Nesfréttir - Mar 2017, Page 4

Nesfréttir - Mar 2017, Page 4
4 Nes ­frétt ir Samkvæmt gögnum frá lögreglunni hafa verið tilkynnt um sex innbrot á síðustu 14 mánuðum á Seltjarnarnesi, farið var inn í þrjá bíla og þrjú hús. Samkvæmt lögreglunni voru skráð eftir áramót þrjú brot þar sem hlutum var stolið úr ólæstum bifreiðum, segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri í spjalli við Nesfréttir. Fljótlega verður boðað til íbúafundar með lögreglunni til að ræða löggæslumál á Seltjarnarnesi eins og gert var árið 2015 þegar lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins mætti á fundinn. Send verður út tilkynning þegar nær dregur og vonast Ásgerður eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta. Fjallað verður m.a. um hvernig hægt sé að draga úr líkum á innbroti. Bent hefur verið á að húsnæði sem stendur autt til lengri tíma getur verið auðvelt skotmark innbrotsþjófa, en þá er hægt að grípa til ýmissa ráðstafana til að draga úr líkum á innbroti. Einnig er gott að geta leitað til nágranna þegar farið er í frí og fá þá til að líta til með húsnæðinu, segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. Sex innbrot á 14 mánuðum KOMDU MEÐ BÍLINN Í FRÍA TJÓNASKOÐUN Vottað réttinga- og málningarverkstæði GB Tjónaviðgerðir er réttinga- og málningarverkstæði vottað af Bílgreinasambandinu. Við tryggjum hámarksgæði með því að nota fyrsta flokks tækjabúnað og efni. Styðjumst við tækniupplýsingar framleiðanda um hvernig skuli staðið að viðgerð. Dragháls 6-8 • 110 Reykjavík sími 567 0690 netfang tjon@tjon.is • www.tjon.is Rétting og málning Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda og notum aðeins viðurkennd efni og tækjabúnað sem stenst ítrustu kröfur. Smáviðgerðir Samhliða viðgerðum getum við skoðað ástand helstu slitflata og öryggisþátta, s.s. bremsur. Innréttingar / áklæði Tökum að okkur viðgerðir á sætum, innréttingum ofl. Bílaþvottur / djúphreinsun Bjóðum við upp á almennan bílaþvott, djúphreinsun, bón ofl. Frír þvottur fylgir öllum viðgerðum. Tjónaskoðun Við skoðum bílinn og undirbúum tjónamatið sem sent er til tryggingafélaga. Framrúðuskipti Skiptum um framrúður og önnumst annars konar rúðuskipti. Sjáum um öll rúðutjón jafnt límdar rúður sem og aðrar, ásamt glerhreinsun á bíl. Mössun / snyrting á lakki Við bjóðum upp á ráðleggingar og gerum tilboð í lakkmössun og blettanir. Dekkjaþjónusta Sparaðu tíma. Við getum skipt um dekk á bílnum á meðan hann er í viðgerð. Nágrannavarsla Skeljagrandi 1 · 107 Reykjavík Sími 899 3417 · www.tölvuland.is PC og Apple tölvuviðgerðir Fullkomið tölvuverkstæði og margra ára reynsla og þekking fagmanna Ætlunin er að vinna nýtt deili- skipulag fyrir Bygggarðasvæðið þar sem eldra skipulag er ekki talið henta hugmyndum uppbygg- ingaaðila á svæðinu. Fyrstu framkvæmdir verða hins vegar við lagnakerfið sem að sögn Gísla Hermannssonar sviðsstjóra umhverfissviðs er lélegt og getur á engan hátt nýst nýbyggingum á svæðinu. Hann segir að endurnýja þurfi allar stofnlagnir sem aðrar lagnir allt frá Lindarbraut út fyrir Bygggarða. Einnig þarf að huga að lögnum í tengslum við Hjúkrunar- heimilið. Gísli segir hugmynd um að starfsmenn Seltjarnarbæjar geti annast þetta verk sjálfir. Það myndi spara bæjarfélaginu kostnað. Nýtt lagnakerfi í Bygggörðum Tillaga að Bygggarðasvæðinu sem kynnt var fyrir nokkrum árum. Nú er að ljúka vinnu við uppgang í stjörnuskoðunarturninn við Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi en ætlunin er að koma nýjum kíki fyrir í turninum innan tíðar. Eldri uppgangur var mjög þröngur þannig að smíða varð nýjan stiga. Til þess að gera aðkomu að stjörnuskoðunarkíkinum auðveldari var ráðist í smíði á sex metra löngum hringstiga upp í turninn. Með hinum nýja uppgangi verður mun auðveldara að komst að kíkinum en börn eru tíð á meðal stjörnuskoðunargesta. Nýr hringstigi upp í stjörnuskoðunarturninn

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.