Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Blaðsíða 5

Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Blaðsíða 5
en flest búsvæði hér á landi. Þótt Hafsteinn sé ættleiddur frá fjarlægum heimshluta er hann alinn upp sem Íslendingar. Engu að síður tengir þessi uppruni hans og þá ekki síður þau störf sem hann hefur tekið að sér og unnið að ­ einkum á vegum Miðbergs hann við fjölmenninguna. Ég held að sé best að nálgast fjölmenningu fyrst og fremst með því að fólk komi fram af virðingu hvert við annað. Enginn er merkilegri en annar hvaðan sem hann kemur eða við hvaða menningu og siði hann er alinn upp. Ég held að tungumálið skipti líka miklu máli þannig að allir komi að sama borði. Ég hef sjálfur ekki reynslu af að koma hingað með annað tungumál. Ég var smábarn og íslenska er mitt móðurmál. Fjölmenningin er líka skemmtileg og áhugavert að fræðast um önnur lönd og búsvæði í gegnum krakka sem eiga sér annan uppruna og annað uppeldisumhverfi.“ Talið berst að leitinni að upprunanum. Hafsteinn kveðst ekki hafa velt fyrir sér að fara í slíka leit. „Það er ágætt að fólk geri það sem langar til þess. Ég var alin þannig upp af mömmu og pabba og fékk alla þá ást og umhyggju sem ég þurfti og rúmlega það. Ég hef bara ekki fundið þessa þörf hjá mér. Ég velti þessu eðlilega fyrir mér sem barn en þau útskýrðu það mjög vel fyrir okkur. Við hefðum ekki geta verið heppnari með foreldra. Þátttakan í félagsstarfinu kenndi mér líka mikið. Þegar ég kom til starfa þar var talsvert af krökkum með erlendan uppruna sem vissu lítið um félagsmiðstöðvar. Til hvers þær væru og hvað væri gert þar. Þau komu frá svæðum þar sem ekkert slíkt starf var til staðar. Mér finnst það hafa verið ákveðin forréttindi að fá að vinna með krökkum sem voru að stíga sín fyrstu spor að þessu leyti – og bara börnum og ungmennum yfir höfuð og fylgjast með þeim vaxa og dafna og verða að flottum einstaklingum, einnig tel ég mig heppinn að hafa fengið að vinna með svona mörgum menningarhópum. Þegar ég var að alast upp voru ekki margir hörundsdökkir krakkar í Breiðholtinu. Svo fjölgaði fólki frá Asíu og fólk frá Austur Evrópu fór einnig að flytjast þangað einkum frá Póllandi. Breiðhyltingar eiga sér orðið margbreytilegan uppruna. Það kemur auðvitað fyrir að fólk af öðrum uppruna einangrar sig til að finna öryggi hjá þeim sem tala sama tungumál og koma úr sömu menningu en það ætti að vera algerlega óþarft. En það má alltaf gera betur, Aðstoða fólk við aðlögun að nýjum heimkynnum. Fyrir mestu er að allir geti búið saman í sátt og samlyndi burtséð frá uppruna. Breiðholtið kenndi mér margt og þótt ég búi um þessar mundir aðeins hinum megin við bæjarmörkin – það er Kópavogsmegin þá byggist það eingöngu á íbúðarkaupum. Mig langar að flytja aftur í Hólana. Draumurinn er að eignast hús norðan megin í Hólunum þaðan sem ég horft yfir Elliðaárdalinn. Það er kannski skrítið að þakka fyrir sig því ég er ekki hættur, en samt takk fyrir mig Breiðholt og Breiðhyltingar. Sjáumst fljótt aftur.“ segir Hafsteinn Vilhelmsson hverfishetja í Breiðholti. 5BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2018 sími Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson hdl. og löggiltir fasteignasalar Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali Sími: 897 0634 Ragnheiður Pétursdóttir hdl. og löggiltur fasteignasali Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali Sími: 822 2307 Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali Sími: 845 8958 Harpa Rún Glad hdl. og löggiltur fasteignasali Svan G. Guðlaugsson lögg. fasteignasali Sími: 697 9300 Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali Sími: 773 6000 Gunnar S. Jónsson lögg. fasteignasali Sími: 899 5856 Hilmar Jónasson lögg. fasteignasali Sími: 695 9500 Helgi Jónsson aðstm. fasteignasala Sími: 780 2700 Gunnar Helgi Einarsson lögg. fasteignasali Sími: 615 6181 Jón Rafn Valdimarsson lögg. fasteignasali Sími: 695 5520 Atli S. Sigvarðsson lögg. fasteignasali Sími: 899 1178 Axel Axelsson lögg. fasteignasali Sími: 778 7272 Bryndís Alfreðsdóttir lögg. fasteignasali Sími: 569 7024 Páll Þórólfsson aðstm. fasteignasala Sími: 893 9929 Jason Ólafsson lögg. fasteignasali Sími: 775 1515 Ásgrímur Ásmundsson hdl. og lögg. fasteignasali Sími: 865 4120 Fasteignasalan Miklaborg Lágmúla 4 108 Reykjavík 569 7000 www.miklaborg.is Með þér alla leið , lögg. fasteignasali gh@miklaborg.is sími: 615 6181 , lögg. fasteignasali sími: 775 1515 Verð : Fasteignasalan Miklaborg Lágmúla 4 • 108 Reykjavík • Sími 569 7000 www.miklaborg.is Hafsteinn á góðri stund með samstarfsfólki í Miðbergi. Áfram Ír ALLTAF FULLT BORÐ AF FERSKUM FISKI OG FISKRÉTTUM Opið alla virka daga kl. 9 – 18:30. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.