Breiðholtsblaðið - jan. 2017, Síða 9

Breiðholtsblaðið - jan. 2017, Síða 9
9BreiðholtsblaðiðJANÚAR 2017 Myndlistarskólinn í Reykjavík starfrækir útibú í Miðbergi í Breiðholti. Skólinn hefur verið með kennslu í myndlist í eystri byggðum borgarinn- ar allt frá árinu 2004. Fyrsta myndlistarkennslan í Breiðholti var í gamla skátaheimilinu sem varð eldi að bráð fyrir nokkrum árum. Myndlistar - kennsla á vegum skólans hefur einnig verið í Gerðubergi á Korpúlfsstöðum í vinnustofu Br ynhildar Þorgeirsdóttur myndlistarkonu sem hefur annast kennslu á þessum stöðum. Nú fer kennslan fram í Miðbergi sem er mjög þægilegt með tilliti til því félags- og ung- mennastarfs sem þar fer fram. Brynhildur segir Myndlist- arskólann lengi hafa lagt mikið upp úr því að fara út í byggðir borgarinnar – borgarhverfin til þess að sinna kennslu. Skólinn sé staðsettur vestast í Vest- urbænum nánar tiltekin í JL húsinu við mörk Hringbrautar og Ánanausta og því langt að fara úr eystri byggðunum til þess að stunda nám þar. Staðsetningin í Miðbergi sé mjög heppilegt og nú sé unnið að því að bæta tveimur kennslustöðum. Önnur þeirra kemur til með að verða á Korpúlfsstöðum og segir Brynhildur til greina koma að fara í samstarf við einhverja af þeim listamönnum sem eru þar með vinnustofur. Tvær deildir í Miðbergi Myndlistarskólinn er með tvær deildir í Miðbergi. Fyrir krakka frá sex til níu ára og frá níu til 12 ára. Brynhildur segir myndlist- ina á áhugasviði marga krakka og ungmenna og mikilvægt að mæta því – ekki síst með því að dreifa kennslunni út til hverfanna. Í Miðbergi er kennt á mánudögum og miðvikudögum. Yngi deildin kemur á kennslustað á mánudögum og á námskeiðinu eru unnin fjölbreytt verkefni þar sem nemendur vinna með ýmis ólík efni. Verkefnin sem eru lögð fyrir byggja á grundvall- aratriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga. Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli barnanna, ör va skapandi hugsun og persónulega tjáningu, ásamt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni. Eldri hópurinn er í skólanum á miðvikudögum þar sem einnig eru unnin fjölbreytt verkefni þar sem nemendur vinna með ýmis ólík efni. Verkefnin sem eru nokkuð þau sömu og hjá hinum yngri byggja einnig á grundvall- aratriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga auk þess sem leitast er við að kveikja áhuga á myndgerð og formhugsun í víðara samhengi, m.a. í gegnum listasöguna. Nokkuð hefur reynst erfitt að fullnýta námskeiðin en nú eru bæði þessi námskeið fullbókuð en hægt er að skrá sig á biðlista en gera má ráð fyrir aðfrístunda- styrkir Reykjavíkurborgar ýti undir þátttöku í myndlistarnámi barna. Áhugaverð sumarnámskeið Myndlistarskólinn stendur einnig fyrir sumarnámskeiðum. Um er að ræða eins til tveggja vikna löng námskeið fyrir börn og ungt fólk á aldrinum fjögurra til sextán sem eru þá kennd í júní eða ágúst. Skráning hefst Sumardaginn fyrsta en framboðið á námskeiðum verður komið á heimasíðuna aðeins fyrr svo fólk getur skoðað hvað verður í boði. Þá má geta þess að Myndlistar- skólinn í Reykjavík verður 70 ára á þessu ári og verður þess minnst með haustinu. Markvisst myndlistarnám í Miðbergi Ýmiskonar vinnubrögðum er beitt. Myndlistarskólinn í Reykjavík KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ INN Á WWW.HUSVAKI.IS Með því að taka í notkunn gæðakerfið HÚSVAKA þá fæst heldaryfirlit yfir húsfélagið þitt. Gæðakerfið skiptist í þrjá kafla og sameiginlega halda þeir utan um alla verkferla í einu skilvirku gæðakerfi. Nethyl 2a, 2 hæð 110 Reykjavík Sími: 893 3022 husvaki@husvaki.is GÆÐAKERFI HÚSFÉLAGA Flottar teikningar hjá krökkunum: - nauðsynlegt að fara með kennslu í ytri hverfi borgarinnar Námskeið voru haldin í Íslensku fyrir hópa af arbískumælandi hælisleitendum og innflytjendum. Námskeiðin voru kölluð Íslenska I og II og voru haldin á vegum Jafnréttshúss í samstarfi við Fjölskyldumiðstöðina í Gerðubergi. Í lok námskeiðanna var boðið upp á arabíska rétti sem þátttakendur í námskeiðnum sáu um. Fólk í félagsstarfinu í Gerðubergi gæddu sér meðal annarra á þeim réttum sem voru í boði og ekki er annað að sjá en þeim hafi líkað vel að kynnast framandi matarmenningu. Íslenska I og II fyrir arabískumælandi ALLTAF FULLT BORÐ AF FERSKUM FISKI OG FISKRÉTTUM Opið alla virka daga kl. 9 – 18:30.

x

Breiðholtsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.