Breiðholtsblaðið - jún. 2015, Blaðsíða 15
15BreiðholtsblaðiðJÚNÍ 2015
Fréttir
Íflróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Tölvu póst ur: ir@ir.is
Heimasíða: ir.is
GETRAUNANÚMER
ÍR ER 109
Frá uppskeruhátíðinni.
ÍR-ingar á toppi
2. deildar
Uppskeruhátíð yngri flokka
körfuknattleiksdeildar ÍR
Hlynur Andrésson ÍR varð
í 4. sæti af 14 keppendum í
3000 m hindrunarhlaupi á Mid
American Championships í dag.
Hann hljóp á 9:20,44 mín sem er
hans besti tími en þetta er hans
annað 3000 m hindrunarhlaup
á ferlinum og bæting um 5 sek. á
milli vikna.
Þessi tími setur Hlyn í 14. sæti
á íslenskri afrekaskrá en þetta er
jafnframt besti tími íslensks karls
síðan árið 2008. Íslandsmetið á
Sveinn Margeirsson 8:46,2 mín
síðan árið 2003. Hlynur keppti
einnig í 1500 m á sama móti, varð
6. af 12 keppendum og bætti sig,
hljóp á 3:50.34 mín. Hann átti best
3:51,62 mín en tíminn setur hann
í 8. - 9. sæti á íslenskri afrekaskrá.
Þá einnig geta þess að keppti í
5000 m hlaupi á Jesse Owens
Classic mótinu í Columbus Ohio
1. maí. Hann hljóp á glæsilegum
tíma, 14:24,25 mín og varð í 3.
sæti eftir harða keppni. Hann
bætti sig um 30 sekúndur miðað
við besta tíma sinn utanhúss
en hann á 3 sek betri tíma
innanhúss.
Hlynur Andrésson er óstöðvandi
Guðni Valur Guðnason gerði
sér lítið fyrir og sigraði í krin-
glukasti og bætt sinn besta
árangur um 79 cm þegar hann
kastaði 56,40 m. Stórglæsilegt
hjá honum og 3 m. lengra en
næsti maður.
Aníta Hinriksdóttir sigraði
1500 m örugglega og kom í mark
á 4:26,37 mín sem er ekki langt
frá hennar besta. Arnar Péturs-
son lék sama leik og Guðni
og Aníta og sigraði sína grein,
3000 m hindrunarhlaup, hann
hljóp á 9:22,16 mín og bætti sig
um 2 sek.
Guðni Valur kastaði 56,40 m.
Andrea Kolbeinsdóttir ÍR varð Íslandsmeistari í 10 km götuhlaupi
sem fram fór í Garðabæ á uppstigningardag.
Hún sigraði á tímanum 40:58 mín. Í karlaflokki varð Arnar Pétursson
ÍR í öðru sæti á 33:11 mín. Eva Skaarpas sigraði í flokki 40 - 49 ára. Í 5
km hlaupi sem fram fór samhliða sigraði Valur Þór Kristjánsson ÍR.
Lið ÍR í meistaraflokki
karla í knattspyrnu byrjar
keppnistímabilið með glæsibrag.
Liðið leikur í 2. deild og hefur
unnið fyrstu fjóra leikina sem
það hefur spila, skorað 10 mörk
og ekki enn fengið á sig mark.
Fyrstu tvo leikina vann liðið
heima á Hertzvellinum í Mjódd
með 1-0 á móti KV og Sindra.
Næsti sigur vannst svo á
útivelli í Þorlákshöfn á móti
Ægi þar sem ÍR-ingar skoruðu
fjögur mörk gegn engu. Aftur
vannst svo öruggur 4-0 sigur á
Hertzvellinum á móti Hetti.
F immti le ikur inn er gegn
Tindastól i og fer f ram á
Sauðárkróki en lið norðanmanna
er í neðsta sæti deildarinnar
á meðan ÍR-ingar tróna á toppi
deildarinnar eftir frábæra byrjun
með 12 stig. Andri Jónasson
hefur skorða mest ÍR-inga eða
þrjú mörk og Jóhann Arnar
Sigurþórsson tvö. Magnús
Magnússon stendur í marki
ÍR-inga eins og undanfarin ár og
hefur ekki fengið á sig mark til
þessa. Breiðholtsbúar eru hvattir
til að mæta á leiki liðsins í sumar
til að styðja ÍR-liðið í baráttunni
fyrir sæti í 1. deild að ári.
Uppskeruhátíð Körfuknattleiksdeildar ÍR var
haldin fimmtudaginn 21. maí sl og veittar voru
viðurkenningar fyrir þátttöku og frammistöðu
vetrarins í yngri flokkum félagsins. Margir flokkar
stóðu sig vel í vetur en besta árangurinn átti 10.
flokkur karla sem hampaði Íslandsmeistaratitli
núna í vor.
Meðal verðlaunahafa má nefna að Ísak Máni
Wíum fékk nafnbótina ÍR-ingur ársins fyrir störf
í þágu deildarinnar og Snædís Árnadóttir fékk
Guðrúnarbikarinn sem veittur er í minningu um
Guðrúnu Ólafsdóttur sem var öflugur félagsmaður
hjá ÍR. Eins og venjan er orðin var keppt í Stinger
að körfuknatttleikssið eftir verðlaunaafhendingar
og þar sigraði Skúli Kristjánsson í eldri flokknum en
Óskar Víkingur Davíðsson í þeim yngri.
Gott gengi er í fótboltanum hjá ÍR.
Guðni Valur Guðnason.
Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslandsmet 24. maí
sl. á stórmóti í Hengelo í Hollandi. Hún var þar í
hóp með bestu millivegalengdahlaupurum heims
og gerði sér lítið fyrir og varð í 5. sæti þegar hún
hljóp á 2:36,63 mín sem er nýtt Íslandsmet.
Eldra metið átti Ragnheiður Ólafsdóttir 2:44,6
mín síðan árið 1982. Tíminn er aðeins 1 sekúndu frá
Evrópumetinu í þessum flokki. Þessi árangur Anítu
og árangur hennar í 800 m. daginn áður sýnir hvað
hún er í góðu formi, svo snemma í tímabilinu. Til
hamingju Aníta.
Aníta með nýtt Íslandsmet
Umfangsmikið sumarnámskeiðahald hófst á
vegum ÍR mánudaginn 15. júní og mun standa
óslitið fram í ágúst. Auk hefðbundinna æfinga
verður boðið upp á eftirtalin námskeið á vegum
félagsins í sumar:
Sumarnámskeiðin byggja á vikulöngum hálfsdags
eða heilsdags íþrótta- og listanámskeiðum fyrir börn
6 til 9 ára. Börnin geta valið um íþróttabraut eða
leikja- og listabraut. Boðið er upp á gæslu fyrir og
eftir námskeið og í fyrsta skipti á sumarnámskeiðum
ÍR verður boðið upp á heitan mat í hádeginu.
Íþróttafræðingarnir Sigríður Ósk Fanndal og Óðinn
Björn Þorsteinsson stjórna námskeiðunum og hafa
með sér fjölda frábærra leiðbeinenda. Gríðarleg
aðsókn er að námskeiðunum og því eins gott að
skrá sig sem fyrst áður en fullbókað verður.
Fótboltaakademía ÍR og BK kjúklings
Boðið verður upp á þrjú tveggja vikna
fótboltanámskeið fyrir krakka 9 til 13 ára. Yfirþjálfari
fótboltaakademíunnar er Halldór Þ. Halldórsson
sem er með UEFA A licence þjálfararéttindi og
honum til aðstoðar margir góðir aðstoðarþjálfarar.
Fyrsta námskeiðið sem er fram á ÍR-vellinum í
Mjódd hófst 15. Júní en hin námskeiðin hefjast 6.
júlí og 10. ágúst. Takmarkaður fjöldi kemst að á
hvert námskeið.
Körfuknattleiksnámskeið ÍR
Körfuknattleiksdeild ÍR stendur fyrir þremur
körfuboltanámskeiðum fyrir 6 til 9 ára börn í
Seljaskóla í sumar. Þjálfarar yngri flokka ÍR sjá um
kennslu á námskeiðunum. Námskeiðin hófust 15.
júní og verða einnig 22. júní og 10. ágúst og standa
yfir frá 8:30 til 12:30 og eru viku löng.
Handboltanámskeið ÍR
Handknattleiksdeild ÍR stendur fyrir tveimur hálfs
mánaðar löngum námskeiðum í handbolta fyrir
börn 10 til 15 ára í sumar. Leikmenn meistaraflokks
karla og kvenna ÍR í handbolta sjá um kennsluna
en Einar Hólmgeirsson fyrrverandi atvinnumaður
í handbolta stjórnar námskeiðunum. Námskeiðin
hófust 15. júní og og verða einnig 10. ágúst og
standa yfir í tvær klukkustundir hvern dag.
Takmarkaður fjöldi kemst að.
Nánari upplýsingar og skráning á www.ir.is og í
síma 587-7080
Fjölbreytt og vinsæl
sumarnámskeið ÍR hafin
Heimasíða
www.ir.is
Andrea Íslandsmeistari í 10 km götuhlaupi