Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Blaðsíða 9

Breiðholtsblaðið - apr. 2018, Blaðsíða 9
9BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2018 hækkað mikið að undanförnu og nú er svo komið að fólk er farið að sækja út fyrir borgarmörkin ti l þess að koma sér upp heimilum. Og þá ekki aðeins í nágrannasveitarfélögin heldur sækir fólk á Suðurnesin og upp fyrir Hvalfjörð. Jafnvel austur í Árborg þar sem ég þekki vel til og ekur á milli höfuðborgarsvæðisins og heimilis til vinnu. Tölvuvæðing og fjarvinnsla getur í einhverjum t i l f e l l u m a u ð v e l d a ð f ó l k i slíka búsetu en það leysir ekki Reykjavíkurborg undan þeirri skyldu að skapa ungum fjölskyldum tækifæri til þess að búa í borginni og eignast húsnæði þar. Þá þarf einnig í þessu sambandi að horfa til fasteignaskattsins. Hann er of hár í Reykjavík og við verðum að finna leiðir til þess að lækka hann. Lækkun fasteignaskatts er líka liður í að gera eldri borgurum kleift að búa á heimilum sínum eins lengi og þeir vilja og treysta sér til. En það er vandi að vinda ofan af fjármálum borgarinnar því skuldir borgarsjóðs hafa vaxið verulega að undanförnu - einkum fjórum síðustu árunum. Einn liður í því að draga úr álögum á borgarbúa er að hagræða í stjórnkerfinu sem hefur vaxið mikið á skömmum tíma.” Eyþór bendir á að nú sé knýjandi að bæta aðstöðu ungra foreldra. “Við verðum að fjölga leikskólarýmum og tryggja að öll börn sem náð hafa 18 mánaða aldri eigi kost á leikskóla. Þetta þarf að gera með því að efla leikskólana og fjölga faglærðu fólki en einnig með því að styrkja dagmæðrakerfið og fjölga dagmæðrum.” Beita þarf öllum skyn- samlegum ráðum gegn svifrykinu Eyþór hefur mikinn áhuga á umhverfismálum. Hann segir að vinna verði áfram á því sviði meðal annars með því að bæta flokkun á sorpi og draga úr urðun. Þetta megi meðal annars gera með því að setja upp gáma fyrr mismunandi tegundir af rusli sem fólk hafi aðgang að. “Svo er það svifrykið sem hefur verið að angra okkur að undanförnu. Þar þarf að gera átak enda ótækt að börnum sé haldið innandyra vegna loftmengunar. Borgin mælist með loftgæði á við Rotterdam sem er óásættanlegt. Við viljum koma í veg fyrir að svifryk fari yfir heilsuverndarmörk. Það þarf að þrífa borgina miklu betur, sópa og spúla. Hvetja þarf fólk til þess að nota rafbíla. Liður í því er að fjölga hleðslustöðum því skortur á þeim má ekki fæla fólk frá þessum samgöngumála. Ég hef sjálfur ekið á rafmagnsbíl að undanförnu og ætla mér ekki aftur að nota bensín- eða dísildrifið ökutæki. Ég tel að við verðum að beita öllum skynsamlegum ráðum til þess að draga úr myndun svifryks. Það er ekki aðeins óþægilegt heldur einnig beinlínis hættulegt. Talið er að rekja megi um 80 dauðsföll á ári hér á landi til svifryks á sama tíma og tveir til þrír látast af völdum umferðarslysa. Umferðin skiptir þarna miklu máli en jafnframt verður viðhald gatna að vera miklu betra. Ræsi eru ekki hreinsuð og flóð í Breiðholtinu eru að verða árleg því miður. Við verðum að fara í átaksverkefni í umhverfismálum að þessu leyti líkt og þegar lagt var til atlögu við að hreinsa strandlengjuna. ” Sjúk ást, hvað getum við gert? Ungmennaráð Breiðholts stóð fyrir líflegu málþingi föstudaginn 6. apríl um samskipti í ástarsamböndum ungs fólks. Málþingið var haldið í Austurbergi og áttu flestir grunnskólar borgarinnar sína fulltrúa þar. Umræðuefnið var mikilvægt; munurinn á heilbrigðum og óheilbrigðum samböndum, kynferðisleg áreitni og samskipti á netinu. Dagskráin hófst með erindi Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttir verkefnastýru hjá Stígamótum og fjallaði hún um sjúk samskipti ungs fólks í nánum samböndum sem byggðust á afbrýðissemi, þvingunum og jafnvel ofbeldi. Þá fjallaði Dagbjört Ásmundsdóttir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði um kynferðislega áreitni og að lokum fjölluðu þau Kári og Andrea, sem vinna með ungmennum í félagsmiðstöðvastarfi, um óheilbrigð samskipti á netinu. Vel á annað hundrað unglingar sóttu málþingið og urðu líflegar umræður á milli erindanna og augljóst að efnið brann á mörgum fundargestum. Málþingið fellur inn í umræður sem skapast hafa í samfélaginu í kjölfar me-too byltingar og sýningar á myndinni Mannasiðir um páskanna og því auðvelt að tengja umfjöllunarefnið við það sem ungir sem aldnir þekkja í umfjöllun fjölmiðla undanfarna mánuði. Ungmennaráð Breiðholts skipulagði málþingið og er það í anda annarra málþinga á þeirra vegum fyrir ungmenni í borginni þar sem lögð er áhersla á samtal milli ungs fólks um mikilvæg málefni sem á þeim brenna. Fundarstjóri var Elínborg Una Einarsdóttir sem situr í ungmennaráði Breiðholts. Rætt á málþingi ung- mannaráðs Breiðholts GÓÐ ÞJÓNUSTA í Grímsbæ við Bústaðaveg HANNYRÐAVERSLUNIN Sporið Garn og útsaumur Mikið úrval Sími: 581 2360 Bústaðavegi Snyrtivöruverslun - Snyrtistofa Sími: 553 1262 Komdu í pizzu eða taKt’ana með heim pizzeria - BúStaðavegi - 533 1313 EITT KORT 34 VÖTN 7.900 kr. 00000 www.veidikortid.is JÓLAGJÖF VEIÐIMAN NSINS! Sölustaðir: N1 - OLÍS - ÍSLANDSPÓSTUR og veiðivöruverslanir um land allt. Frí heimsending þegar pantað er á www.veidikortid.is. Vatnaveiði er fjölskylduvæn útivist. Börn yngri en 14 ára veiða frítt með korthafa. Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frá Stígamótum hélt erindi á málþinginu og fjallaði um hvenær afbrýðissemi væri réttlætanleg.

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.