolt af þessum fjölbreyt-
ileika. Það er staðreynd í íslensku samfélagi að fólki er mismunað
eftir uppruna. „Segjum nei við kynþáttafordómum“ er letrað á
borðann á ensku.
... segir Davíð Snorri Jónsson.
Þó svo að sumarbyrjunin hafi verið í kaldara
lagi hefur samt verið bjart í Breiðholtinu og það
er bjart framundan. Við sem störfum við yngri
flokka Leiknis erum óendanlega bjartsýn á næstu
mánuði, þetta verður skemmtilegt sumar.
Nú í júníbyrjun var öllum börnum í 1. bekk
grunnskólanna í Efra-Breiðholti færð peysa að gjöf
frá Leikni. Peysurnar eru fallega límónugrænar,
áberandi sumarlegar, með áletruninni "Leiknir-
Stolt Breiðholts". Með gjöfinni viljum við minna á
okkur og hvetja foreldra til að leyfa börnum sínum
að prófa að æfa fótbolta hjá Leikni. Leiknir býður
upp á góðar aðstæður til knattspyrnuiðkunnar og
æfingasvæðið okkar er frábærlega staðsett. Við
leggjum mikið upp úr því að vel sé tekið á móti
öllum sem vilja æfa fótbolta og státar félagið af
reynslumiklum og metnaðarfullum þjálfurum.
Æfingagjöldin hjá Leikni eru þau lægstu á
höfuðborgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað enda
finnst okkur mikilvægt að öll börn hafi tækifæri til
að æfa íþróttir, óháð efnahag foreldra. Við bjóðum
alla velkomna að æfa hjá Leikni - sértaklega yngstu
börnin. Svo vonum við bara að sumarið gefi okkur
marga daga þar sem hægt er að vera úti á peysunni.
Nánari upplýsingar um æfingatíma, verð
og þjálfara er að finna á heimasíðunni okkar
www.leiknir.com
Kveðja frá unglingaráði Leiknis
Yngstu börnin boðin sérstaklega velkomin
Peysurnar eru fallega límónugrænar, áberandi
sumarlegar, með áletruninni "Leiknir-Stolt
Breiðholts".
Eins og Breiðhyltingar flestir vita þá er lið Leiknis að spila í fyrsta sinn í efstu deild í
knattspyrnu, sjálfri Pepsideildinni, núna í sumar. Þetta er stór stund í 42 ára sögu félagsins
og einsetti Leiknisfjölskyldan sér að njóta hverrar mínútu. Liðinu hefur gengið vel það
sem af er móti og hefur fengið verðskuldaða athygli. En baráttan innan vallar er ekki bara
það sem hefur ratað í fjölmiðla heldur hefur hin vaska stuðningssveit Leiknisljónin fengið
einróma lof allra knattspyrnuunnenda.
Leiknisljónin hafa fylgt liðinu frá því rétt fyrir aldamót en hjörðin hefur verið misstór
milli ára. Fyrir þetta tímabil var ákveðið að nú yrði allt sett í botn og að launa leikmönnum
liðsins tryggðina við félagið með grimmum ljónaöskrum. Aron Fuego Daníelsson sem lék
með liðinu í fyrra hætti nýverið eftir þrálát meiðsli og tók sér stöðu upp í stúku. Hann hefur
ásamt Orra Eiríkssyni dregið vagninn og smalað saman líflegri ljónahjörð sem hefur fjölmennt
á alla leiki liðsins þetta sumarið. Sveitin mætti á Hlíðarenda í fyrsta leik sumarsins og söng
sig inn í Pepsideildina með jákvæðni að vopni. Sýn Leiknisljónanna er nefnilega sú að vera
alltaf jákvæð, hávær, sýna virðingu og taka til eftir sig. Ljónin láta ekkert stoppa sig. Þrátt
fyrir veðurofsa og þá staðreynd að Herjólfur gekk ekki milli lands og eyja fyrir leik ÍBV og
Leiknis í fjórðu umferð fjölmenntu ljónin
til Vestmannaeyja með krókaleiðum og
háskafullri siglingu með Viking tours.
Eftir leikinn skrifaði gæslumaður á
vellinum á opinberan vef að aldrei hafi
hann séð aðra eins jákvæða og kurteisa
stuðningssveit. Frammistaða ljónanna er
því til fyrirmyndar.
Leiknisljónin ætla að halda uppteknum
hætti í allt sumar. Þau bíta ekki frá sér og
bjóða öllum áhugasömum Breiðhyltingum
að ganga í hjörðina. Langar þig að ganga
í vaskan kór sem syngur um hetjudáð
Breiðhyltinga og heillar alla með jákvæðnisbrag? Komdu þá og vertu með Leiknisljónunum.
MG
Öskur Leiknisljónanna ómar sem aldrei fyrr
Leiknisljónin slá ekki slöku við.