Breiðholtsblaðið - Jan 2017, Page 12
12 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2017
www.breidholt.is
Markmið okkar – traustur og
varanlegur bakhjarl
Meðal markmiða heilbrigðisyfirvalda er að
hver einstaklingur sé skráður á heilsugæslustöð,
hafi þar sinn heimilislækni og heilsugæslan sé
í flestum tilvikum fyrsti viðkomustaður hans
þegar heilsufarsleg vandamál steðja að. Við sem
störfum í heilsugæslunni höfum lengi talað fyrir
framangreindum markmiðum. Hugmyndafræðin að
baki heimilislækningum er að þar eigi einstaklingar
og fjölskyldur varanlegan bakhjarl á sviði
heilbrigðisþjónustu sem hægt er að leita til með
fjölbreytt erindi og vandamál. Á þeim grunni myndast
langtímasamband byggt á gagnkvæmu trausti.
Heilsugæslan í Efra-Breiðholti er vel í stakk búin til að
þjóna hugmyndafræði heimilislækninga enda skipuð
vel menntuðu og reynslumiklu starfsfólki. Stöðin tók
til starfa árið 1978 og var fyrst til húsa í Asparfelli
en flutti í núverandi húsnæði að Hraunbergi 6
vorið 1990.
Á næstu mánuðum hefst starfsemi nýrra
heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Af því
tilefni viljum við vekja athygli á metnaðarfullu
starfi okkar á heilsugæslunni í Efra-Breiðholti
sem miðar að því að bjóða öllum núverandi og
verðandi skjólstæðingum stöðvarinnar góða og
faglega heilbrigðisþjónustu. Við munum tryggja
þeim sem sjá á eftir sínum lækni burt af stöðinni
nýjan heimilislækni eins fljótt og kostur er. Þá
viljum við bjóða alla sem hafa skráð sig nýlega á
stöðina velkomna.
Fjölbreytt heilbrigðisþjónusta
sérfræðinga og fagaðila
Við höfum ávallt einsett okkur að veita
fjölbreytta og góða heilbrigðisþjónustu á vettvangi
heilsugæslunnar. Við bjóðum meðal annars upp á
bráðaþjónustu, meðferð og eftirlit vegna langvinnra
sjúkdóma, heilsuvernd, ungbarnavernd, mæðravernd
og skólaheilsugæslu. Hægt er að leita til okkar
vegna smáslysa auk þess sem við sinnum ýmsum
minni aðgerðum. Þá höfum við þróað og starfrækt
sykursýkismóttöku fyrir skjólstæðinga okkar.
Auk heimilislækna og hjúkrunarfræðinga starfar
fjölbreytt lið fagaðila á stöðinni, þeirra á meðal
ljósmæður, hreyfistjóri, sálfræðingur, barnalæknir
og fæðingarlæknir. Með samstarfi þessa fagfólks
bjóðum við upp á ráðgjöf fæðingarlæknis á
meðgöngu, sálfræðiþjónustu fyrir börn og foreldra,
heilsueflingu hjá hreyfistjóra og sérfræðiráðgjöf
barnalæknis í ungbarnavernd. Við erum í samstarfi
við þjónustuaðila í geðheilbrigðismálum barna
og fulltrúa þjónustumiðstöðvar Breiðholts og
Barnaverndar í þágu barna og unglinga. Einnig eru
við í samvinnu við ýmsa aðra þjónustuaðila svo sem
Miðstöð heimahjúkrunar, Virk starfsendurhæfingu,
Geðheilsustöð Breiðholts, Þroska- og hegðunarsvið
Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og vísum
á námskeið í hugrænni atferlismeðferð svo fátt
eitt sé nefnt.
Hvernig skrái
ég mig á heilsu-
gæslustöðina?
Hægt er að mæta
á heilsugæslustöðina
til að skrá sig eða
fara á réttindagátt
á vefsíðu Sjúkra-
trygginga Íslands,
w w w . s j u k r a . i s .
Þar má ganga frá
s k r á n i n g u m e ð
rafrænum skilríkjum.
T i l a ð p a n t a
v i ð t a l s t í m a e ð a
óska eftir ráðgjöf
má hafa samband
símleiðis. Ritarar í
móttöku gæta þess
erindi rati rétta leið.
Hjúkrunarfræðingar
sinna ráðgjöf í síma
milli kl. 08:00 og 16:00 og síðdegismóttaka lækna
er opin frá kl. 16:00 til 18:00 alla virka daga. Hún er
ætluð þeim sem ekki hafa fengið úrlausn sinna mála
á dagvinnutíma og fyrir erindi sem ekki þola bið.
Ekki þarf að panta tíma fyrirfram á síðdegismóttöku
heldur er nóg að mæta. Tekið er á móti beiðnum um
lyfjaendurnýjanir alla virka daga milli kl. 9 og 11:30
í síma 513 1595. Á vef Heilsuveru (www.heilsuvera.
is) er einnig hægt að biðja um endurnýjun á flestum
lyfjum sem tekin eru í samráði við heimilislækninn
og panta tíma.
Frekari upplýsingar um þjónustu stöðvarinnar má
finna á heimasíðu okkar, https://www.heilsugaeslan.
is/heilsugaeslustodvar/efra-breidholt/.
Við tökum gjarnan á móti ábendingum og tillögum
um það sem betur má gera.
Heilsugæslustöð Efra Breiðholts er í Hraunbergi 6
og síminn er 513 1550.
Heilsugæslan, hornsteinn
heilbrigðisþjónustu
Nanna S. Kristinsdóttir
fagstjóri lækninga.
Nanna S. Kristinsdóttir, svæðisstjóri og fagstjóri lækninga
Heilsugæslustöð Efra-Breiðholts skrifar
Heilsugæslan í Efra Breiðholti er til húsa
í Hraunbergi 6 örskammt frá Markúsartorgi og
menningarhúsinu Gerðubergi.
Tölvur og gögn ehf.
þ e k k i n g o g r e y n s l a
T& G PC & Mac
Þarabakki 3, Mjódd
109 Reykjavík
Sími: 696-3436
www.togg.is
• Office 365 þjónusta
• Gagnabjörgun og afritun
• Umsjón tölvukerfa
• Vefsíðugerð og umsjón
• Tölvuviðgerðir
• Tölvur og jaðarbúnaður
Á árunum 2020 til 2021 er ætlunin að endurnýja fjölmargar
götur sem þá hafa náð hafa líftíma sínum og eru það einkum
íbúðagötur í Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi.
Gerð hefur verið áætlun um endurnýjun og viðgerðir á malbiki
á götum borgarinnar til næstu fimm ára. Í fjárhagsáætlun 2017 til
2021 er lagt til að verið verði 8.380 milljónum króna til verkefnisins.
Fyrstu þrjú árin frá 2017 til 2019 verður áhersla lögð á endurnýjun
malbiksyfirlagna einkum á umferðarþungum götum til að koma
í veg fyrir miklar og kostnaðarsamar viðgerðir síðar. Meiri
fjármunum verður varið til viðgerða og endurnýjunar á malbiki
á þessu ári en nokkru sinni áður. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir
1.460 milljónum króna til verkefnisins og er það ríflega tvöföldun
frá því í fyrra.
Endurnýjun gatna
í Breiðholti komin
á áætlun
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Unnið við malbikun í Reykjavík.