Breiðholtsblaðið - jan 2017, Síða 15

Breiðholtsblaðið - jan 2017, Síða 15
15BreiðholtsblaðiðJANÚAR 2017 GETRAUNANÚMER ÍR ER 109 Heimasíða www.ir.is Fréttir Íflróttafélag Reykjavíkur Skógarseli 12 • Sími 587 7080 Tölvu póst ur: ir@ir.is Heimasíða: ir.is Um 40 börn í fimleikum hjá ÍR ÍR-fimleikar voru endurvaktir innan Íþróttafélags Reykjavíkur í septembermánuði árið 2014. Þegar þeir voru endurvaktir voru liðin 31 ár síðan þeir voru síðast starfræktir hjá félaginu. Fimleikarnir sem stundaðir eru flokkast undir hópfimleika sem snúa að gólfæfingum, dýnustökki og trampolíni. Æfingarnar hafa gefist mjög vel og eru um 40 börn sem æfa að staðaldri. Börnin eru frá 5-9 ára (plús) aldri og æfa einu sinni til tvisvar sinnum í viku í Breiðholtsskóla. Æfingahóparnir eru þrír: T2 er 5-6 ára hópur sem æfir 1x í viku. Á laugardögum frá kl. 11:15-12:15. R1 er 7-8 ára hópur sem æfing 2x í viku. Á þriðjudögum kl. 18-19 og laugardögum kl. 12:15-13:15. R2 er 9 ára og eldri hópur sem æfir 2x í viku. Á þriðjudögum kl. 18-19 og laugardögum kl. 12:15-13:45. Þar sem deildin er mjög ung að árum og iðkendurnir ekki háir í loftinu hefur ekki verið sett pressa á keppni, en það er hins vegar á framtíðarplaninu og stefnt er á að iðkendur ÍR-fimleika byrji að keppa eftir 2-3 ár. Fimm þjálfarar koma að þjálfun fimleikabarnanna, allir hafa þeir reynslu af þjálfun barna, fimleikum, frjálsum íþróttum, dansi og svo mætti lengi telja. Frjálsíþróttadeild ÍR hefur stutt við deildina og leitt hana fyrstu skrefin ef svo má segja og mun halda því áfram. Varðandi áhöld og tæki þá hefur margt verið til í íþróttahúsum Breiðholts sem hægt er að nota við fimleikaþjálfunina. Þó var keypt loftdýna sem hægt er að nota á fjölmargan máta, meðal annars til að æfa og undirbúna iðkendur undir þær æfinga sem keppt er í á fiber dýnu, en það er eitt af áhöldunum sem keppt er í í hópfimleikum (dýnustökk). Hinar keppnisatriðin eins og sagt var að ofan eru stökk af trampólíni og hópatriði á gólfi (gólfæfingar). ÍR fimleikar stefna á að halda út faglegu og góðu starfi þar sem hreyfing, ábyrgð, gleði og metnaður er haft að leiðarljósi og eru öll börn sem áhuga hafa á fimleikum, velkomin á æfingar hjá okkur. Fríða Rún Þórðardóttir varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR og Sigríður Ósk Fanndal yfirþjálfari ÍR-fimleika. Sími: 588 9705 www.skautaholl.is Opnunartímar: Mánud., Þriðjud. og Miðvikud. 12:00 til 15:00. Fimmtudaga 12:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30. Föstudaga 13:00 til 19:00. Laugardaga og Sunnudaga 13:00 til 18:00. Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00. Sjálfboðaliðar ÍR heiðraðir Sú nýjung var tekin upp á árlegri verðlaunahátíð ÍR að heiðra sjálfboðaliða sem starfað hafa af miklum krafti fyrir félagið með silfur og gullmerkjum ÍR. Áður höfðu slík merki oftast verið afhent á aðalfundum félagsins. Aðalstjórn ÍR velur þá einstak- linga sem heiðraðir eru hverju sinni eftir tilnefningar frá deildum þess. Þrettán einstaklingar voru heiðraðir að þessu sinni, einn með gullmerki og tólf með silfurmerki. ÍR-ingar þakka eftirtöldum sem heiðraðir voru fyrir ómetanleg störf í þágu félagsins með ósk um að ÍR megi njóta krafta þeirra sem lengst: Gullmerki: Fríða Rún Þórðardóttir, frjálsíþróttadeild. Silfurmerki: Sveinn Sveinsson, knattspyrnudeild. Árni Birgisson, knattspyrnudeild. Pétur Guðmundsson, frjálsíþróttadeild. Brynjar Gunnarsson, frjálsíþróttadeild. Andrés Haukur Hreinsson, keiludeild. Guðmundur Jóhann Kristófersson, keiludeild. Þorsteinn Ingi Garðarsson, körfuknattleiksdeild. Elvar Guðmundsson, körfuknattleiksdeild. Róbert Hnífsdal, handknattleiksdeild. Kristín Ásta Ólafsdóttir, handknattleiksdeild. Daði Ólafsson, íþróttahópur eldri ÍR-inga. Bjarki Þór Sveinsson, handknatt- leiksdeild og aðalstjórn. Aníta og Guðni Valur íþróttafólk ársins hjá ÍR Aníta Hinriksdóttir frjálsíþrótta- kona var valin íþróttakona ÍR og Guðni Valur Guðnason frjáls- íþróttamaður íþróttakarl ársins 2016 hjá ÍR á verðlaunahátíð félagsins sem fram fór á milli jóla og nýars. Stjórnir allra deilda félagsins t i l n e f n d u í þ r ó t t a k o n u o g íþróttakarl ársins í sinni deild og úr þeim hópi voru Aníta og Guðni valin. Aníta og Guðni Valur kepptu bæði með glæsibrag í frjálsíþrótt- um fyrir Íslands hönd á mestu íþróttahátíð veraldar á síðasta ári, Ólympíuleikunum í Ríó. Allir tilnefndir íþróttamenn deilda voru heiðraðir á verðlaunahátíðinni sem var sú fjölmennasta sem haldin hefur verið hjá félaginu. Hér að neðan eru nöfn þeirra sem heiðraðir voru: Júdókona ÍR 2016: Aleksandra Lis Knattspyrnukona ÍR 2016: Andrea Magnúsdóttir Taekwondokona ÍR 2016: Ibtisam El Bouazzati Karatekona ÍR 2016: Kamila Buracewska Keilukona ÍR 2016: Linda Hrönn Magnúsdóttir Handknattleikskona ÍR 2016: Sigrún Ása Ásgrímsdóttir Skíðakona ÍR 2016: Vigdís Sveinbjörnsdóttir Frjálsíþróttakona ÍR 2016: Aníta Hinriksdóttir Karatekarl ÍR 2016: Aron Anh Ky Huynh Keilukarl ÍR 2016: Hafþór Harðarson Knattspyrnukarl ÍR 2016: Jón Gísli Ström Handknattleikskarl ÍR 2016: Jón Kristinn Björgvinsson Skíðakarl ÍR 2016: Kristinn Logi Auðunsson Júdókarl ÍR 2016: Matthías Stefánsson Körfuknattleikskarl ÍR 2016: Sigurkarl Róbert Jóhannesson Taekwondokarl ÍR 2016: Sveinn Logi Birgisson Frjálsíþróttakarl ÍR 2016: Guðni Valur Guðnason Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttakona ÍR og Guðni Valur Guðnason frjálsíþróttamaður ársins 2016. Tilnefndir íþróttamenn deilda hjá ÍR. Verðlaunaðir sjálfboðaliða ÍR ásamt Ingigerði (Ingu) Guðmundsdóttur formanni ÍR og Guðrún Brynjólfsdóttir varaformanni ÍR.

x

Breiðholtsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.