Breiðholtsblaðið - Jan 2017, Page 11

Breiðholtsblaðið - Jan 2017, Page 11
Séra Þórhallur Heimisson sóknarprestur í Breiðholtskirkju er að fara af stað með námskeið þar sem hann mun fjalla um Íslam. Á námskeiðinu kveðst hann ætla að varpa fram spurningum um hvaða fyrirbæri Íslam sé. Hann mun fara í gegnum sögu íslam, skoða mismunandi stefnur og strauma og hvað valdi þeirri stöðu sem nú sé uppi. Hann segir að fólk viti oft ekki mikið um þann veruleika og þá sögu sem býr að baki þessum trúarbrögðum. Því hafi menn ekki möguleika á að vega og meta þann fréttaflutning sem berst af múslímum, fréttir af átökum, stríðandi fylkingum og ýmiskonar stríðshryllingi sem jafnan ber þar hæst. Námskeiðið ætlar hann að halda í safnaðarheimili Neskirkju vestur í bæ í febrúar og vill hvetja alla sem áhuga hafa til að nýta sér þann fróðleik sem hann hefur tekið saman og ætlar að miðla af. Þórhallur segir að reglulegur fréttaflutningur leiði til þess skilnings að sá hluti veraldarinnar sem telst til hins íslamska heims logi í stríðsátökum. Einnig sé um fátt meira deilt á Vesturlöndum í dag en þessi trúarbrögð. Stjórnmálahreyfingar yst á kanti hins pólitíska litrófs hafi eflst með hatursáróðri og honum sé beint gegn hinum íslamska heimi. Hefur lengi haft áhuga á sögu þessa heimshluta Þórhallur er engin nýgræðingur í þessum fræðum. Hann hefur lengi haft áhuga á þeim. „Já – ég hef lengi haft mikinn áhuga á trúarbragðasögu og hvernig hún tengist mannkynssögunni. Ég byrjaði að stúdera þessi mál árið 1991 þegar ég var við framhaldsnám í trúarbragðafræði í Danmörku og síðar Svíþjóð og hef haldið því áfram síðan. Ég hef haldið fjölmörg námskeið um þetta málefni í gegnum tíðina og skrifað um þau bækur og greinar. Eins hef ég heimsótt helgustu staði flestu stóru trúarbragðanna, einn og með hópa. Nú ætla ég mér að fjalla um sögu og kenningar Íslam og leita svara við spurningum á borð við hver Múhameð hafi í raun verið, hvað Kóraninn sé, hvernig hann hafi orðið til og hverjar séu heimildirnar að baki honum. Eins mun ég fjalla um heilagt stríð eða jíhad, súlurnar fimm, kalífatið og muninn á sunní, shía og súfí múslímum. Við munum einnig skoða hreyfingar eins og Hamas, Ísmaelíta, Wahabíta, Alavíta, Mogúla, Al quaída og síðast en ekki ÍSIS og útbreiðslu Íslam í dag. Einnig skoðum við á námskeiðinu forn og ný veldi Íslam, átök Evrópu og Íslam sem nú hafa farið stigvaxandi, Krossfarartímann, Ottómana, Bagdad og Mamelúka. Og ég mun leggja sérstaka á þau átök menningarheima sem nú eiga sér stað í Sýrlandi, Írak, Tyrklandi Íran og Afganistan auk hryðjuverka og að sjálfsögðu flóttamannavandann. Í lokin fá allir með lesefni sem ég hef tekið saman um þessa sögu alla”. Átök eiga sér aldagamlar rætur Þórhallur segir að þótt átök á milli trúarhópa og þjóðarhópa í Austurlöndum nær eigi sé alda gamlar rætur þá hafi margt breyst 11. september 2011 þegar flugvélum var flogið á tvíburaturnana í New York með skelfilegum afleiðingum. Þessi vandi er bæði gamall og nýr en þarna breyttist veruleikinn til hins verra og margvísleg átök hafa brotist út í kjölfarið, nú síðast borgarastyrjöldin í Sýrlandi. Þórhallur segir að spurningar um alla þessa sögu brenni á mörgum og það vanti oft svörin til þess að geta áttað sig betur á samtímanum. „Að baki átakanna í Miðausturlöndum er mjög flókinn saga. Trúarhópar íslam eru ólíkir og þarna koma margir menningarheimar saman. Allt frá Persíu/Íran í austri til Tyrklands og Evrópu í vestri.“ Hann segir að við það megi síðan bæta að Bretar hafi við lok fyrri heimsstyrjaldarinnar strikað landamæri þessara ríkja niður á blað og gangi þau þvert á þjóðerni, menningu og trúarbrögð. Bretar hafi jafnvel farið eftir fjallgörðum á landakortinu fremur en þeim mannheimi og mannlífi sem þar var að finna. „Það sem nú er að gerast í þessum heimshluta, einkum í Sýrlandi en einnig í fleiri ríkjum er að ólíkir íslamskir menningarheimar keyra inn í hvorn annan og þúsund ára menningarmunur og jafnvel hatur á milli kynþátta stýra gjörðum manna. Þetta er hræðileg blanda og engin greið leið út úr henni.“ Þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessum málum betur er bent á námskeiðið sem verður haldið í Neskirkju 6. og 13. febrúar. Námskeiði byrjar 20.00 bæði kvöldin og hægt er að skrá sig og fá nánari upplýsingar hjá Þórhalli á thorhallur33@gmail.com 11BreiðholtsblaðiðJANÚAR 2017 Bláa moskan í Istambúl, myndin er tekin við sólsetur. Íslam í sögu og samtíð séra Þórhallur Heimisson fjallar um Íslam á námskeiði í febrúar Augl‡singasími: 511 1188 & 895 8298

x

Breiðholtsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.