Breiðholtsblaðið - Jan 2017, Side 13
13BreiðholtsblaðiðJANÚAR 2017
Leikur með körfuknattleiksliði ÍR
Körfuknattleikslið ÍR fékk til
sín nýjan erlendan leikmann í
lok nóvember með komu hins
26 ára gamla kraftframherja,
Quincy Hankins-Cole. Hann er
að leika í annað sinn á Íslandi
en eftir háskólanám í Banda-
ríkjunum hóf hann atvinnu-
mannaferil sinn með Snæfelli
tímabilið 2011 til 2012 og átti þá
mjög gott tímabil. Hann hefur
komið með ferska strauma inn
í ÍR liðið eftir að hafa verið á
talsverðu heimshornaflakki
eftir dvöl sína í Stykkishólmi
þar sem hann hefur m.a. spilað
í Frakklandi, Tævan, Kína,
Finnlandi og Ástralíu. Quincy
var spenntur þegar honum
bauðst tækifæri á að koma
aftur til Íslands til að spila
og hlakkaði til að sjá hvernig
hlutirnir hefðu breyst hérna og
hvernig deildin hefði þróast.
Honum finnst deildin vera mun
betri en síðast þegar hann var
hérna, mun meiri samkeppni og
er mjög ánægður að hafa tekið
tilboðinu um að koma aftur til
landsins.
Nú þegar körfuknattleiks-
tímabilið er u.þ.b. hálfnað eru
línur farnar að skýrast í Dominos
deildinni. Talsverðar væntingar
voru gerðar til ÍR fyrir tímabilið
eftir mögur undanfarin ár, en
liðið hefur farið frekar hægt af
stað í vetur og situr núna í neðri
helmingi deildarinnar. Aðspurður
um möguleika ÍR það sem eftir
lifir tímabilsins þá segist Quincy
vera mjög bjartsýnn og viss um
að ef liðið heldur áfram að smella
betur saman eins og liðið hefur
gert á köflum þá muni þeir fara
fram úr væntingum og vinna
mörg þau lið sem þeir töpuðum
gegn á fyrri hluta tímabilsins.
Hann bætti svo við að með því
væri hægt að fara inn í úrslita-
keppnina fullir af sjálfstrausti og
gera góða hluti með stuðningi
og látum frá þeim frábæru
stuðningsmönnum sem liðið
hefur en góð stemming hefur
verið á leikjum liðsins í vetur
þrátt fyrir misjafnt gengi. Það
verður engin svikinn af þeirri
skemmtun sem boðið er upp á
heimaleikjum ÍR í Seljaskóla,
og stuðningur svo sannarlega
vel þeginn.
Afar hress einstaklingur
Allur gangur hefur verið á því
með þá erlendu leikmenn sem
hafa verið fengnir til félagsins í
gegnum tíðina, hversu mikinn
áhuga og mikla getu þeir hafa í
því að miðla þekkingu og reynslu
til yngri iðkenda en Quincy hefur
sýnt því áhuga og hefur verið að
koma aðeins inn í yngri flokka
starfið hjá ÍR. Quincy er afar
hress einstaklingur og leikgleðin
skín af honum, það verður
frábært fyrir yngri iðkendur að
fá tækifæri til að læra af honum
í vetur.
Yngri f lokka starf ið hjá
ÍR hefur verið með miklum
ágætum undanfarin ár, til að
mynda hefur núverandi drengja-
flokkur staðið sig afar vel á
undanförunum árum og orðið
Íslandsmeistarar undanfarin
þrjú ár og skilað sömuleiðis
einum bikarmeistaratitli í hús.
Einnig hefur sá flokkur tekið
þátt í hinu gríðarsterka Scania
Cup móti í Svíþjóð undanfarin
tvö ár og endaði í 3. sæti þar í
fyrra, sem er frábær árangur.
Sömuleiðis átti ÍR alls níu drengi
sem valdir voru í úrtökuhópa
yngri landsliðanna sem voru
við æfingar núna á milli jóla og
nýárs. Framtíð körfuboltans er
því björt hér í hverfinu á komandi
árum og margir þessara pilta nú
þegar farnir að spreyta sig með
meistaraflokki félagsins.
Það er ánægjulegt að aukning
hefur verið í iðkendafjölda milli
ára hjá körfuknattleiksdeildinni,
bæði hjá stúlkum og drengjum,
en þrátt fyrir að hlutfall drengja
sé hærra hefur verið leitað leiða
til að auka fjölda stúlkna í iðken-
dahópnum. Eitt af því sem helst
þar í hendur er sú staðreynd
að ekki hefur tekist að halda úti
meistaraflokksliði í kvennaflokki
að undanförnu. Umræðan um
að endurvekja flokkinn hefur
orðið háværari á undanförnum
árum enda er ÍR ekki eingöngu
eitt sigursælasta liðið í karlaflokki
heldur einnig eitt sigursælasta
liðið í kvennaflokki í sögulegu
samhengi. Vonandi mun sú
endurvakning takast sem allra
fyrst sem yrði mikill styrkur,
ekki bara fyrir kvennastarfið í
deildinni, heldur deildina í heild.
Allir eru velkomnir á æfingu,
það er aldrei of seint að byrja
og ekki óalgengt að börn séu að
koma á sínu fyrstu æfingu 11-13
ára gömul og hægt er að fá að
prófa að æfa frítt í eina viku fyrir
þá sem eru að koma í fyrsta
sinn. Allar upplýsingar um körfu-
knattleiksdeildina, æfingatöflu
o.s.frv., eru að finna á heimasíðu
félagsins, ir.is/karfa, ásamt því að
deildin er á facebook, ÍR-Karfa.
Quincy Hankins-Cole
Quincy Hankins-Cole ásamt ungum körfuboltaiðkendum hjá ÍR.
ÍTR • Borgartúni 12-14 • 105 Reykjavík • Sími 411-5000 • www.itr.is • itr@itr.is
Ölduselsskóli sigraði örugg-
lega hið árlega jólaskákmót TR
og Skóla- og frístundasviðs Reyk-
javíkurborgar sem haldið var 27
til 28. nóvember sl. Skáksveit
Ölduselsskóla endurtók þannig
leikinn frá síðasta ári þar sem
sveitin stóð einnig uppi sem
sigurvegari barnaskólasveita.
Liðsmenn A-sveitarinnar voru
Óskar Víkingur Davíðsson,
Stefán Orri Davíðsson, Baltasar
Máni Wedholm Gunnarsson,
Birgir Logi Steinþórsson, og
Brynjar Haraldsson. Bræðurnir
Óskar og Stefán eru jafnframt
Ís landsmeistarar í s ínum
aldursflokkum.
Sveitir skipaðar liðsmönnum úr
8 til 10 bekk kepptu í einum flokki
og sendu sex skólar sveitir til
keppni. Sveit Ölduselsskóla náði
einnig góðum árangri og hafnaði í
fjórða sæti, en sveit Laugalækjar-
skóla tefldi af eindæma öryggi
og hampaði sigri með fullt hús.
Sveit Ölduselsskóla leiddi Elfar
Ingi Þorsteinsson sem tefldi á
fyrsta borði og með honum tefldu
Viktor Már Guðmundsson, Frank
Gerritsen og Ívar Lúðvíksson.
Árangur þessara pilta er sérlega
góður í ljósi þess að flestir eru
tiltölulega nýbyrjaðir að æfa
skák. Liðsstjóri var Björn Ívar
Karlsson skákkennari sem hefur
einnig umsjón með vikulegum
skákæfingum í Ölduselsskóla
í samvinnu við Skákakademíu
Reykjavíkur. Þær eru haldnar á
miðvikudögum í skólanum og
hefjast byrjendaæfingar kl. 14:15
og æfingar fyrir lengra komna kl.
14:45. Æfingarnar eru fríar og eru
nemendur Ölduselsskóla hvattir
til að nýta sér þennan vettvang til
að spreyta sig á skákinni.
Fyrir þá krakka í Breiðholt-
inu sem hafa áhuga á skák má
einnig benda á ókeypis, opnar
æfingar hjá Skákfélaginu Huginn
á mánudögum frá kl. 17:15 til 19.
Æfingarnar eru í Álfabakka 14a í
Mjóddinni, inngangur er á milli
Fröken Júlíu og Subway og er
félagsheimilið á 3. hæð.
Lið Ölduselsskóla var sigursælt í skákkeppninni.
Ölduselsskóli
sigurvegari
liðakeppni í skák
annað árið í röð
www.breidholt.is