Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Blaðsíða 15
15BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2018
GETRAUNANÚMER
ÍR ER 109
Heimasíða
www.ir.is
Fréttir
Íflróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Tölvu póst ur: ir@ir.is
Heimasíða: ir.isMiklar framkvæmdir á næstu árum
Forval fyrir fjölnota íþróttahús í Suður -
Mjódd, alútboð hefur verið auglýst. Óskað er
eftir umsóknum frá verktökum til að taka þátt í
lokuðu alútboði. Eins og segir í auglýsingunni er
fyrirhugað að reisa fjölnota íþróttahús í Suður –
Mjódd og mun alútboðið ná yfir verkfæðihönnun
og reisingu hússins. Gert er ráð fyrir að húsið
verði einangrað stálgrindarhús á steyptum
undirstöðum.
Húsið mun standa norðaustan við núverandi
gervigrasvöll. Um er að ræða íþróttahús á einni
hæð ásamt hliðarbyggingu sem nær meðfram
allri langhlið húss. Íþróttahúsið skal sérútbúið
til knattspyrnuiðkunar og frjálsíþrótta ásamt
göngubraut umhverfis völlinn. Gervigras skal
vera FIFA samþykkt. Samtals er gert ráð fyrir að
íþróttasalurinn verði 84 x 51 m (4.284 m²) auk
hliðarbyggingar sem verður 84 x 7,5 m (630 m2).
Frjálsíþróttavöllur og vallarhús
Nú er unnið að því að fleyga undir grunn Vallarhús
við nýjan frjálsíþróttavöll ÍR-inga. Báðum tilboðum
sem bárust í byggingu vallarhússins var hafnað
vegna þess hve langt þau voru yfir kostnaðaráætlun.
Verkinu var því skipt upp í smærri einingar og tilboð
fyrir uppsteypu og frágang hússins að utan hefur
verið auglýst og þarf að skila tilboðum fyrir 17. apríl.
Tvö tilboð bárust í undirlag og lagningu gerviefnis á
völlinn. Yfirferð tilboða stendur yfir en stefnt að því
að völlurinn verði tilbúinn seinni part sumars.
Ný girðing og bætt aðgengi að
aðalknattspyrnuvelli ÍR
Verktakar hafa lokið við uppsetningu girðinga
við aðalleikvang ÍR fyrir knattspyrnu og aðgengi
áhorfenda og fatlaðra hefur verið bætt með
malbikuðum stíg frá vallarhúsi að áhorfendasvæði.
Áður en le ikt íð knattspyrnunnar hefst
verður aðgengi leikmanna frá búningsklefum
að leikvangi bætt.
Betrumbætur á búningsaðstöðu
í ÍR-heimili
Skápar með læsingum hafa verið settir upp í
fjórum búningsklefum ÍR-heimilisins og heitir og
kaldir pottar í tveimur klefum verða tilbúnir á
næstu vikum.
Parkethús og tengibygging
á hönnunarstigi
Unnið er að hönnun byggingar sem ætlað
er að tengja saman núverandi ÍR-heimili,
fjölnota íþróttahús/knatthús og svokallað
parkethús. Fyrirhugað er að í tengibyggingunni
verði aðalinngangurinn í íþróttamiðstöð ÍR,
samkomusalur, skrifstofur félagsins, búningsklefar
fyrir parkethús og fjölnota íþróttahús ofl. Þá er
unnið að hönnun á parkethúsi sem ætlað er að hýsi
að mestu handbolta- og körfuboltaæfingar og leiki.
Það er því ljóst að framkvæmdir verða miklar
á ÍR-svæðinu á þessu ári og næstu árum gangi
áætlanir eftir.
Sími: 588 9705
www.skautaholl.is
Opnunartímar:
Mánud. Þriðjud. og miðvikud.
13:00-14:30
Fimmtudaga
13:00-14:30 og 17:00-19:30
Föstudaga
13:00-14:30
Laugardaga og sunnudaga
13:00-17:00
Skólar og sérhópar:
Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00.
Í úrslitarimmum í körfubolta og handbolta
Karlalið ÍR sigraði Stjörnuna
í átta liða úrslitum Dominos-
deildarinnar í körfubolta eftir
hörku einvígi þar sem ÍR vann
þrjá leiki af fjórum. Þar með
tryggði liðið sér rétt til að leika
í fjögurra liða undanúrslitum
í fyrsta skipti frá árinu 2005.
ÍR-ingar léku síðan við Tindastól
í undanúrslitunum og vann
Tindastól viðureignina 3-1.
Karlalið ÍR í handbolta sem
lék að nýju í efstu deild í vetur í
Olísdeildinni tryggði sér rétt til
keppni í átta liða úrslitum. Lið ÍR
lék gegn deildarmeisturunum ÍBV
og vann ÍBV viðureign liðanna 2-0.
Kvennalið ÍR í handbolta
tryggði sér rétt til þátttöku í
umspili um sæti í efstu deild á
næstu leiktíð eftir að hafa náð
þriðja sæti í Grill 66 deildinni
(næst efstu deild). Lið ÍR tapaði
fyrsta leiknum gegn HK í umspili
með tíu marka mun en jafnaði
svo metin eftir æsispennandi
tvíframlengdan leik í Austurbergi.
Glæsilegur árangur ÍR-inga
í fjölmörgum íþróttum ber vott
um faglegt og öflugt íþróttastarf
innan félagsins.
Ástrós Pétursdóttir úr
ÍR sigraði á Íslandsmóti
einstaklinga í keilu. Þetta er
annar Íslandsmeistaratitill
Ástrósar en hún sigraði einnig
árið 2014. Ástrós sigraði aðra ÍR
konu í úrslitum, Lindu Hrönn
Magnúsdóttur en vert er að vekja
athygli á að Linda er 59 ára og er
enn meðal fremstu kvennkeilara
okkar og var meðal annars valin
kvennkeilari ÍR 2016 og 2017.
Þetta sýnir glöggt að í keilu getur
fólk verið í fremstu röð lengur en
í mörgum öðrum íþróttum.
Hjá körlunum komst Stefán
Claessen í úrslitin en datt út í
fyrsta leik og endaði því í 3. sæti.
Glæsilegur árangur engu að síður
hjá ÍR-ingum á mótinu.
Alls tóku 24 karlar og 24 konur
þátt í mótinu í ár og er þetta
líklega mesti fjöldi kvenna sem
tekið hefur þátt á Íslandsmóti
hingað til. ÍR átti 11 þátttakendur
hjá konum eða flesta frá einu
félagi og komust 7 þeirra áfram í
12 manna milliriðil og 4 í 8 manna
úrslit. Vel gert hjá ÍR konum. Hjá
körlum voru það 9 ÍR keilarar sem
tóku þátt og komust 7 þeirra áfram
í 16 manna úrslitin og 5 þeirra í 8
manna úrslit, vel gert þar líka.
Á mótinu í ár náði Andrés
Páll Júlíusson úr ÍR sínum þriðja
fullkomna leik í móti þegar hann
spilaði 300 í forkeppninni og er
þetta hans annar 300 leikur á árinu
en hinum náði hann á WOW-RIG
móti ÍR í byrjun febrúar. Andrés
Páll var einn þeirra sem komst í 8
manna úrslitin og endaði í 7. sæti.
Ástrós Pétursdóttir ÍR og
Gúsaf Smári Björnsson KFR
Íslandsmeistarar kvenna og karla í
keilu 2018.
Ástrós Íslandsmeistari í kvennakeilu
Uppbygging á ÍR-svæðinu heldur áfram
Ástrós Pétursdóttir ÍR og
Gústaf Smári Björnsson KFR
Íslandsmeistarar kvenna og
karla í keilu 2018.
Áhorfendur fagna sigri ÍR á Tindastóli í leik tvö.
Víðavangshlaup ÍR verður haldið í 103. sinn á sumardaginn
fyrsta þann 19. apríl. Hlaupið er fimm km. götuhlaup en einnig
er hægt að taka þátt í 2,7 km skemmtiskokki. Víðavangshlaup
ÍR var fyrst haldið á sumardaginn fyrsta árið 1916 og hefur
síðan þá verið órjúfanlegur þáttur í hátíðahöldum dagsins í
Reykjavík, en enginn íþróttaviðburður hér á landi á jafn langa
samfellda sögu.
Frá upphafi hefur hlaupaleiðin verið tengd miðbænum þótt
ýmsar breytingar hafi verið orðið á henni. Víðavangshlaup ÍR er
jafnframt Íslandsmótið í 5 km götuhlaupi og fyrsta hlaup sumarsins
í Poweraid hlauparöðinni. Flestir bestu hlauparar landsins
munu taka þátt og búast má við harðri baráttu um sæti og tíma.
Skemmtiskokkið er frábær skemmtun fyrir foreldra og börn sem
vilja gera sér glaðan dag og fagna sumri með því að hlaupa saman.
Víðavangshlaup ÍR hefst stundvíslega kl. 12 og skemmtiskokkið 10
mínútum síðar. Sem fyrr verður hlaupið í miðborginni, sem skapar
góða stemningu meðal hlaupara og vegfarenda, enda er auðvelt
að fylgjast með og hvetja hlauparana áfram. Víðavangshlaup ÍR
verður ræst í Tryggvagötu við Pósthússtræti en skemmtiskokkið
fyrir framan MR í Lækjargötu. Endamark beggja er við Hitt húsið á
horni Pósthússtrætis og Austurstrætis. Forskráning er á hlaup.is
til miðnættis miðvikudaginn 18. apríl. Einnig verður hægt að skrá
sig í ÍR heimilinu þann 18. apríl milli kl. 16:30-19:00. Á hlaupdag
verður hægt að skrá sig í Hinu húsinu milli kl. 9:30 og 11:00.
Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á keppnisstað
og hafa hugfast að það getur tekið nokkurn tíma að leggja bílum í
miðbænum Bent er á bílastæði t.d. í Hörpu og Ráðhúsi Reykjavíkur.
Víðavangshlaup ÍR á
sumardaginn fyrsta
Reisa á nýtt þjónustuhús fyrir ÍR jafnhliða byggingu
frjálsíþróttavallar. Hér má sjá tölvugerða mynd af
þjónustuhúsinu.